Vikan


Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 4

Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 4
VERÐLAUN Þennan fallega skrautlampa getið þér eignast fyrirhafnarlítið með því að safna áskrifend- um utan Reykjavíkur, að pöntunarlistum frá Hagkaup. Allir geta safnað áskrifendum og þér fáið lampann sendan ókeypis: fyrir 10 áskrifendur í kaupt. og kaupstöðum fyrir 5 áskrifendur í sveitum Áskriftargjaldið að öllum aukablöðunum og aðallistunum er aðeins tíu krónur á ári. (Aðallistinn verður næst aðeins sendur föstum áskrifendum). Sendið okkur nöfnin, heimilisföngin og á- skriftagjöldin og þér fáið lampann sendan samdægurs. Póstverzlunin MIKLATORGI — REYKJAVÍK Kæri Póstur. Er það satt aS RíkisútvarpiS hafi greitt höfundi „pípsins“ 30.000 krón- ur fyrir „tónverkiS"? ÞaS er bók- staflega óþolandi aS fá þennan ó- fögnuS yfir sig, hvenær sem hlé verSur á dagskránni. Hvers konar fjárkúgun er hér um aS ræSa? Nú, en ef þetta er allt lögum sam- kvæmt, hlýtur þaS aS vera býsna ábatasamt aS vera tónskáld. J. S. B. --------Mér skilst að þú eigir hér við þagnarmerkin milli dagskrár- liða. Ég veit ekki betur en mest af þessu „pípi“ sé tekið upp úr íslenzkum þjóðlögum, sem erfitt væri að finna höfund að, svo að þessi saga um 30.000 krónurnar er víst ekki annað en þjóðsaga. I ' , • | I , • | • ' ; Léleg þjónusta ... Kæri Póstur. HvaS er meS þjónustuna á veit- ingahúsunum hérna í bænum? Sums staSar er hún til fyrirmynd- ar, annars staSar alveg ótæk. Um daginn fórum við hjónin út að skemmta okkur á einum af skemmti- stöðunum. ViS settumst viS borð og biSum í 20 mínútur. Þá kom þjónn og tók pöntunina. Hálftími leiS og ekkert bólaSi á veigunum. Næst, þeg- ar ég sá þjóninum bregSa fyrir, spurði ég hvernig væri með pönt- unina. „Þetta kemur alveg“, svar- aSi hann. Enn leiS hálftími, og loks kom þjónninn með allt annaS en við höfðum beðið um. Nú þótti okk- ur mælirinn fullur og fórum á ann- an stað, þar sem við fengum bæði fljóta og góða afgreiðslu. Varla mæl- ir nú svona lagað með staðnum, eða hvað? Eitt er víst, að ég fer ekki framar í þetta hús. B. S. ________Samkeppnin milli veit- ingahúsa hér í bænum er orðin svo gífurleg, að hús, sem veitir þjónustu sem þessa, getur ekki vænt sér langra lífdaga. Það er þegar búið að missa tvo gesti, B.S. og frú, og ekki trúi ég að þau séu ein um að kvarta. Það leiðir af sjálfu sér, að ekkert veitingahús kernst orðið upp með lélega þjónustu, ef það vill tóra. Tvíræð stjörnuspá ... Kæra Vika. Er ekki eitthvað gruggugt með þessa stjörnuspá ykkar? Ég hef tek- ið eftir því að þar er alltaf forðazt að segja nokkuð ákveðið, og yfir- leitt er um að ræða spádóma, sem gætu átt við alla og komið fyrir alla hvenær sem er. Sumir verða svoleiSis steinhissa, ef eitthvað af þessu kemur fram — en það þarf víst meira til að gera mig hissa. Svona — út með það — hver býr þennan skáldskap til? G. --------Þú virðist víst ekki gera þér grein fyrir því, G. minn, að stjörnumerkin eru ekki nema 12, og undir þau flokkast allt mann- kyn. Sem sagt, ef ætti að spá ein- hverju ákveðnu, (t. d. þú kaupir þér bláa regnkápu á fimmtudag — eða: þú misstígur þig uppi á Hofsjökli í vikunni), er hætt við að margir yrðu vonsviknir, þótt spá sem þessi ætti ef til vill við einn og einn undir vissu stjörnu- merki. Þess vegna VERÐUR spá- in að vera almenns eðlis, þegar spáð er fyrir svo stórum fjölda. Svo er hins vegar hægt að spá fyrir einstaklingum, og þá fyrst er hægt að sjá fyrir smáatriði. U tanbæ j arhl j ómlistar- menn enn ... Kæra Vika. ViS viljum byrja á því að þakka þér l'yrir ánægjulegt lestrarefni, áð- ur en við komum að kjarna málsins. Tilefni skrifa okkur á rætur sínar aS rekja til kosninga um beztu hljómsveit og hljóðfæraleikara landsins í Vikunni 29. marz ‘62. Það vekur furðu okkar, að af þeim hljómsveitum, sem nefndar eru á kjörseðlinum, skuli engin vera utan Reykjavikur (þ. e. Bæjarins, svokallaða, eða er það ekki annars eini bærinn á landinu?). Halda forráðamenn þessarar keppni virkilega, að hvergi annars staðar ú landinu séu til frambæri- legar hljómsveitir? ÞaS er m. a. tekið fram í grein, sem fylgir keppnisreglunum, að þær hljómsveitir, sem birtar eru þar, séu þær beztu, sem fyrirfinnast á íslandi. — Þessu erum við því mið- ur ekki sammála og viljum halda þvi fram, að víSa annars staðar á landinu séu til hljómsveitir og hljómlistarmenn, sem séu fyllilega sambærilegir þeim, sem upp eru taldar. Sem litið dæmi mætti nefna: Siglufjörður: Gautlandsbræður. Norðfjörður: H.S. sextetL 4 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.