Vikan


Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 17

Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 17
CERTINA-DS Hér er úrið, sem hefir alla þá kosti- sem karlmaður óskar eftir. Hér er heimsins sterkasta úr. Samt er það svo fallegt, að hver og einn getur notað það við öll tækifæri. Oss heíir tekizt að framleiða - með algerlega nýrri tækni - úr, sem standast högg, sem myndu gersamlega eyðileggja önnur úr. Ennfremur eru CERTINA-DS sjálf-vindandi, vatns- og höggþétt (reynd undir 20 loftþyngdarþrýstingi). Og að sjálfsögðu afar nákvæmt og reglulegt.sem sæmir CERTINA. O CERTINA-DS Selt og viðgert i rúmlega 75 löndum CERTINA Kurth Fréres, S.A. Grenchen, Sviss h T 4 'hUPHQP HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Líklega verður þú fyrir einhverjum vonbrigðum út af einhverju hjartans máli í vikunni, en hætt er samt við að þú gerir úlfalda úr mýflugu. Þetta stafar að mestu af því að þú ert allt of fús til þess að finna svörtu hliðar tilverunnar, og verður það því til þess að þú ferð á mis við björtu hliðarnar. Heilladagur laugardagur. Nautsmerkiö (21. apr,-—-21. maí): Þetta verður í alla staði ósköp venjuleg vika, þótt ekki verði hún leiðinleg, enda hafa síðustu vikur verið mjög skemmtilegar. Þú ferð óvenjulítið út í vikunni, og er það gott og blessað, því að þú hefur einmitt í mörgu að snúast heima við. Það er eins og skap þitt breyt- ist örlítið til batnaðar um helgina. Tvíburamerkiö (22. maí—21. júni): Vinur, sem þú hefur ekki umgengizt lengi, kemur nú mikið við sögu þina, og verða samverustundir ykkar af- ar ánægjulegar, ekki sízt ef Þessi vinur er af hinu kyninu. Yfirleitt verður þetta þægilegasta vika, einkum fyrir ungt fólk. Þú tekur að þér verkefni, sem þú ræður alls ekki við á jafnskömmum tíma og Þú lætur í veðri vaka. KrabbamerkiÖ (22. júni—23. júli): Þú munt þurfa að berjast af hörku fyrir einni skoðun þinni, og líklega muntu loks bera sigur af hólmi, og verður það til þess að þú hækkar í áliti meðal vina þinna. Þú færð tvö heimboð i vikunni, en ekki er vist nema þér sé hollast að hafna öðru þeirra. Helgin verður dá- lítið nýstárleg og skemmtileg. LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ág.): Það er eins og þig skorti illilega frumkvæði þessa dagana, því að þú viðurkennir fyrir sjálfum þér, að þér hálfleiðist þessi tilbreytingarlausa tilvera, en Þú virðist ekki hafa kjark i þér til þess að breyta til, svo að þú getur í rauninni sjálfum þér um kennt. Þriðjudagurinn er óvenjumikill heilladagur á flestum sviðum. MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þú tekur mikl- um framförum á vissu sviði í þessari viku, og verður það til þess að þú ferð að líta bjartari augum á tilveruna. Þó er eins og einhver aftur- kippur verði um helgina. Þú mátt ekki slá slöku við, þótt að þér steðji freistingar. Þú skalt varast allt óhóf í vikunni og ekki skemmta Þér nema í góðu hófi. Heillat. 9. Vogarmerkiö (24. sept.—20. okt.): Þú hafðir ætl- að þér að ljúka einhverju verkefni í þessari viku, en það er eins og allt verði til þess að tefja þig. Þessi töf verður þó engan veginn leiðinleg, og i rauninni má Þetta verkefni þitt bíða í svo sem viku. Þú lest eitthvað, sem verður til þess að þú litur nú allt öðrum augum á vissan þátt i fari kunningja þinna. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Einhver í fjöl- skyldunni kemur mikið við sögu þina í þessari viku, og munt þú yfirleitt njóta góðs af honum. Þú verður lítið heima við í vikunni, þvi að þú átt annríkt utan heimilisins. Hætt er við að Þú lendir i smásennu við einn vin þinn — tilefnið verður óverulegt, en þið skuluð umfram allt forðast alla langrækni. BogmannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Þér verður komið þægilega á óvart um eða eftir helgina, og verður það til Þess að þú verður að breyta tals- vert til. Af vangá verður einn vinur þinn til þess að þú missir af einhverju, sem þú hefur beðið talsvert lengi eftir, en þú mátt alls ekki láta það bitna á honum. GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Mánudagurinn er sá dagur vikunnar, sem skiptir framtið þina langmestu, og þann dag mun eitthvað gerast, sem breytir á einhvern hátt hugarfari þinu. Þú tekur sízt eftir því sjálfur, en vinir þínir og allir fjöl- skyldumeðlimir munu þeim mun fremur kunna að meta þessa breytingu. Þú ferð í skemmtilegt ferðalag i vikunni. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú hefur beðið lengi eftir að eitthvað sérstakt gerðist, en í siðustu viku var eins og þú gæfir upp alla von. En einmitt nú gerist þetta, og það kemur þér hálfvegis á óvart, og Það er eins og þú kunnir ekki fyllilega að bregðast við því. Þú munt kynnast óvenju- legri manngerð í vikunni. FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þetta verður fremur venjuleg vika i flesta staði. Líklega mun þér þó græðast fé óvænt um eða eftir helgina. Þú skalt reyna að þrozka þig betur í vinnuað- ferðum, því að þér virðist lítið fara fram á því sviði, og eru menn farnir að hafa orð á því. Þú færð þægi- legan gest í heimsókn í vikunni. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ea

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.