Vikan


Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 33

Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 33
Litlir armstólar Skrifborðsstólar Falleg vönduð nýtízku husgögn: Sófasett 10 teg. — Borðstofuskápar, teak, eik, palisander. — Borðstofuburð, teak, birki. — Sófaborð, margar teg. — Útvarpsborð, margar teg — Smáborð, margar teg. — Skrifborð, margar teg. — Hvíldarstólar. — Armstólar. — Eldhúsborð og stólar. — Vegg- hillur og skápar. — Svefnsófar, eins- og tveggja manna. — Standlampar, veggljós og ljósakrónur í úrvali. Allir vandlátir verzla við okkur. Hagstæðir greiðsluskilmálar. - Sendum í póstkröfu. HÚSGAGNAVERZLUN REYKJAVÍKUR Brautarholti 2 Litlir armstólar Svefnbekkir Kommóður lifaS voru ]>etta þau fyrstu, sem hann var ekki heima hjá þeim. Mik- iS saknaði hann þeirra. En hann vissi, að þau myndu aldrei bregðast lionum. Hann reis upp við olnboga, teygði sig eftir bréfunum á borðinu og fletti þeim aftur og aftur án þess að rífa þau upp. Hann þekkti rithöndina á flestum umslögunum, en hann fann ekki það, sem hann leitaði að. Ekki einu sinni hlýlega skrifaða jólakveðju með nafninu liennar undir. Hann mundi eftir kvöldinu fyrir þrem vikum síðan, þegar hann, eftir hennar ósk, hafði hitt hana niðri í lystigarði. Og þá hafði hún sagt honum, að bezt væri fyrir þau að slita kunningsskapnum, því að þau ættu ekki skap saman. Svo hafði hún sagt honum, að hún væri hrif- in af honum á vissan hátt, en ekki eins og áður, og hún kveddi hann af frjálsum vilja. Þá liafði hann spurt hana hvort annar karlmaður væri í spilinu. Hún fitlaði fyrst við hanzkana sína og leit svo á hann og sagði, þó svo hefði ekki verið, þá hefði aldrei ver- ið grundvöllur fyrir þeirra kunn- ingsskap. Ásta var ekki fyrsta stúlkan sem hann missti út úr höndunum á svip- aðan hátt og án þess að vilja það, en barðist þó ekki. Hið versta af þessu öllu var það, að hann gat sjálfum sér um kennt, hvernig kom- ið var. Það bjó einhver djöfull i honum sem aftraði honum frá þvi að vera eins og hann kaus helzt. Hann var rifinn upp frá hugsun- um sínum með klukknahringingu, farið var að hringja inn hátíðina. Hann spratt á fætur fór i skyrtu, rakaði sig og hafði fataskipti. Þeg- ar hann var búinn að þvi var klukkann á seinni partinum í sjö. Hann mátti hafa hraðann á ef hann ætti að ná til frænku sinnar í tæka tíð. En honum hafði verið boðið að dvelja með fjölskyldu hennar um kvöldið. Það var seinni partinn í febrúar. Veður var heiðslcírt, en svolitil nepja. Ásta vafði trefilinn þéttar um hálsinn, ]>að fór hrollvekjandi kvíði um hana þegar hún hugsaði til þess að innan skamms yrði hún að sleppa liendi Páls og sjá á eftir lionum alla leið til Þýzkalands. Það var kallað í hátalarann að farþegar ættu þegar i stað að fara um borð í vélina. Páll þrýsti hönd Ástu kyssti hana á ennið og kvaðst mundi verða duglegur að skrifa, og með vorinu kæmi hún svo út til hans, og þá yrði hann búinn að útvega þeim ibúð. Að því búnu hvarf hann í mannþröngina. Ásta sá honum bregða fyrir aftur um leið og hann fór inn i vélina, þá sneri hann sér við og veifaði til hennar. Síðan var vélinni lokað og hún hóf sig á loft. Þá var sagt i há- lalarann að skráðir farþegar í flug- vél er fljúga ætti innanlands á nokkra upptalda staði ættu að koma um borð þegar í stað. Ásta leit yfir hóp farþega, er hröð- uðu sér í átt að flugvélinni, án þcss þó að láta sér koma til hugar, að hún þekkti nokkurn. En allt í einu tók hjarta hennar smákipp, því að i mannþrönginni mætti hún sorgbitnum augum Steinars. Hvert gat hann verið að fara? Svo sneri hún í áttina að bílnum. Þegar Steinar var kominn í dyr flugvélarinnar leit hann við og von- aði að hún stæði og veifaði honum. En svo var ekki, hún var horfin honnm fyrir fullt og allt. Hann reyndi að leiða hugann frá fortíðinni, og luigsa um, þess í stað hvað framtíðin bæri í skauti sér og hvernig þessir sex mánuðir myndu verða, er hann átti að starfa sem héraðslæknir. ★ West Side Story. Framhald af bls. 19. þeirra Hákarlanna, í algengum mannasiðum. „Fint og fágað skal það vera,“ sagði Bernardo hæðnislega. „En Það megið þið vita Enda þótt hann beindi orðum sínum að Hreyflinum og Riff, ætlaðist h,mm til að hópur þeirra allur tæki þau til sín. „Ég gef ekki eyrisvirði fyrir allan hé- gómann og yfirdrepskapinn, sem þið hérna hafið í hávegum. Þið hatið okk- ur skefjalaust . . . . “ „Þar ratast þér Þó satt orð á rnunn," greip Riff fram í fyrir hon- um. „. . . . en við gjöldum hatur með hatri, og erum ekki að fara í neina launkofa með það. Og ég skála ekki við neinn, sem ég hata ...." Bern- ardo spýtti enn um tönn, „svo ég tek ekki í hönd þeim heldur, sem ég hata.“ Hann kreppti hnefana og steig YIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.