Vikan


Vikan - 03.05.1962, Page 34

Vikan - 03.05.1962, Page 34
MERKIÐ ER Sportver framleiðir STRETCH HELANCA sportbuxur í fjölbreyttu úrvali. Allar stærðir — tízkulitir. SPORTVE Skúlagötu 51. Sími 15005. gætilega fram um skref. „Allt í lagi,“ svaraði Riff, „fyrst þú vilt hafa þann háttinn á Því ... Riff steig skref til hliðar og gaf Diesilnum merki um að ganga fram. „Hann er reiðubúinn að mæta þér.“ Diesillinn dró djúpt andann um leið og hann kreppti og rétti úr hnú- um hægri handar á víxl og gekk gætilega fram. Hann var þyngri en Bernardo, og rökkrið var orðið myrk- ara en honum þótti gott, en hann var ekki í neinum vafa um að hann gæti staðið af sér hvert Það högg, sem Bernardo kæmi á hann. Engu að siður varð hann að gæta sin; þótt Bernardo væri léttur, var það al- kunna að hann var mjög höggharður. Hann hafði þegar getið sér mikiö frægðarorð i götuátökunum, og Það voru margir sem sögðu, að hann gæti orðið mikill hnefaleikari i sinum þyngdarflokki, tækist honum einung- is að hafa hemil á skapi sínu. Diesillinn beindi hörðu höggi að kjálka hans, en Bernardo vék sér undan um leið og hann sló með vinstri hnefa. Diesillinn varðist högg- inu auðveldlega. Enn sló Diesillinn með vinstri hendi; síðan laust með þeirri hægri í blekkingarskyni um leið og hann vék sér naumlega undan hnefa Bernardos, sem straukst við eyra honum. Það leyndi sér ekki, að Bernardo reyndi að koma rothöggi á andstæðing sinn, en beindi ekki hnefunum að bol hans. Það kom sér í rauninni vel fyrir Diesilinn, þar sem það varð til þess að Bernardo beindi höndunum hærra en ella, og var því ■ barmur hans ekki eins varinn. Tækist Diesilnum að' greiða honum þungt og hart högg undir bringsmalirnar, mundi hann ekki þurfa fleiri; hann mundi lyppast niður, og um leið gæfist Diesilnum færi á að greiða honum svo vel úti látið kjaftshögg, að hinar hvítu framtennur hans sætu varla fast í góm á eftir. Diesillinn skýldi sér með öxlinni íyrir hörðu vinstrihandarhöggi Bern- ardos um leið og hann kom þéttings- hörðu höggi á rifin, en varð þó minna úr vegna hreyfingar Bernardos, sem i sömu andrá greiddi Diesilnum kjaftshögg, svo vel úti látið, að var- irnar tóku samstundis að þrútna. Bernardo gerði sér það ljóst, að sá bandaríski var harðskeyttur við að fást; en um leið og hann fann hnúa sína snerta munn hans, langaði hann mest til að hrópa upp yfir sig af fögnuði. Hann dansaði léttilega, en þó um leið með öruggri fótfestu, umhverfis Diesilinn; vék sér undan höggum hans, barði hann, vék sér undan .... Þetta var í sannleika sagt ekki ósvipað dansi, hafði sína föstu hrynj- andi, afmörkuðu skref; allt kom af sjálfu sér, hiklaust og háttbundið, jafnvel höggin. Þannig ætlaði hann að dansa umhverfis andstæðing sinn réttsælis enn um hrið, víkja sér und- an og slá til skiptis, verjast og sækja á, en breyta síðan skyndilega um og stíga dansinn rangsælis — það gæti orðið til Þess að fát kæmi á and- stæðinginn brot úr andrá, en þó nógu lengi til þess að hann stæði óvarinn fyrir höggi, sem dygði. I sömu svifurn heyrði Bernardo að einhver kallaði; hann stökk til hliðar og Diesillinn tók einnig skref f jær ... „Hættið þessu á stundinni!" „Tony er kominn," kallaði einhver. „Betra seint en aldrei." Tony haíði stokkið á milli þeirra, einvígismannanna; hann dró þungt andann og var bersýnilega mikiö niðri fyrir. „Hvað gengur að þér?“ spurði Riff, undrun lostinn. „Rólegir .... rólegir, þið allir,“ mælti Tony skipandi og gætti þess að andstæðingarnir kæmu ekki höggi hvor á annan. „Hvern fjandánn sjálfan meinarðu eiginlega?" spurði Riff reiðilega. „Segðu það strax ....“ Bernardo notaði hléið, sem á varð, til að kasta mæðinni. Hann þrýsti hnúum hægri handar fast í lófa vinstri handar. „Kannski honum hafi aukizt svo hugrekki, að hann þori að berjast sjálfur," mæti hann hæðn- islega og brosti við, Þegar hann heyrði Hákarla sína hlæja dátt að fyndn- inni. Og Tony tók undir hláturinn; hann brosti meira að segja þegar hann rétti Bernardo höndina. „Það þarf ekki hugrekki til að slást, Bernardo," sagði hann. „Það er að minnsta kosti allt annað hugrekki, sem okkur kann að skorta .... “ Bernardo sló snöggt á útrétta hönd í einum og sama pakka 2 tegundir af Ijúffengum barnamat. Gefið barninu Scott’s barnamat. Heildsölubirgðir: KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ 34 VIKAX

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.