Vikan - 05.07.1962, Qupperneq 4
ALUMINIUM
- STÁL
STÝRISHÚS
YFIRBYGGINGAR
á fiskiskip af öllum stærðum.
Aluminium stýrishús eru mun léttari en önnur
stýrishús og yfirvigtin á bátnum því mun minni og
hann verður því stöðugri og hraðskreiðari, auk
þess er viðhalclið sáralítið því sjóvarið aluminium
hvorki tærist né ryðgar.
Verkfræðiþjónusta til staðar.
YÉLSMIÐJA
BJÖRNS MAGNÚSSONAR
Keflavík — Símar: 1175 og 1737.
Reiðhjólabrautir ...
Kæra Vika.
Gætir þú ekki bent umferðanefnd
á að hafa reiðhjólabrautir við helztu
umferðargötur Re^kjavíkur. Það er
einhver undarleg þröngsýni í öllum
þessum gatnamálum okkar. Ekki
lield ég að munaði mikið um að gera’
sérstakar reiðhjólabrautir með
Miklubraut eða Suðurlandsbraut —
svona til að byrja með. Reiðhjól
geta verið stórhættuleg á svona
mikium umferðaræðum. Erlendis
þykir þetta ekki nema sjálfsagt.
Ha?
Til Vikunnar.
Það gladdi mig óendanlega að fá
aldarspegil um sr. Sveinbjörn
Högnason, okkar ágæta klerk og hér-
aðshöfðingja. Eg hef lesið Vikuna
að staðaidri og maður er nú einu
sinni svo hégómlegur að það kemur
við hjartað í manni, þegar eitthvað
er tekið i blaðið sem stendur manni
nærri. Og greinin var sanngjörn og
prýðilega skrifuð eins og þessar
greinar hafa reyndar alltaf verið.
Með kærri kveðju.
Rangæingur.
Hávaði.
Kæri Póstur,
Mig langar til að spyrja þig um
svolítið, sem ég hef ekki getað feng-
ið á hreint hjá neinum, en það eru
skyldur húseigenda gagnvart leigj-
endum.Svo er mál með vexti að ég
leigi tvö herbergi úti i bæ. Fólkið,
sem ég leigi hjá, er bezta fólk i
flesta staði, en nokkuð þó fyrir að
skemmta sér. Ég er að eðlisfari ró-
lyndur maður og fer lítið út, svo að
oft vill það bitna á mér, þegar fólkið
er að skemmta sér. Og jafnvel þótt
það sé ekki beinlinis að skemmta
sér, er eins og það taki ekkert tillit
til annarra í húsinu, því að það er
að rölta og brölta um húsið, kann-
ski langt fram undir morgun. Ég á
mjög bágt með svefn, og kemur þetta
sér oft illa. Nú langar mig að spyrja
þig Póstur minn, hvort húseigendum
beri e-kki einhver skylda til að taka
tiilit til leigjandans? Eða verð ég að
sætta mig við þetta allt saman?
Með kærri kveðju,
Jónas.
-----— Ef þið hafið ekki gert
með ykkur vandaðan leigusamn-
ing, þar sem skýrt er tekið fram,
að þú verðir að fá þinn svefn-
frið og engar refjar, er heldur
lítið, sem þú getur gert. Þú skalt
auðvitað reyna að minnast góð-
látlega á þetta við eigendurna, og
ef ekki er tekið vel í það, verður
þú annað hvort að dúsa þarna
andvaka og vansvefta eða ein-
faldlega að flytja í rólegri íbúð,
sem ég tel umfram allt ráðlegast
fyrir svona viðkvæma sál, eins og
þig-
Dauður litur.
Kæra Vika,
Getur verið að þessi nýju hárlit-
unarefni eyðileggi hárið? Ég litaði
á mér hárið i rúmlega eitt ár, en
svo er ég nýhætt því, og gamli lit-
urinn er aftur kominn i ljós. En
mér finnst hárið á mér vera svo
ljótt, liturinn á þvi er svo dauður.
Ætli þetta sé af háriitunarefninu?
Getur maður gert nokkuð til þess að
hárið iái aítur sinn gamla ljóma?
Gúddý.
-------Til þessa hafa hárlitunar-
efni verið hárinu ónáttúrleg og
yfirleitt óholi, þótt nýjustu skol
geri hárinu ekki stórt mein. Hins
vegar er það algengt, að stúlkur,
sem hætta að nota skol, vanti
í hárið eftir notkunina ýmisleg
bætiefni. Háriö fær ekki sinn
eðlilega ljóma, nema það fái
nægilegt H-vítamín. Þess vegna
skaltu reyna að taka nokkrar B-
vítamíntöflur á hverjum degi.
Gömul blóm.
Kæri Póstur,
Mig langar til að skrifa þér um
mái, sem oítar en einu sinni hefur
valdið mér mikilli gremju. Mér
finnst gaman að afskornum biómum
og kaupi þau gjarna handa vinum
minum og svo handa eigin heimili.
En ég hel' rekið mig á, að surnar
blómaverzlanir selja gömul blóm,
eða blóm, sem löngu eru afskorin
— á sama verði og ný. Iíaupand-
inn á ekJii svo gott með að sjá,
hvort blómin eru að visna, en oft
liaía blóm, sem ég hef keypt sem
ný, hnigið samdægurs og verið ein-
ungis til ömunar. Viltu ekki benda
blómasölum á þetta, Vika góð —
þetta er smánarleg sölumennska og
eykur sízt söluna.
Blómálfur.
-------Við skulum ekki stimpla
allar blómaverzlanir þessu marki,
blómálfur sæll. Hins vegar er rétt
að benda á þessa ósvinnu. En eins
og ég hef margbent á í þessum
dálkum, þegar kvartað er yfir
lélegri þjónustu, þá kemur þjón-
usta sem þessi seljendum í koll,
áður en langt um líður. Þér og
þínum líkum lærist fljótt að forð-
ast þær blómasölur, sem svíkja
svona viðskiptavini sína.
Hlutdrægni.
Kæri Póstur,
Það er annars anzi ólikt mér að
setjast niður og skrifa vikublaði um
vandamál mín, en ég get bara ekki
orða bundizt og verð einhvers stað-
ar að fá útrás. Svo er mál með vexti,
að ég á tengdamömmu, sem er í
alla staði bezta skinn, en það er
bara eins og henni sé ekkert um
mig. Hins vegar er annar tengda-
sonur hennar algjörlega í náðinni
hjá henni — og þetta er orðið svo
áberandi og hjákátlegt, að allir eru
farnir að taka eftir þessu. Hún er
gjörsamlega blind á þennan tengda-
son sinn og gerir allt fyrir hann
— til dæmis er hún að troða í hann
súpum á' ólíklegustu tímum — og
um leið má hún naumast vera að
því að bjóða mér upphitaðan mola-
4 VIKAN