Vikan


Vikan - 05.07.1962, Page 12

Vikan - 05.07.1962, Page 12
Þegar veldi nazista leið undir lok, sögðu bandarískir setuliðsmenn, að Heinz Nordhoff fengi aldrei að fram- leiða bíla. í dag er bíllinn hans, Volkswagen, þriðji mest seldi bíll í heimi ... Heinz Nordhoff. Heinz Nordhoff heitir hann, 63 ára gamall. í bænum Wolfsburg í Þýzkalandi hefur hann með einstöku viljaþreki og atorku unnið að þvi að koma upp þriðju stærstu bifreiðaverksmiðju heims og stærsta fyrirtæki Þýzkalands — á aðeins 14 árum. Slikt hefði jafn- vel fengið Henry gamla Ford til að blikna. Það hefði líklega fáa dreymt um það, þegar Nordhoff tók við verksmiðjunum, að árið 1962 ynnu við verksmiðjurnar um 37.500 Þjóðverjar, sem með sameiginlegu átaki skiluðu af sér einum Fólksvagni hverjar 15 sekúndur. Nordhoff er hógvær, þótt hann vanmeti engan veginn sjálfan sig. Hann er ekkert gefinn fyrir að auglýsa sig. Hann segir: — Sumir menn hefðu akirei getað gerl ]>að sein ég hef gert — satt er það. Voikswagen iiefði getað dottið upp fyrir. Jafnvel ég verð að viðurkenna það. Og hel'ði öðrum manni mistekizt, hefðu menn sagt: — Nú, auðvitað gat þetta ekki gengið. Það hefði enginn getað komið fótunum undir verksmiðjurnar. Allt það, sem Hitler kom af stað, rann út í sandinn. Volkswagen-áætlunin var brjálæði, sem hlaut að eiga sér voðalegar afleiðingar. Nordhoff bætti þvi ekki við, að á aðeins 14 árum hafði hann átt stærslan þátt i því að skapa þessar risaverksmiðjur. Það má segja, að saga lians sé táknrænt dæmi — eða kannski táknið sjálft — um efnahagsviðreisn Þjóðverja eftir heimsstyrjöldina. Draumurinn um Fólksvagninn er engin ný bóla í Þýzkalandi. Löngu fyrir tíma Nordhoffs, þegar i kringum 1920, voru menn byrjaðir á þvi að teikna og smíða lítinn, ódýran og góðan bil l’yrir almenning, en tilraunir þessar liöfðu ælið misheppnazt. Þess- ar tilraunir mistókust, vegna þess að framleiðendurnir hugsuðu um það eitt að gera bilana minni og ódýrari. Það var ekki fyrr en Fólksvagninn var smíðaður, að almúgamaðurinn gat farið að láta sig dreyma um eiginn bíl. Því enn var þetta aðeins draumur. Hitler fylgdi þessu fasí eftir — en bjartsýni hans stappaði vitfirr- ingu næst. Hann vildi láta smiða bíl, sem kostaði um 7000 krónur. Ekki skorti loforðin, en efndirnar urðu eins og oft hjá „Foringj- anum.“ ■— Auðvitað var jielta lirjálæði, segir Nordhoff nú — og sagði reyndar þá lika. í þá daga vann Nordhoff sem fulllrúi hjá dóttur- fyrirtæki General Motors, Adam Opel Co. Hann og félagar hans skildu inætavel, að loförð Hitlers voru ekki til annars en að blekkja sakleysingja. En hvort heldur sem þetta var blekking eða ekki, fór hugmynd- in eins og eldur um sinu yfir gjörvallt Þýzkaland. Hitler ætlaði að selja bílana milliliðalaust beint úr verksmiðjunni. Allt var þetta hluti af áætlun, sem kölluð var Kraft Durch Freude — Orka með gleði. Billinn átti að heita KDF-billinn. Og hvar átli að smiða þetta stolt og gleði verkamannanna? Ein- livers staðar átti að byggja nýja borg. Fyrir valinu urðu mýrarnar milli Ilanover og Brunswick. Keyptar voru 15.000 ekrur af landi, og Hitler sjálfur lagði hornsteininn að verksmiðjunum, þótt flest- 12 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.