Vikan - 05.07.1962, Page 23
Klippið hér
I NÆSTA
BLAÐI LÝKUR
GETRAUNINNI
Það tekur allt enda nema eilifðin. í næsta
blaði lýkur þessari getraun og þá getið þið
slegið utanum getraunaseðlana til Vikunnar.
Við munum gefa þriggja vikna frest til inn-
sendingar — það ætti að nægja svona um
hásumarið, en dráttur mun fara fram hjá
borgarfógeta, miðvikudaginn 1. ágúst.
Getraunin er með sama sniði og áður. Þið
eigið að finna þrjú atriði, sem við höfum
breytt á neðri myndinni og gera hring utan
um þau með penna eða blýanti. Það skiptir
i rauninni ekki máli, hvort hringirnir eru
dregnir á efri eða neðri myndina, ef þeir
sýna, að viðkomandi hefur fundið rétt atriði.
<] Unga stúlkan sem stendur hjá Volkswagen-
bílnum á myndinni til vinstri er „Ungfrú
Ueykjavík 1962“, Anna Geirsdóttir frá Mýrar-
húsum.
I-----------—----------Klippið hér-----------— —
Nafn ......................................
Heimili: ..................................
Sími: .........
VIKAN 23