Vikan - 05.07.1962, Blaðsíða 24
SVAVAR GESTS SKRIFAR UM
SÆNSHIR FTMLEIKA-
MENN Á FERÐINN1
í dag kemur til landsins liópur sænskra fimleika-
manna og verður hann hér i tæpa viku.
í þessum hóp er 12 manna úrvalsflokkur fimleika-
manna úr K.F.U.M. í Stokkhólmi, sem er frægasti fim-
leikaflokkur Sviþjóðar og hefur sýnt yfir 800 sinnum.
Þar af hefur flokkurinn sýnt 150 sinnum í 33 utanlands-
ferSum. Flokkurinn hefur sýnt i flestum löndum Evrópu
og einnig í Bandarikjunum. Hér hefur hann komið
tvisvar áður árið 1938 og 1956.
Flokkurinn sýnir hér áhaldafimleika á tvislá, svifrá,
hesti og í hringjum. Meðal fimleikamannanna eru mjög
góðir keppnismenn í fimleikum og menn úr landsliði
Svíþjóðar í fimleikum. Frá félaginu Víkingur 1 Stokk-
hólmi verður hér 12 stúlkna úrvalsflokkur í fimleikum
og eru þær taldar mjög leiknar.
Þá er ýfir 20 manna
hópur þjóödansara frá
stærsta og elzta þjóðdansa-
félagi Svíþjóðar. Þetta fé-
)ag sem er frá Stokkhólmi
hefur einnig sýnt víða í
Evrópu og í Bandaríkjun-
um. Hópurinn kemur hing-
að frá Noregi en þar hafa
flokkarnir sýnt á norska
Landsmótinu í fimleikum
sem er nýlokið.
Flokkarnir sýna hér í
Háskólabió og líklega við-
ar dagana 5. til 10. júlí.
Þetta er einhver stærsti
hópur iþróttamanna, sem
hingað hefur komið. ★
Fimleikamaður úr
K.F.U.M., Stokkhólmi.
Þjóðdansaflokkurinn frá Stokkhólmi.
Gamla myndin.
Þetta er hin fræga hljómsveit Aage
Lorange eins og hún var skipuð þegar hún
byrjaði í Sjálfstæðishúsinú 1946. Aage
Lorange, pianó (Aage er ennþá starfandi
hljóðfæraieikari, en hefur síðari árin snú-
ið sér mjög að pianókennslu), Jónas Dag-
hjartsson, fiðla og trompet (leikur nú með
Birni R.), Ólafur Pétursson, harmonika
og ténór-saxófónn (starfar ekki lengur
að liljóðfæraleik), Poul Bernburg, tromm-
ur (er enn starfandi hljóðfæraleikari, en
rekur jafnframt eigin hljóðfæraverzlun),
Þorvaldur Steingrímsson, fiðla, klarinet
ög altó-saxófónn (leikur nú i sinfóníu-
hljómsv. í Kaliforniu) og Skafti Sigþórs-
son, fiðla og altó-saxófónn (leikur lítið
eða ckkert í danshljómsveit, en er í
Sinfóniuhljómsveitinni).
Nýjar hljómplötur.
Lionel Bart heitir liann þessi og er
Englendingur. Hann semur dægurlög og
texta og heila söngleiki ef þvi er að skipta.
Hann samdi söngleikinn Oliver, sem gerð-
ur var eftir sögunni Oliver Twist, og nú
hefur hann samið annan söngleik, sem
verið er að sýna um þessar mundir í Eng-
landi. Heitir sá Blitz og á að gerast á þeim
timum er loftárásir Þjóðverja á England
stóðu sem liæst. Blitz liefur ekki fengið
eins góðar móttökur eins og Oliver fékk
á sínum tíma, enda er Oliver tahnn í
fremstu röð söngleikja. Stendur til að sýna
þennan fræga enska söngleik í Bandaríkj-
unum seint á þessu ári.
Jimmy Soul: Twistin Mathilda og I
can‘t hold out any longer. Twistin' Mat-
hilda hefur náð allgóðri sölu í heimalandi
sínu, USA, en lagið er ómerkilegt, illa
sungið og upptakan léleg. Það er líklega
kvenmannsrödd, sem syngur. Lover please
verður áreiðanlega vinsæl plata hér, þó
hún verði kannski ekki langlíf. Síðara
lagið cr rólegt og reyndar ekki alveg eins
líflega sungið, en þetta er þó engu að síð-
ur gott lag, sem því miður verður varla
vinsælt hér, því mjög róleg lög falla ekki
í smekk íslendinga.
Mercury liljómplata, sem fæst hjá HSH,
Vesturveri.
hin mikla eftirspurn eftir twistlögum, sem
gerir það að verkum að slik ósköp ná að
verða vinsæl. Siðara lagið er rólegt rokk-
lag og ekki alveg eins illa sungið. Þetta
er litt eiguleg plata. SPQR hljómplata, fæst
hjá HSH, Vesturveri.
Clyde McPhatter: Lover please og Let‘s
forget about the past. Fyrra lagið er fjör-
ugt og skemmtilegt og syngur McPhatter
það mjög vel, hann hefur sérstaklega háa
rödd og það svo, að þeir sem heyra hann
í fyrsta skipti á plötu halda að það sé
iOVSR PI.6AS6
icn wmi tmi rn mi