Vikan


Vikan - 05.07.1962, Qupperneq 25

Vikan - 05.07.1962, Qupperneq 25
fc II * ’bUPnar Hrútsmerk'iö (21. marz—20. apr.): Þessi vika verður dálítið tilbreytingalítil heima við, en á vinnustað gerist ýmislegt óvænt, sem kemur þar lifi' í tuskurnar. Vinur þinn kemur þar mjög við sögu. Þú virðist vera blindur á allt í fari einhvers i fjölskyldunni, og ýmislegt bendir til Þess, að þú sért fyrir- fram fús til þess að fyrirgefa honum allt. NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Þú skait ekki vera mikið að heiman. Ef þú hyggur á búferla- skipti, skal þér ráðlagt að flýta þér ekki um of, ef nokkur kostur er á. Þú ert einhvern veginn að missa áhugann á áhugamáli, sem þú sinntir mjög mikið allt til þessa. Það væri miður, ef þú legðir þetta algerlega á hilluna. TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Þú vanrækir eitt skyldustarf þitt svo mjög, að þér hefnist illi- lega fyrir. Verður þetta til Þess að þú tekur á Þig rögg og snýrð þér fyrir alvöru að þessu verkefni, og er gott til þess að vita. Vinur þinn kemur ekki fyllilega rétt fram við þig i máli, sem er ykkur báðum hag- stætt. Varastu samt að áfellast hann fyrir. KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Þú verður gagnrýndur að ósekju fyrir eitthvað, sem þú gerir í mesta grandaleysi. Endalok þess máls verða þó algerlega þér i hag, því að þú færð uppreisn, sem um munar. Á föstudag kemur til þín gestur, sem þér er ekkert vel við í fyrstu, en hann er ekki allur, þar sem hann er séður. Amor verður mikið á ferðinni. Ljónsmerh'iö (24. júlí—23. ág.): Þetta er tvímæla- laust vika ungu eiginkonunnar. Það er eins og allt leiki í lyndi fyrir henni. Yfirleitt er þetta líka hin ánægjulegasta vika fyrir alla þá, sem fæddir eru undir Ljónsmerkinu, einkum þá, sem fæddir eru í ágúst. Laugardagurinn gæti samt verið dálítið v'arasamur fyrir unga fólkið. MeyjarmerlciÖ (24. ág.—23,'sept.): Það hefur bor- ið allt of mikið á eigingirni i fari þínu undanfarið, en þú verður fyrir einhverjum utanaðkomandi á- hrifum í vikunni, sem lækna að nokkru þennan leiða kvilla, og er það vel. Láttu þetta þér að keruningu verða. Vinur þinn stendur við það, sem hann lofaði þér, en hætt er samt við að þú misskiljir hann. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þér bjóðast tvö gullvæg tækifæri í vikunni, en ef þú ferð ekki að öllu með gát, er hætt við því að þú missir af þeim báðum og nýtir þér þriðja tækifærið, sem i raun- inni er litils virði. Þú virðist ekki kunna nógu vel að meta það, sem einn kunningi þinn gerir fyrir þig. Hann vill þér í rauninni ekkert nema vel. Heillal. rauðleitt. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú misskilur eitthvað, sem sagt verður við þig, líklega um helg- ina, og verður það til þess að þú lendir í skringi- legu ævintýri. Ekki þarftu samt að kvíða fyrir því, því að endalokin verða hin beztu. Þú ættir umfram allt að þiggja heimboðið, sem þér býðst í vikunni, þótt það komi sér að einhverju leyti illa fyrir þig. BogmannsmerkiÖ (23. nóv.—21. des.): Þessi nýj- ungagirni þín er að verða allt of mikil, næstum óeðlilega mikil ■— auk þess sem hún kostar mikla peninga. Þú mátt ekki láta það eftir þér að kaupa allt það, sem Þig langar i þessa og þessa stundina. Þú munt sjá eftir þvl seinna. Laugardagurinn er mjög skemmtilegur dagur, einkum ef þú ferð eitthvað að heiman. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú virðist ein- kennilega langrækinn þessa dagana, og það er eins og þú getir ekki fyrirgefið þínum beztu fé- lögum smávægilegustu yfirsjónir. Þú verður að reyna að sætta þig við, að allir snúist ekki í kring- um þig. Hver er sjálfum sér næstur, segir orðtakið — og lík- lega bitnar það á þér, eins og öðrum. Vatnsberamerkiö (21. jan.—-19. feb.): Þú hefur lifað mjög þægilega daga undanfarið, en þú mátt samt ekki gera ráð fyrir, að lífið sé eintómur dans á rósum. Eitthvert þunglyndi virðist ríkja heima hjá þér, og væri þér bezt að forðast það með því að umgangast félaga þína meira um sinn. Þú dettur sannarlega í lukkupottinn um helgina. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Það getur ver- ið, að þú hafir ástæðu til þess að vera svartsýnn, eins og málin standa, en í rauninni þarftu engu að kvíða, því að þetta fer mun betur en þú býst við. Kona, sem þú þekkir lítið sem ekkert, kemur þér að liði í máli, sem þér er mjög annt um. Farðu varlega með peningana, einkum um helgina. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Kaníör’s SUNDBOL1R ntodel 19 62 Valin efni Nýjustu snið Fjölbrejfttnstn úrvnl Biðiið um — og þér fáið það bezia VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.