Vikan


Vikan - 06.09.1962, Side 9

Vikan - 06.09.1962, Side 9
nautgripalestir og ná sjálf í gripina. Beitilöndin eru svo stór, að margir bændur hafa litlar flugvélar til þess að fljúga yfir þau og fylgjast með nautpeningnum úr lofti, aðrir láta sér nægja jeppa. — Hvernig sýndist þér afkoma almennings vera þarna í Buenos Aires? — Verkamannalaun eru þar nær þriðjungi lægri en hér, en síðan er mikill launamismunur gerður eftir því hvort maður hefur manna- forráð og ábyrgð. Ég hafði sjöföld verkamannalaun, vegna þess að ég hafði mannaforráð og átti að kom- ast upp í fjórtánföld verkamanna- laun. Það er óvíða að svo lítill mun- ur sé gerður á laimum yfirmanna og undirmanna eins og hér á fs- landi. Maður sem vinnur venjulega verkamannavinnu án þess að hafa nokkra ábyrgð á verki, gerir hér kröfu til þess að geta átt íbúð og bíl rétt eins og hinn, sem er fram- kvæmdastjóri og ábyrgðarmaður. Það gerir fólk ekki í Argentínu fremur en annars staðar erlendis. Þar finnst öllum sjálfsagt að hærri stöðu fylgi mun hærri laun, enda hafa framkvæmdastjórar fyrir- tækja ótrúlega há laun. — Er þá ekki mikill stéttamis- munur? — Það er óbrúanleg gjá á milli undir- og yfirstétta. Ég rak mig á það nokkru eftir að ég kom suður- eftir. Þá var ég á ferðalagi um borg- ina ásamt bílstjóra frá fyrirtækinu og leiðin lá framhjá heimili mínu. Mér fannst rétt að skreppa inn og fá mér kaffi og sagði bílstjóranum, að hann skyldi bara koma og fá sér kaffi með mér. Þetta var ágætur maður, vel lesinn og hafði sent barn sitt í æðri skóla. Ég sá strax, að hann kunni ekki við það að fara inn með mér, en gerði það þó. En ég fékk að vita það á eftir, að slíkt og þvílíkt gerir ekki nokkur yfir- maður og þeir sögðust bara vona það þama hjá fyrirtækinu, að for- stjórinn kæmist ekki að þessu. Annars virðist almenningur búa mjög fátæklega og gera litlar kröf- ur til lífsins. Öll hús í úthverfum borgarinnar eru eins: Litlir ferkant- aðir steinkassar svipað og á Spáni. Heimilistæki eru mjög fáséð; ódýr- ara að ráða húshjálp, t. d. strauvél- ar sem eru svo til óþekktar nema hjá þeim ríkustu. Þvottavélar og kæliskápar margar teg. eru nú framleiddir í landinu, en eru dýrir og því fyrir efnaðri borgara. Aftur á móti er gert ráð fyrir þjónustu- fólki. Enginn . byggir svo hús, að hann hafi ekki í því sérstakt bað- herbergi fyrir þjónustulið og sér- stakan inngang í húsið. Jafnvel þótt réttur og sléttur Pétur eða Páll byggðu sér hús, myndu þeir hafa það þannig. Annars ættu þeir á hættu að geta ekki selt síðar. — Þú hefur þá einkum kynnzt fólki, sem ofarlega var i stiganum? — Já, af sjálfu leiddi. Það var afskaplega mikið samkvæmislíf í sambandi við þessa stöðu; eiginlega ómögulegt að komast hjá því að fara í boð á hverju einasta kvöldi. Það var alveg að gera út af við mig og fjölskylda mín var ekki hrifn- ari af því. Fólkið er afskaplega elskulegt a. m. k. á yfirborðinu, það er argasti dónaskapur að hrósa ekki kvenmanni fyrir fegurð, hversu ljót sem hún kann að vera, og menn segja oftast það sem kemur þeim vel sjálfum. Þeir eru mestu tæki- færissinnar og geta sagt allt annað á bak. Maður kom í samkvæmi og þá var það rétt eins og glataði son- urinn væri heimtur úr helju og þar hitti maður eitthvert fólk, sem bauð heim til sín næsta kvöld og þar var enn nýtt fólk, sem vildi hafa þá ánægju að fá okkur kvöldið þar eftir og svona gekk það. Óslitin keðja. En það var nokkuð einkenn- andi ef maður hafði orð á því að einhver maður væri alúðlegur eða skemmtilegur, þá var bandað hend- inni og sagt: Passaðu þig á honum. Taktu ekki mark á honum og svo framvegis. Svo lærir maður það að taka ekki mark á neinum. Oft kom það fyrir, að einhverjum seinkaði í boð og þá var tækifærið notað og maðurinn niddur niður á meðan; kallaður hinn mesti labbakútur og gefnar á honum margar ófagrar lýsingar. En þegar sá hinn sami birt- ist var hann klappaður og kjassað- ur. Konan mín kunni afleitlega við þetta, ég lét sem mér kæmi það ekki við. Ef til vill þekkjum við svipað hér? — Hvernig litu þeir á mann norðan af fslandi? — Norðurlandamenn eru mjög hátt skrifaöir í Argentínu og í mestu áliti af Evrópumönnum ef ekki allri heimsbyggðinni. Þess vegna er gott að vera íslendingur þar. Þeir telja víst, að Norðurlanda- menn séu mjög heiðarlegir. — Já, það var og. En hvernig lifðuð þið annars, eða réttara sagt: hvað gerðuð þið ykkur til yndis og ánægju í tómstundum heima fyrir? — Skemmst frá að segja var heim- ilislíf ekki til eins og við áttum því að venjast hér. Við vorum alltaf úti eins og ég sagði þér frá. É" held næstum að við höfum verið búin að vera nokkra mánuði úti, þegar við gátum borðað saman kvöldmat heima. Við höfðum prýðilega íbúð og okkur gat liðið vel þar. Það var í einu aðalhverfi borgarinnar. Við höfðum líka bíl og gátum farið ferða okkar um borgina og nágrenni h,'nn- ar, en það var eftir litlu að sækiast. Bezta skemmtunin var að sigla á fljótinu og óteljandi síkjum og skurðum sem éru 20—30 km upp með fljótinu frá borginni. Eru þar á ferð um helgar þúsundir báta af öllum gerðum allt upp í haffærar snekkjur, stórglæsileg skip. Sést þar margur knár kappi á vatnask’'ðum og ótrúlegt hvað þeir eru leiknir að standa öldurnar sem myndast af skriði öslandi hraðbátanna. í ná- munda við borgina er einungis Framliald á bls. 42. í hverju samkvæmi er mað- ur glataSi sonurinn endur- heimtur — jafnvel þótt enginn þekki mann. Og það voru stöðug samkvæmi; það kom varla fyrir að við borð- uðum saman kvöldmatinn heima. Hér er fjölskyldan á sunnudagssiglingu á La Plata fljótinu. Hitinn er svo mikill, að allir eru mjög léttklæddir. Að neðan: Runólfur og Nanna á glaðri stund á einhverjum skemmtistað í Buenos Aires. VIKAN 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.