Vikan - 23.07.1964, Síða 7
allmjög vaxandi, að það væri
vonlaust fyrir strák úr mennta-
skóla að trúlofa sig hárgreiðslu-
dömu og afgreiðslustúlku í búð.
Að það væri vonlaust til lengdar
um samdrátt menntaskólastúlkna
og iðnnema t. d. Ekki vegna þess
að menntamennirnir litu niður á
hinar svonefndu vinnandi stéttir,
heldur vegna þess að sameigin-
leg áhugamál skorti, uppeldið
væri of ólíkt. Mörgum og eink-
um af eldri kynslóðinni, fannst
þessi skoðun stúlkunnar hreinn
„horror“ og sögðu þetta vitleysu.
En hún hefur líklega haft rétt
fyrir sér. Sjálfsagt er það þó elcki
sama stúlkan, sem viðtalið var
haft við og sú, sem þú ert trú-
lofaður. Eftir því sem við bezt
vitum, þá er viðtalsdaman ólofuð
ennþá.
Tilgáta þín er hárrétt. Stúlkan
er að þroskazt burt frá þér með
námi sínu. Þú hefur lokið þínum
iðnskóla, en það er (sennilega
andleg stöðnun hjá þér, meðan
stúlkan kynnist nýjum viðhorf-
um. Ef þú vilt halda I við hana
þar til hún hættir námi, þá verð-
ur þú að bregða hratt við og
taka sjálfan þig í karphúsið.
Minnstu þess, að það er hægt að
þroska sjálfan sig og Iæra víðar
en í menntaskóla. Þú getur hafið
tungumálanám með einkakenn-
ara, í Námsflokkum Reykjavík-
ur í vetur, eða einhverjum af
þessum ágætu málaskólum. Þú
getur, hvenær sem er, farið á
borgarbókasafnið og náð þér í
góðar íslenzkar bókmenntir. Ekk-
ert nám jafnast á við sjálfsnám,
ef járnvilji er fyrir hendi. Skrif-
aðu okkur aftur eftir svo sem
þrjú ár.
Lög unga fólksins
Kæri Póstur!
Mér þætti mjög vænt um ef að
þú vildir birta þetta bréf fyrir
mig.
Þannig er mál með vexti, að
ég hlusta alltaf á Lög unga fólks-
ins, og finnst mér þættirnir alltaf
skemmtilegir, nema þegar Berg-
ur Guðnason er með þáttinn. (Og
þetta finnst örugglega fleirum)
því að hann er alltaf að spila
það sem honum finnst skemmti-
legast. Ég hélt að hann væri að
gera hlustendum til hæfis, en
ekki sjálfum sér. Svo eru þetta
eintómar aríur og svoleiðis drasl
sem hann spilar, svo að nú orðið
getur maður bara farið að kalla
þáttinn hans „Lög gamla fólks-
ins“ en ekki „Lög unga fólksins,
eins og hann á víst að heita. Mér
fyndist betra, ef það væri hægt,
að spila „Lög unga fólksins" á
sama tíma og venjulega, en
„Lög gamla fólksins" ásamt Bergi
á öðrum tíma. Það er ekki að
furða þó að það sé ekki hægt
að senda kveðjurnar sem beðið
er um, þegar tímanum er eytt
svona. Enda er þetta ekki það
langur tími sem þátturinn hefur.
Mér finnst Bergur ætti að fá að
velja sér einhvern tíma hljóm-
plötur í hljómplötusafninu í þess-
um þætti sem útvarpið er með,
einu sinni í viku.
Lolla.
P.S. Þakka allt gott lestrarefni,
kæra Vika! Sama.
Greiðasemi á aðalbraut
Vikan, Skipholti 33.
Viltu vera svo góð að skera úr
deiluefni, sem við tveir félagar
höfum borið undir ýmsa og feng-
ið mismunandi svör. En nú höfum
við ákveðið að beygja okkur und-
ir úrskurð Póstsins og biðjum
þessvegna um að svarað verði í
alvöru og án útúrsnúnings.
Vandamálið er svona: Þegar mað-
ur sér bíl eða bíla bíða eftir því
að komast inná aðalbraut, á mað-
ur þá að stanza og gefa þeim
tækifæri til að komast inná göt-
una. Kunningi minn heldur því
fram, að þetta eigi maður að
gera, en ég held fram hinu gagn-
stæða. Hvor hefur rétt fyrir sér?
Ökuþór.
Þú hefur rétt fyrir þér, Öku-
þór, (í alvöru og án útúrsnún-
ings). Aff stanza á affalbraut til
þess aff sýna þá hoffmennsku aff
hleypa þeim inná, sem bíða, gæti
einungis Ieitt til þess aff næsti
bíll fyrir aftan þig kæmi inn í
afturendann á þínum bíl og
skutlaði honum inní hliðina á
þeim, sem þú varst aff gera greiff-
ann. Bezt er aff hafa þá reglu aff
trufla umferff á affalbrautum sem
minnst. Ef umferff er hinsvegar
mjög lítil og þú sérff ekki nokk-
urn bíl í bakspeglinum, þá fer aff
koma til álita, hvort þú átt aff
sýna þennan vafasama höfðings-
skap. En aðalreglan er þessi:
Greiffasemi, sem getur valdiff
slysum, á engan rétt á sér og
hananú.
Barnapeysnr sumarsins!
Útprjónaðar
Jacquard
barnapeysur
í mjög fallegum litum
Stærði: 4, 6, 8,10 og 12.
HEILDSÖLUBIRÐIR:
ANNA ÞÖRÐARDÖTTIR H. F.
PRJÓNASTOFA
ÁRMÚLA 5 - SÍMI 38172
VIKAN 30. tbl.
7