Vikan - 23.07.1964, Side 32
NILFISK
NILFISK
bónvélar
eins og NILHSK
ryksugur:
AfburSa verUfæri
í sérflokki.
verndar gólfteppin-
því að hún hefur nægllcgt sogafl
og afburða teppasogstykkl, sem
rennur mjúklega yfir teppin, kemst
undir lægstu húsgögn og DJÚP-
HREINSAR jafnvel þykkustu gólf-
teppi fulkomlega, þ. e. nær upp
sandi, smásteinum, glcrsalla og
öðrum grófum óhreinindum, sem
berast in'n, setjast djúpt í tcppin,
renna til, þegar gcngið er á þeim,
sarga undirvefnaðinn og slíta
þannig teppunum ótrúlega fljótt.
NILFISK slítur alls ekki tepp-
unum, j»ar sem hún hvorki bankar
né burstar, en hreinsar aðeins
með rétt gerðu sogstykki og
nægilegu sogafli.
Aðrir NILFISK kostir:
* Stillanlegt sogafl # Illjóður
gangur * Tvöfalt fleiri (10) og
betri sogstykki, áhaldahilla og
hjólagrind með gúmmíhjólum
fylgja, auk venjulegra fylgihluta
* Bónkústur, hárþurrka, málning-
arsprauta, fatabursti o. m. fl.
fæst aukalega.
* 100% hreinleg og auðveld tæm-
ing, þar sem nota má jöfnum
höndum tvo hreinlegustu ryk-
geyma, sem þekkjast 1 ryksugum,
málmfötu eða pappírspoka.
* Dæmalaus ending. NILFISK
ryksugur hafa verið notaðar hér-
lendis jafn lengi og rafmagnið, og
eru flestar í notkun enn, þótt
ótrúlegt sé.
* Fullkomna varahluta- og við-
gerðaþjónustu önnumst við.
Ilagstætt verð.
Góðir greiðsluskilmálar.
Sendum um allt land.
ÚRVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA:
ATLAS kæliskápar, frystíkystur — BALLERUP hrærivélar — BAHCO eld-
húsviftur, tauþurrkarar, gnfubaðstofutæki — FERM þvottavélar, þeytivind-
ur, strauvélar — GRILLFIX grillofnar — FLAMINGO straujárn, úðarar,
snúruhaldarar — ZASSENHAUS rafmagnskaffikvarnir, brauð- og áleggs-
sneiðarar — Hraðsuðukatlar, vöfflujárn, brauðristar, eldhúsvogir, baðvogir o.fl.
SIMI 1-26-06
SUÐURGATA 10
REYKJ’AVÍK
__________________^_________Klippið hér------------------------------
Undirrit. óskar nánari upplýsinga (mynd, verð og greiðsluskilmála)
um: ...................-...............................................
Nafn ..................................................................
Heimili ...............................................................
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þér verður óvenjumikið úr peningunum þínum í
vikunni og líkur eru á, að þú gerir mjög hagkvæm
viðskipti. Þú endumýjar gamlan hlut sem á eftir
að gera þrefalt meira gagn en áður. Þú færð boð um
skemmtilega ferð þér að kostnaðarlausu.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Áætlanir þínar munu standast prýðilega og allt
ganga samkvæmt vonum. Þú ættir að minnast ætt-
mennis þíns, sem hefur lengi beðið eftir að ná tali
af þér. Þér verður boðið á allfjölmennan mannfagn-
að. Ákvarðanir sem varða fjármál skaltu geyma til betri tíma.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ert óánægður í starfi þínu. Ef þú færð sannanir
um, að verk þín séu ekki fyllilega metin, skaltu
ekki lengur eyða dýrmætum tíma til einskis og
breyta til. Dveldu heima við í frístundum þínum og
leggðu kapp á að fegra og endurbæta heimili þitt.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú kynnist mörgu fólki á stað, sem þú dvelur á um
tíma. Sum þessarra kynna munu vara lengi. Það
verður nóg af ást og rómantík hjá þeim sem þess
óska. Allar stórákvarðanir skaltu draga nokkuð. Þú
verður fyrir óvæntum fjárútlátum, vegna vanrækslu þinnar.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
hefur sigrazt á erfiðu tímabili. Nú þegar því er
W lokið skaltu láta vítin vera þér til varnaðar. Þú
þarft að taka skjóta ákvörðun í vissu málefni, þú
skalt óhikað leggja þig allan fram. Gerðu dálitla
fjárhagsáætlun, fyrir þig persónulega, svona 2—3 næstu mán.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Þú átt á hættu að tapa nokkuð á fjárhættuspili eða
öðrum skyldum, vafasömum aðgerðum. Þér er þörf á
því að breyta um andrúmsloft, og fá þér svolitla
andlega næringu. Þú verður að leggja sjálfselskuna
á hilluna, ef þér er annt um heimili þitt.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú skalt breyta til þannig að bæði umhverfi þitt og
verkefni séu þér betur að skapi. Meðalvegurinn er
ekki svo vandrataður fyrir persónu með þitt skap-
lyndi. Þú færð óvenjulegan gest, svolítið hávaða-
rsaman. Þú skalt umgangast kunningja þína meira.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú hefur þörf fyrir að gleðja ástvini þína. Heppileg-
ast í því sambandi væri smá gjöf vandlega valin.
Náinn kunningi þinn reynir að draga úr þér kjark-
inn og mun það réyna mjög á þrek þitt. Ef þú hefur
íáhuga á að breyta um aðsetursstað er tíminn heppilegur.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
©Vikan verður mjög ánægjuleg og sennilega nokkuð
um gestagang. Þú verður að breyta um aðferð ef þú
vilt að ákveðin persóna láti að vilja þínum. Skemmti-
leg ferð er í vændum en fremur stutt. Þú færð
ratvinnutilboð, sem þú skalt athuga vandlega.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú skalt sjálfur leysa fram úr vandamálum þínum,
því einhver trúnaðarmaður þinn hefur tilhneigingu
til ótrygglyndis. Þú skalt taka til hendinni heima
hjá þér við verkefni, sem lengi hafa verið trössuð.
^Gefðu meiri gaum að yngri félögum þínum og óskum þeirra.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
®Einhver vinur þinn hefur valdið þér vonbrigðum, þú
getur látið þér það að kenningu verða. Það verða
gerðar háar kröfur til þín, gættu þess vegna fram-
komu þinnar í hvívetna. Leitaðu ekki nýrra ævin-
ítýra með hinu kyninu að sinni. Hvíldu þig yfir helgina.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú færð tækifæri til þess að komast í persónulegt
samband við yfirboðara þína, sem ætti að geta orðið
þér heilladrjúgt. Þú skalt ekki taka neinar stórar
ákvarðanir á fjármálasviðinu. Misnotaðu ekki frí-
ttíma þinn, reyndu að skapa þér eitthvert hollt áhugamál.
Til FÖNIX s.f., Suðurgötu 10, Reykjavík.