Vikan


Vikan - 23.07.1964, Side 37

Vikan - 23.07.1964, Side 37
ur, sem teygðust út til þess að hjálpa mér um borð. Þegar ég loks stóð á þilfarinu, sýndi ein- hver mér, hvað klukkan var. Hún var tíu mínútur yfir tvö. Ég hafði verið í sjónum í fimmtán klukkustundir. Síðar kom í ljós, að þetta var ekki rétt. Um borð í þessu skipi voru klukkurnar þrem tímum á undan klukkunni í Freiburg. Strycharczyk hafði verið 12 tíma í sjónum. Björgunarskipið var Absecon. Skipslæknirinn rannsakaði vél- stjórann. Hann reyndist við góða heilsu, nema hvað sum liðamót- in voru bólgin, og saltið hafði rifið af honum undir höndunum og um hálsinn. Sömuleiðis var tunga hans bólgin. Hann var vaf- inn innan í teppi og fékk súpu og kóka kóla. Fáeinum mínútum eftir að Absecon veiddi Strycharczyk úr sjónum barst skeytið á öldum ljósvakans til Freiburg. Áhrifin voru stórkostleg. Skipið hafði verið sveipað sorgarslæðum, en nú skipti snögglega um. Áhöfnin hrópaði og kallaði, blés í horn og barði bumbur. Bjór og snafs- ar flutu í ríkum mæli. Freiburg skifti enn einu sinni um stefnu stefnu og sigldi til móts við Absecon. Klukkan tæplega hálf- tvö aðfaranótt 14. febrúar kom Strycharczyk aftur um borð í sitt gamla skip. Móttakan hefði sæmt fjögurra stjörnu aðmírál. ■— Allir voru á þiljum, sagði Strycharczyk. — Allir vildu taka í hendina á mér. Menn virtust eiga erfitt með að trúa, að þetta væri raunverulega ég — lifandi. Skipstjórinn var utan við sig af gleði. Allir þúuðu mig, og það er ekki algengt í kaupskipaflota Þjóðverja. Og fjörutíu og átta klukku- stundum eftir endurkomu sína um borð í Freiburg, var Strych- arczyk aftur kominn á sína gömlu vakt. Hann spilaði við félaga sína, og drakk bjórinn sinn. Ekkert var breytt — nema eitt: Hann var hættur að fara út að borðstokknum til að horfa á öld- urnar og stjörnurnar. Framhald af bls. 5. og var að hjálpa honum að kom- ast út. Þeir litu hvor á annan og brostu breitt. Dougherty beygði sig fram á við, þar til hjálmur hans snerti lijálm Pruetts. Nú gátu þeir tal- að saman án senditækja, þvi hjálmarnir leiddu hljóðið. Dougherty var næstum farinn að skellihlægja, þegar liann heyrði rödd Pruetts: — Fjand- inn liafi það, ef þú liefur ekki fallegasta fjes, sem ég liefi séð ennþá! — Allt i lagi, piltur minn, komdu nú heim með pabba! Pruett brosti breitt. Dougherty tók hægt í hann, og Pruett lagði liendurnar að geimfarinu og ýtti sér frá. Augna- bliki síðar svifu þeir báðir í geimnum burtu frá Mercuryfar- inu, sem vaggaði hægt til og frá. Douglierty tók í Pruett: Við verðum að flýta okkur. Þú hef- ur súrefni í mesta lagi í tiu mín- útur. — Okay! — Gaztu fest línuna vel um þig? — Já. — Renndu þér þá niður, og gríptu utan um mig aftan frá. Ég ætla svo að draga okkur heim! Tilbúinn? — Settu kerruna i gang! Pruett lét sig siga, þar til hann gat gripið utan um mitti Dougherty að aftan og hélt sér þar fast. Svo fann hann kippinn, þegar VIKAN 30. tbi. — gy

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.