Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 23.07.1964, Qupperneq 40

Vikan - 23.07.1964, Qupperneq 40
Jafnan fyrirliggjandi úrval myndavéla íyrir hina vandlátu BESSAMATIC Voigtlander er með innbyggðum ijósmæli og fjarlægðarmæli - bara miða og þrýsta á hnappinn - og þér fáið skínandi Ijós- myndir í hvaða veðri sem er. Vér önnumst líka framköllun, koperingu og Gleymið ekki G E V A E R T filmum í sumarleyfið stækkun á myndum yðar. Fljót og góð afgreiðsla. SÖLUUMBOÐ: GEVAFÓTO H.F. Lækjartorgi, sími 24209. EINKAUMBOÐ FYRIR VOIGTLÁNDER A/G. SVCINN BJÖRNSSON & CO. Garðastræii 35, sími 24204 UMFERÐ I ÖNGÞVEITI Framhald af bls. 12. um, eru sumar merkingar svo misheppnaðar, að þær beinlínis stuðla að slysum. Dæmi: Bilum er leyft að aka af vinstri ak- reinum Skúlagötu, þvert yfir hægri akreinarnar til þess að komast á bensínstöð BP við Skúlagötu. Þeir sem ætla að not- færa sér þessa háskalegu heim- ild umferðaryfirvaldanna, verða að bíða tímunum saman þar til umferð þrýtur hægra megin og á meðan halda þeir á eftir sér iangri röð bíla, sem verður að gera sér að góðu að biða líka. Meðfylgjandi mynd af fjórum bílum í árekstri þarna á þess- um stað, ætti að taka af öll tví- mæli um þessa ráðstöfun. Þetta sama verður á vegi öku- manna um allan bæ: Bílar, sem þurfa að komast út af umferð- aræð, trufla umferðina allt um of. Dæmi: Langholtsvegurinn snýr nokkurn veginn vinkil- rétt á Suðurlandsbrautina, og sem er ekki svo mikið sem einni tommu breiðari þar við gatna- mótin,. Bílar sem beygja inná Langluo ltsveginn byrja að draga úr fer'ð ca. 100 metrum frá gatnamótum og verða að fara mjög hægt undir lokin til þess að ná þessari beygju. Fyrir bragðið verður öll röðin á eft- ir þeim að hemla og draga jafn mikið úr hraða, enda þótt farið sé bein t áfram. Hér þarf að sjálfsogðu að breikka Suðurlandsbrautina á svo sein 100 metra vegalengd sín hvor'um megin við Lang- holtsveg. Þeir sem ætla sér að bcygja úl á Langholtsveginn, aka út á breikkunina áður en þeir byrja að draga úr ferð, til þess að umferðin truflist ekki. Nú er til dæmis hægt að beygja af Miklubraut og til vinstri norður Lönguhlið, án þess að umferð truflist við það. Þannig þarf samgöngukerfið að vera, en það kostar peninga og við höfum hingað til ekki borgað nóg útsvör til þess að standa undir þeim kostnaði, svo við megum sjálfum okkur um kenna að hafa ekki séð þetta sjálf og bætt ríflega við framlög okkar í bæjarsjóðinn, eða hvað? Þá er þriðja hliðin á málinu, sem ekki er eins áþreifanleg og hinar tvær, en hefur þó ugg- laust við einhver rök að styðj- ast: Ökulag og lyndiseinkunn íslendinga. Ekki alls fyrir löngu las ég í bandaríska fréttaritinu Time, lýsingu á ökulagi nokk- urra Evrópuþjóða. Það var ærið mismunandi eftir því sem þar var sagt, en ísland var ekki með á blaði fremur en endra- nær. Frægur nútíma sálfræð- ingur liefur sagt: Þú ekur eins og þú lifir. Ef þú lifir hratt, þá ekurðu lika hratt, ef þú ert þjösni i lund, þé ertu þjösni í umferð, ef þú ert séntilmaður, þá ertu prúðmennskan sjálf við stýrið. Ef þessi kenning stenzt, þá er tillitsemi við náungann ekki hin sterka lilið íslendinga. Og það verður því miður að segj- ast, að alltof fáir séntilmenn virðast hafa valizt til þess að aka vörubilum og öðrum þeim tækjum, sem verða til trafala í umferðinni. Samkvæmt lögunum eru ökumenn þungra farar- og flutningatækja i fullum rétti með að aka á hinum malbikaða mið- hluta Suðurlandsbrautarinnar og Iiafnarfjarðarvegarins. Hinsveg- ar getur það ekki farið framhjá neinum, að utan við malbikið er malborinn vegur. er ekki ennþá farinn að sjá einn einasta þungaflutnings ökumann, sem verður að aka aðeins á 25 km hraða, fara út á þennan mal- borna hluta og liðka þannig fyrir þeim, sem vilja — og ber ef til vill nauðsyn til — að: aka hraðar en á 25 km hraða. Því miður eru séntilmennirnir líka helzt til fáir í röðum leigubíl- stjóra, ég segi þvi miður, vegna þess að það fer tiltölulega mik- ið fyrir leigubílum á götunum. Ég verð alltaf undrandi þegar ég sé atvinnubílstjóra beygja án þess að gefa stefnuljós, beygja út af götu af skakkri akrein og „svina“ eins og það er kallað, en ég held að það sé ekki að halla réttu máli að halda því fram, að það komi oftar fyrir leigubílstjóra en flesta aðra öku- menn. Ef til vill er það sjálf umferðaraðstaðan, sem elur upp það slæma í ökumönnum og að menn verði þá þeim mun tillits- lausari sem þeir aka meira. 40 — VIKAN 30. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.