Vikan


Vikan - 23.07.1964, Page 49

Vikan - 23.07.1964, Page 49
HILLMAN IMP ALGJÖR NÝJUNG FRÁ ROOTES VERKSMIÐJUNUM: EINSTÆÐUR f GERÐ MINNI BIFREIÐA Nú er hægt að fá rúmgóða, þægiíega, sparneytna og ve!byggða, létta bifreið, sem hefur sömu kosti og útlit, sem stór fjölskyldubifreið. Þetta hefur áunnizt með til- komu hins nýja HILLMANS IMP hinni einstæðu „eompact"-bifreið, sem er aðeins 3,53 m. á lengd, drifin nýrri léttri aluminium „DIE-CAST"-vél aftan í, með mjög fullkomnum þar til gerðum girkassa. Hámarkshraði 120 kph. — Sparneytinn jafnvel á miklum hraða. IMP hefur alla kosti kraftmikils afturdrifs, fullkomið hlutfall milli þyngdar og afls og fjölda annarra nýjunga. HILLMAN IMP. HEFUR FENGIÐ FRÁBÆRA DÓMA UM ALLAN HEIM: í DAILY EXPRESS segir meðal annars: „Ég fæ ekki séð hvernig noklcur ökumaður getur stjórnað betri sameiningu, orku og nýtni, en í HILLMAN IMP., einn hugvitsamlegasti smábíll, sem framleiddur hefur verið af brezka bílaiðnaðinum eða jafnvel í heiminum". — Dennis Holins, DAILY EXPRESS. STANDARD HLUTIR í HILLMAN IMP. ERU M.A. MIDSTÖÐ - THRU-FLOW-LOFTRÆSTI- KERFI - RÚBUSPRAUTUR - HURÐARLJÓS - TEPPI Á GÓLFUM - TVÆR SÓLHLÍF- AR - AÐALLJÓSABLIKKARAR OG FESTINGAR FYRiR ÖRYGGISBELTI. LEITIÐ UPPLÝSNGA OG SKOÐIÐ ÞESSA EINSTÆÐU BIFREIÐ ÁÐUR EN ÞIÐ FESTIÐ KAUP ANNARSSTAÐAR. RAFTÆKNI HF. Langholtsvegi 113 — Laugavegi 168. Símar: 20411 & 34402. sagði hann við sjálfan sig. Ef ég hefði verið í flugslysi, hefðu þeir aðeins sagt að þetta væru yfir- borðssár og mar. Ég yrði sendur úr sjúkrahúsinu eftir fáa daga. Það er allt í lagi með mig. Ég komst af úr flugslysinu. Það er sárt, en þetta er ekkert. Hugsaðu um bit- ana og stykkin úr hinum farþeg- unum. Þakkaðu fyrir, hvað þú hefur sloppið vel. Hættu að hugsa um þetta. En bak við þessa sjálfshugg- un var vissan um það, að það var enn ekki komið að sjálfu slysinu. Hann var enn á leið að því og mótstöðuafl hans hafði verið veikt rækilega. Hvenær kæmi að því? Hvernig yrði það? Hversu miklu meira yrði hann að þola, áður en hann kæmi á hinn raunverulega af- tökustað? í myrkrinu framundan höfðu þessir litlu rauðu neistar getað verið missýning, deplar fyrir aug- unum vegna ofþreytunnar. Bond nam staðar og deplaði augunum. Svo hristi hann hausinn. Nei, þessir rauðu deplar voru þarna. Varlega mjakaði hann sér nær. Nú hreyfð- ust þessir deplar. Bond nam aftur staðar. Hann hlustaði. Yfir sinn eigin hjartslátt heyrði hann mjúkt, lipurt fótatak. Þessum rauðu depl- um hafði fjölgað. Nú voru þeir tutt- ugu eða þrjátíu, tifuðu til og frá, sumir hratt aðrir hægt, allsstaðar í þessum svarta hring framundan. Bond teygði sig í kveikjarann. Hann hélt niðri í sér andanum þegar hann kveikti lítinn, gulan logann. Rauðu deplarnir hurfu. í staðinn sá hann fyrir framan sig, svo sem um meter frá sér, grind úr fínum vír, sem lok- aði göngunum. Hann þokaði sér nær og hélt kveikjaranum fyrir framan sig. Þetta var einhverskonar klefi með litlum, lifandi skepnum í. Hann heyrði þær þjóta burt undan Ijós- inu. Um það bil feti frá grindinni slökkti hann á kveikjaranum og beið eftir því að venjast myrkrinu. Meðan hann beið og hlustaði, heyrði hann þessa litlu, smáu fætur koma aftur í áttina til hans, og smám saman safnaðist nær honum skógur af rauðum deplum, sem störðu á hann gegnum netið. Hvað var þetta? Bond hlustaði á hjartslátt sinn. Snákar? Sporð- drekar? Þúsundfætlur Hann beygði sig varlega niður og rýndi á þennan litla, glitrandi skóg. Hann lyfti kveikjaranum upp að andlitinu og kveikti svo snögg- lega á honum. Hann sá litlar klær, sem gripu gegnum netið og hóp af sverum loðnum fótum, loðna kvið- poka og yfir þeim stór skordýrs- höfuð, sem sýndust alþakin augum. Kvikindin flýttu sér frá vírnetinu og hópuðust í hnapp hinum megin í klefanum. Bond rýndi gegnum netið og hreyfði Ijósið fram og aftur. Svo slökkti hann á því til þess að spara eldsneytið. Þetta voru kóngulær, risa- kóngulær, hver um sig þrjár eða fjórar tommur á lengd. Þær voru tuttugu í klefanum. Hann varð ein- hvernveginn að komast fram hjá þeim. Hann lagðist endilangur, hvíldi sig og hugsaði, meðan rauð augun söfnuðust aftur fyrir framan and- lit hans. Hversu banvænar voru þessar skepnur? Hversu mikið af því sem um þær hafði verið sagt var þjóð- saga? Það var víst að þær gátu drepið sumar skepnur en hversu hættulegar mönnum voru þessar risakóngulær með þennan loðna, vingjarnlega feld? Það fór hrollur um Bond.Hann mundi eftir þúsund- fætlunni. Snerting kóngulóarinnar yrði miklu mýkri. Fótatak þeirra á líkamanum yrði eins og vingjarn- legt klapp — þangað til þær bitu og tæmdu eiturkirtlana inn í lík- amann. Enn á ný vaknaði spurningin: Var þetta aftökustaður Dr. Nos? Var ekki aðeins búizt við þvi, að hann fengi eitt eða tvö bit til þess að hannyrði viti sínu fjær af sársauka? Dr. No hlaut að hafa reiknað með því, að fórnarlambið yrði að fara gegnum þennan klefa í myrkri — hann hefði áreiðanlega ekki reikn- að með því að Bond hefði náð sér f kveikjara, heldur yrði hann að þjóta fram hjá þessum rauðu augum, kremja sumar kóngulærnar en finna, þegar bitarmar hinna læstust í hann. Og síðan fleiri bit frá þeim, sem höfðu festst í föt- unum. Og svo kæmi viðþolslaus sársaukinn undan eitrinu. Þannig hafði Dr. No sennilega hugsað þetta — til þess að gera þjáninguna óbærilega. Hvað tæki svo við? Af- tökustaðurinn? En Bond hafði kveikjarann, hníf- inn og vírspjótið. Það eina sem hann þarfnaðist voru stáltaugar og nákvæmni. Bond opnaði kveikjarann hægt og dró kveikinn eins langt upp og hann þorði, til þess að fá stærri loga. Svo kveikti hann og þegar kóngulærnar þyrptust burtu, risti hann vírnetið úr með hnífnum. Svo stakk hann hnífnum aftur upp í sig og skreið gegnum opið. Kóngulærn- ar flúðu eldslogann og tróðust hver ofan á aðra. Bond dró vírspjótið upp úr buxunum og sló með bogn- um endanum í hópinn. Hann sló aftur og aftur og reyndi að drepa sem flestar. Þegar nokkrar kóngu- lærnar reyndu að bjarga sér í átt- ina til hans, veifaði hann Ijósinu að þeim og drap flóttadýrið eitt eftir annað. Bráðlega tóku þær, sem eftir lifðu, að ráðast á hinar dauðu og særðu og það eina, sem Bond þurfti að gera, var að slá aftur og aftur inn í iðandi, blæðandi kösina. Smám saman hætti kösin að iða. Voru þær allar dauðar? Voru ein- hverjar með lífsmarki? Loginn frá kveikjaranum var orðinn mjög veikur. Hann varð að tefla á tvær hættur. Hann teigði sig eins langt og hann gat með spjótinu og ýtti kássunni til hliðar. Svo tók hann hnífinn út úr sér, teygði sig áfram og skar hvítt vírhliðið frá. Hann VIKAN 30. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.