Vikan


Vikan - 26.11.1964, Page 7

Vikan - 26.11.1964, Page 7
MERKJASALA. Kæri Póstur! Er ekki hægt að gera eitthvað við þessu dj .. .eskotans merkja- sölufargani næstum alla sunnu- daga ársins? Maður fær ekki nokkurn stundlegan frið heima hjá sér, eftir að klukkan er orð- in 9 á sunnudagsmorgnana, fyr- ir blessuðum litlu börnunum, sem eru að hringja hjá manni dyra- bjöllunni og reyna að selja merki. M:yður vill kannski styrkja þessi málefni, sem merk- in eru seld fyrir, en það er of mikið að standa í því 5—6 sinn- um á klukkutíma að hlaupa fram og segja: Nei, takk, ég er búin að kaupa merki. Og svo finnst mér svo vont að láta þessi litlu grey fara og kaupa ekkert af þeim, þau verða svo vonsvikin. Hvernig er þetta með lögreglu- samþykktina? Á hún ekki að vera til verndar íbúum borgar- innar, m.a. heimilisfriðnum? Er ekki hægt að banna, að gengið sé í hús með svona drasl, svo mað- ur fái einhvern frið? Góði Póstur, gerðu nú eitthvað í málinu. Anna Bella. — — — Sumir hafa gripið til þess örþrifaráðs, að kaupa merki strax af fyrsta barninu og festa svo merkið á hurðina. Það dugir 99%. MISSKILNINGUR EÐA . . . Kæra Vika! Nú vona ég að þú getir hjálp- að mér, Póstur minn, því ég er alveg í vandræðum. Ég hef ver- ið mikið með ungum manni und- anfarið, og er mjög hrifin af honum. Hann hefur líka virzt hrifinn af mér, og ég hef verið að gera mér í hugarlund þann möguleika að við gætum orðið hjón. Ég er 23 ára gömul og á eina litla dóttur, 3 ára, sem hefur verið uppi í sveit hjá foreldrum mínum. Svo núna fyrir um mán- uði síðan, sagði ég honum frá því að ég ætti dóttur, og þá um- hverfðist hann alveg og kallaði mig öllum illum nöfnum og sagð- ist ekkert vilja meira með mig hafa. Síðan hef ég hvorki heyrt hann né séð, og ég sé óskaplega eftir honum. Ég kem mér ekki til að hringja til hans eða tala við hann, en eitthvað þarf ég að gera til að vita vissu mína um hvort allt sé búið frá hans hálfu. Örvilnuð. — — — Mér sýnist aS það sé lítið fyrir þig að gera. Maður- inn hefur sýnt það í verki að hann vill ekki halda áfram kunn- ingsskapnum, og við því er varla nokkuð að gera. Þú veizt að það þarf tvo til. Kannske þarna sé samt um einhvern mis- skilning að ræða hjá honum, og þá l'innst mér eina ráðið fyrir þig að skrifa honum bréf og út- skýra málið eins og þú getur. Bréf er betra en símtal, því bréf les hann í rólegheitum, en sím- tólinu getur hann alltaf skellt á þig. GJAFIR OG AFMÆLI. Kæra Vika! Það vill svo til, Póstur minn, að sonur minn lítill á afmæli um miðjan desember. Enn sem komið er hefur það ekki skipt neinu máli, vegna þess hve ung- ur hann er (5 ára), en nú kemur að því að hann vill vita hvenær hann á afmæli, og svo heimtar hann auðvitað að afmælisdagur- inn hans sé haldinn hátíðlegur, að hann fái gjafir, gestir komi til hans o.s.frv. En þetta er of nálægt jólunum til þess að hægt sé að halda upp á báðar hátíðarnar. Mér finnst það ekki rétt gagnvart barninu, — okkur foreldrum hans né kunningjum og vinum, sem hann býst við að gefi sér gjaíir bæði á afmæli og jólum. Segðu mér nú Póstur minn, hvernig ég á að bjarga málinu. Rugluð móðir. — — — Þetta er í sjálfu sér ofur einfalt, ef þú ferð að hugsa um það — og efalaust hægt að leysa vandræðin svo öllum Iíki. Sjálfsagt finnst mér að halda upp á afmælisdag barnsins, hvort sem jól eru framundan eða ekki. Það á kröfu til þess eins og önn- ur börn, að eiga hátíðlega af- mælisdaga. Hitt er svo annað mál, að ekki er nauðsynlegt að hrúga í það gjöfum, heldur venja það við hófsemi í þeim efnum á afmælinu. Láta það heldur skilja að jólin séu ávallt fram- undan þegar afmælið kemur, og þá sé frekar von á gjöfum. Ekta silki-fegrunarmeðul Hún er stúlkan, sem notar silki naest húðinni. . . svo hún fær töfrandi lióma . . . Ekta silki andlitspúður . . . Silki dagkrem og silki MINUTE MAKE UP (hún tekur það auðvitað með sér hvert sem hún fer). Aðeins silki þekur svo dásamlega. NÚ f NÝJUM HYLKJUM Stórkostlegt litaúrval Skýrar og eðlilegar varalínur Hinn nýi tízku varalitur frá Helene Rubin- stein er lengri og grennri en annar vara- litur, sem þér hafið áður notað. Árangurinn — þér fáið fullkomnari línur og mjúka áferð á varir yðar með aðeíns einni yfirferð! Reynið hina nýju tfzkuliti. VIKAN 48. tbl. — y

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.