Vikan - 26.11.1964, Page 23
í næsta tölublaði, sem verður jólablaðið í ár,
gefst lesendum kostur á að taka þátt í stór-
glæsilegri verðlaunasamkeppni með þrem
verðmætum vinningum, samtals að upphæð
um 27 þúsund krónur.
Vinningum verður úthlutað fyrir jólin, svo að þrjár íslenzkar fjöl-
skyldur geti haft ánægju af þeim yfir jólin og ætíð síðan.
[jjrTffiiM.ii] Favorit
SJÓNVARPSTÆKI
Þetta tæki er eitt hið bezta, sem þessi verksmiðja framleiðir, en tæki
þaðan eru þekkt fyrir gæði. Myndin á skerminum er eins skýr og frekast
verður kosið, enda leggja framleiðendur mikla áherzlu á það. Allar still-
ingar myndarinnar eru sjálfvirkar, en tóngæði og ljósmagn eru stillt með
þrýstihnapp. Sérstök tóngæði. Verð kr. 18.130,00.
1. verðlaun:
Stórt og glæsilegt sjónvarpstæki af gerðinni
NordniencSe, sem þegar er mjög vinsælt hér
á landi.
2. verölaun:
Fallegt og vandað Nordmende úfvarpstæki.
3. verðlaun:
Nordmende transistor feröaútvarpstæki.
Jafnframt getrauninni, verður notað tækifær-
ið til að biðja lesendur um áiit þeirra varð-
andi efni blaðsins, til þess að ritstjórnin eigi
hægara með að þóknast sem flestum.
Þessi skoðanakönnun verður framkvæmd á
þann hátt, að á getraunarseðlunum verður
jafnframt spurnarlisti og óskað eftir því að
þeir sem senda inn lausn á getrauninni, merki
jafnframt við þærtegundir lesefnis, sem þeim
líkar best.
Slík skoðanakönnun er nauðsynleg hverju því
blaði, sem vill gera lesendum sínum til hæf-
is með efnisval.
Vikan vonast því til að sem flestir taki þátt í
þessari keppni og skoðanakönnun, og sendi
okkur lausnirnar sem fyrst-en þangað til er
tækifæri til að skoða hug sinn um efnisvalið.
Útlit og áferð tækisins er í nánu samræmi við kröfur nútímans, unnið
úr fallegum trjáviði, sem sómir sér vel hvar sem er. Áherzla er lögð á
mikil og eðlileg tóngæði. Tækið er 5 lampa með 4 bylgjuskiptum. Hátalari
sérlega góður. Verð kr. 6.000,00.
er byggt inn í traustan viðarkassa, sem er klæddur fallegu vatnsþéttu
leðurlíki, og hægt að fá það í þrem litum: Sæblátt, svart eða hvítt.
Tækið er byggt bæði fyrir langbylgjur og millibylgjur (Heykjavík og
Keflavíkurflugvöll). Hátalarinn er vandaður og traustur. Tækið gengur
fyrir 6 litlum vasaljósarafhlöðum. Verð kr. 2.680,00.
VIKAN 48. tbl.
23