Vikan


Vikan - 26.11.1964, Side 39

Vikan - 26.11.1964, Side 39
STAÐAN Á SKÁKBQRÐI MYNDLISTARINNAR Framhald af bls. 28. ar byggingar og stórvaxinn trjá- gróður myndar nálega samfellt laufþak yfir allt svæðið. Það er einungis seldur aðgangseyrir að sýningarsvæðinu í heild, en ókeypis aðgangur að sýningarskálunum. Að þessu sinni urðu dómnefnd- ir sammála um að veita aðalverð- launin bandarískum listmálara, Robert Rauschenberg og þrem skúlptorum (Það er ekki hægt að tala um myndhöggvara í þessu sambandi, því myndir þeirra voru vel flestar unnar í málma og ger- samlega óhöggnar), Kemeny frá Sviss, Cascella og Pomodore frá Ítalíu. Málverk Rauschenbergs, ef hægt er að kalla þau því nafni, mundu líklega flokkast undir ,,Pop- art". Þau voru vel flest rúmlega mannhæðar há, samansett úr stór- um niðurrifnum plakötum, en mál- að ofaní og á milli með olíulitum. Það var bersýnilega mikil færni í verkum þessa manns, en ég gat ekki betur séð en að allmargir áhorfendur hristu höfuðin og fynd- izt þetta vera hálfgert plat. Ég get aftur á móti fallizt á það, að vel megi nota ýmislegt í myndir annað en liti úr túpum; það er hinn end- anlegi árangur, sem skiptir máli, það hvort manni finnst myndin góð eða vond sem slík. Mér fundust myndir Rauschenbergs býsna góð- ar. Aftur áfmóti fannst mér land- ar hans margir yrkja án skáld- skapar, ef svo mætti að orði kom- ast. Þar var einn salur fullur af risastórum skiliríum; þau stærstu voru um 6 metrar á breidd og 3 á hæð. Þau voru gerð á þann hátt, að einhvers staðar niðri í horn- unum eða úti við hliðarnar voru nokkur rauð og gul strik, en annars var allur þessi léreftsflötur ómálað- ur. Það var einhver Hollywood- bragur á þessari bandárísku list, reynt að vinna það upp með stærð sem á vantaði með andagiftina. Þar stóð líka klessukeyrður bíll á stalli, eða að minnsta kosti fram- partur af bíl. Listamaðurinn hlýtur sjálfur að hafa ekið bílnum á vegg eða eitthvað þvíumlíkt og gert það allt eftir kúnstarinnar reglum — eða er þetta bara tilviljun og nýju fötin keisarans? Svari hver fyrir sig. A Spáni ríkir gömul og rótgróin hefð í myndlist. Spánska sýning- in var ekki rík af skringilegum uppátektum, en þar var þeim mun meira af góðum listaverkum. Mér fannst hún það langbezta á BIENN- ALE að þessu sinni. Tilbreytingar- rík í bezta lagi, hver maður með mótaðan og mjög svo persónuleg- an stíl, meiriparturinn óhlutlægt en samt í beinu framhaldi af gömlu spönsku meisturunum eins og Goya og El Greco. Á heimssýning- unni í New York hafa Spánverjar vakið athygli fyrir frábæ'ra nú- tímalist, en þeir hafa jafnvel gert enn betur á BIENNALE. Áhrifamest- ur fannst mér Manuel Viola. Það var sem sæi maður inn í óravídd- ir í myndum hans, líkt og væru þar hafdjúp eða himingeimurinn. Það kemur að vísu illa við þá kenn- ingu sumra nútímalistamanna um það, að dýpt sé úrelt fyrirbrigði, dýpt eigi að útiloka, vegna þess að hún komi í veg fyrir að fletirn- ir spili og takist á hver á móti öðrum. Ég minntist einu sinni á þetta við Kjarval og hann sagði: „Stundum er þetta rétt og stund- um rangt. Það er ekki hægt að gefa neinar svona reglur um list- ina." Líklega hefur hann rétt fyrir sér þar. Líklega eiga ítalir einhvern stór- kostlegasta myndlistararf allra þjóða, en stundum hafa orðið krepputímar í listinni hjá þeim, til dæmis á dögum fasistastjórnarinn- ar, sem reyndi líkt og aðrar ein- ræðisstjórnir að sveigja listina í ákveðinn farveg. Nú hafa ítalskir myndlistarmenn náð sér til fulls. Kannske er það of mikið sagt að tala um nýjan Renaisance, en eng- ir leita eins ákaflega nýrra leiða og ítalir. Þar er margt kunnáttu- samlega gert, en stundum skotið yfir markið eins og gengur og ger- ist. Það sem ég man eftir er til dæmis þetta: ,,í minningu Denise Carol" eftir Savelli; hvitar eða hvít- málaðar plötur, hver ofan á ann- arri og hvítir kaðlar á milli. Annar, sem Scialoja heitir, hafði náð mjög sérkennilegri útkomu með þvi að mála gegnum stórgerða blúndu, svipaða þeirri, sem notuð er í sjöl. Risastórar hendur af skilti, letur og málað ofan í, ítalskt afkvæmi Pop-listar, líka hraun og mosi að því er virtist, en höfundurinn hét Meloni. Það minnti talsvert mikið á málara, sem á þessum slóðum kallaði sig Giovanni Efrey: Jóhannes Efri-Ey. Þeir kunna líka að yrkja á léreft, ítalir, en óhugnaðurinn er þeim hugstæður, eða kannske eru það minningar um ógnir stríðsins. Mér eru sérlega minnisstæðar nokkrar myndir eftir Cremonini, mjög fín- legar í formum og litum, speglar og kvenfólk líkt og í draumsýn en einhver óhugnaður í allri fágun- inni. Sama var að segja um mál- arann Guerreschi. Þar voru vopn- aðir Gestapómenn á ferð, birtan var líkust bjarma af sprengingum og yfirleitt var andrúmsloftið lævi blandið í þeim myndum, en þær voru gerðar af kunnáttu og færni. Svo er maður ekki fyrr kominn frá þessum stríðshryllingum, en fyrir verður portrett af konu, stirð- lega málað og klætt í kápu, sem lafir alla leið niður undir gólf, let- ur og tákn í annarri; málað í rauðu 3x11 33 Þetta er einfalt reiknisdæmi út af fyrir sig, en ákaflega athyglisvert þegar skyrta á í hlut. Nýja nylonskyrtan frá okkur, Terella de luxe, sem kemur nú á markaðinn, fæst í þrem ermalengdum innan hvers númers, sem eru ellefu alls. Skyrtan er því í rauninni fáanleg í 33 mismunandi stærðum, en það þýðir einfaldlega, að þetta er skyrta, sem passar á alla. Terella skyrtan er hvít, úr mjög vönduðu ensku efni. Og svo ættuð þér bara að sjá hve falleg hún er — ger- ið það í næstu búðarferð. VÍR tenella. VIKAN 48. tbl. — gg

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.