Vikan - 26.11.1964, Side 47
nákvæmlega klukkustund, verðið
þér fyrir því langversta, sem enn
hefur komið fyrir yður. Verið við-
búinn, kæri vinur.
Það heyrðist lágur smellur, tal-
neminn hafði verið lagður á. Boyce
leit skelfingu lostinn á klukkuna.
Hún var eina mínútu yfir níu.
Kvalirnar í maganum jukust um
allan helming. Hann gleypt í skyndi
eina töflu úr glasinu, sem Red-
man læknir hafði látið hann fá,
og drakk svo mjólk á eftir. Svo
hallaði hann sér aftur á bak í stóln-
um. Eftir klukkustund . . . hvað
mundi þá gerast? Kvalirnar í mag-
anum urðu stöðugt óbærilegri.
Hann las á miðann á töfluglasinu.
i </Ein til fjórar töflur." Hann gleypti
enn eina töflu og saup mjólk á
eftir. Reyndi að vera sem rólegast-
. Ur-
Hver gat það verið, sem ofsótti
hann þannig? Ótal nöfn komu
íram í huga hans, nöfn á konum,
sem hann hafði brugðizt, karlmönn-
um, sem hann hafði beitt brögð-
um. Það var einhvernveginn auð-
veldara að muna þau en nöfnin
á þeim sem hann hafði reynzt heið-
arlegur.
Klukkuna vantaði tíu mínútur í
tíu. Það var eins og magi hans væri
að rifna. Með skjálfandi höndum
kom hann upp í sig tveim töflum
til viðbótar. Drakk mjólkina, sem
eftir var í glasinu.
En á sömu stundu og klukkan
sló tíu, var sem kvalaleiftur færu
um hann allan, sárari og heiftar-
legri en nokkru sinni fyrr. Það var
eins og eitthvert afl væri að tæta
hann sundur, rífa hann í smásnepla
og skelfingin við dauðann heltók
hann. Það var með naumindum að
honum tókst að ná sambandi við
símstöðina.
— Ég . . . heiti . . . Boyce Harper
• . . stamaði hann, og sagði stúlk-
unni síðan heimilisfang sitt. — Út-
vegið mér . . . sjúkrabíl . . . tafar-
laust. . .
Það var um miðnætti. Jean Harp-
er sat í biðstofu sjúkrahússins.
Dr. Philip Redman kom þangað
beina leið úr skurðstofunni. Hafði
ekki gefið sér tíma til að fara úr
hvíta sloppnum. Hún kveikti í síg-
arettu og stakk milli vara honum.
— Tókst skurðaðgerðin? spurði
hún.
— Eins og bezt varð á kosið,
svaraði læknirinn og brosti.
— Hann er með öðrum orðum
dauður, varð frú Harper að orði.
Jean Harper varp öndinni Iétt-
ara. — Heldurðu að komi til nokk-
urra óþægilegra afleiðinga? spurði
hún.
— Nei, svaraði dr. Redman. —
Ég er læknir hans. Ég skrifa dán-
arvottorðið. Þú ert málafærslumað-
ur hans og sérð um uppgjör dán-
arbúsins. Hefurðu komið undan
töflunum, sem eftir voru í glasinu?
— Já. Ég skolaði þeim niður um
snyrtiskálina, svaraði hún.
— Ágætt, þá höfum við ekkert
að óttast.
— Hvernig litist þér á að hafa
fataskipti og koma heim með mér.
Þá skal ég hita okkur kaffi? sagði
hún.
— Það lofar góðu, svaraði lækn-
irinn. — Þetta var heldur óhugn-
anleg skurðaðgerð, svo að ég hef
sannarlega þörf fyrir kaffisopa . . .
★
KVEN- OG HERRA-
PEYSA
Framhald af bls. 4.
27 (28) sm., er fellt af fyrir öxlum
eins og á bakstykkinu.
Hin hliðin prjónuð eins.
ERMAR: Fitjið upp 52 (60) - 64
(70) I. með svörtu garni á prjóna
nr. 3 og prjónið stuðlaprjón, 1 I.
sl. og 1 I. br., 5—6 sm. Takið prj.
nr. 4 og prj. munstur eftir skýring-
armyndinni. Byrjið að prjóna 16.
munsturumferð. (Prj. með svörtu og
hvítu garni). Aukið út 0 (0) — 4 (6)
I. með jöfnu millibili ( fyrstu munst-
urumferð. Aukið síðan út 1 I. í
hvorri hlið með 2 (2VÍ2) — 2 (2V2)
sm. millibili, 13 (11) — 14 (12) sinn-
um. Þegar öll ermin mælist 31 (33)
—35 (37) sm., þá er aukin út 1 I.
báðum megin í annarri hverri um-
ferð, 21 (22) — 17 (18) sinnum.
Þegar 3. munsturbekkur, prjónað-
ur, með svörtu og hvítu garni, hef-
ur verið prjónaður, er litla odda-
munstrið prjónað aftur, sjá mynd.
Takið þá prjóna nr. 3'/2, og prjón-
ið með svörtu garni. Prjónið áfram
þar til öll ermin mælir 53 (55) —
57 59) sm. Fellið af.
Prjónið aðra ermi eins.
Leggið öll stykkin á þykkt stykki,
mælið form þeirra út með títu-
prjónum, leggið rakan klút yfir og
látið þorna.
Saumið saman hægri öxl með
þynntum garnþræðinum. Takið upp
í hálsmál 104 (108) - 114 (118)
I. með svörtu garni á prjóna nr.
3. Takið upp 58 (60) - 68 (70) I.
að framan, 46 ((48) — 48 (50) I.
að aftan og eru þá taldar með
lykkjurnar á þráðunum. Prjónið
stuðlaprjón 6—7 sm. Prjónið háls-
líningu kvenpeysunnar áfram á
prj. nr. 3V2, þar til hún mælist 14
sm. og fellið laust af. Brjótið hana
síðan tvöfalda yfir á réttu og tyllið
niður. Látið lykkjurnar á hálslín-
ingu herrapeysunnar á þráð, brjót-
ið hana tvöfalda inn á röngu, og
saumið lykkjurnar niður, 1 og 1 í
senn, og dragið slðan þráðinn úr.
*
YAXA er óefað vinsælasta
svitameðalið á íslandi og
hinum Norðurlöndunum.
Reynið YAXA strax og þér
munuð sannfærast.
*
HMi Pétars Péturssonor
Suðurgötu 14 — Sími 19062.
VIKAN 48. tbl. — 47