Vikan


Vikan - 26.11.1964, Page 48

Vikan - 26.11.1964, Page 48
MEÐ ÁSTARKVEÐJU FRÁ RÚSSLANDI Framhald af bls. 15. henni alla tilfinningasemi. Roman- offblóðið gat vel hafa æst í henni þró til annarra karlmanna en þeirra rússnesku liðsforingja, sem hún um- gekkst, strangra, kaldra, sjálfvirkra, móðursjúkra og — vegna flokks- uppeldis síns — óþolandi leiðin- legra. Það gat verið satt. Ekkert í útliti hennar afsannaði sögu hennar. Bond óskaði þess, að það væri satt. Síminn hringdi. Það var Kerim. — Nokkuð nýtt? — Nei. — Þá sæki ég þig klukkan átta. — Eg skal vera tilbúinn. Bond lagði á og klæddi sig. Kerim hafði verið ákveðinn þetta kvöld. Bond hafði langað til að vera kyrr í hótelherberginu og bíða eftir því að stúlkan nálgaðist hann — kannske fengi hann bréf, sím- inn myndi hringja, eða hvað sem væri. En Kerim hafði neitað. Stúlk- an hafði verið ákveðin í því, að hún myndi velja sinn tíma og stað. Það væri rangt af Bond að gera henni of auðvelt fyrir. — Það er slæm sálfræði, vinur minn, sagði Kerim. — Engin stúlka vill að draumaprinsinn hennar hlaupi, þegar hún blístrar. Hún myndi fyr- irlíta þig, ef þú létist of auðkeypt- ur. Eftir andlitsmynd þinni að dæma og skýrslunum, sem hún hef- ur lesið, býst hún við að þú hagir þér kæruleysislega — jafnvel með fyrirlitningu. Hún vill, að þú hagir þér þannig. Hún vill ganga á eftir þér, kaupa kossa þína . . . Kerim drap tittlinga . . . Kossa af þessum hranalega munni. Hún hefur orðið ástfangin af hugmynd. Hagaðu þér samkvæmt því. Þú verður að ieika þitt hlutverk. Bond hdfði yppt' öxl- um. — Allt í lagi, Darko. Sennilega hefurðu rétt fyrir þér. Hverju sting- urðu þá upp á í kvöld? — Hagaðu þér eins og þú mynd- ir gera undir venjulegum kringum- stæðum. Farðu núna heim, farðu í bað og fáðu þér að drekka. Vodkað hér er svo sem ágætt, ef þú skolar því niður með Tonlc. Ef ekkert gér- ist, sæki ég þig klukkan átta. Við fáum okkur að borða hjá vihi mín- um, sem ér sígauni. Hann heitir Vavra. Hánn er ættarhöfðingi. Eg verð hvort sem er að hitta hann í kvöld. Hann er einn af beztu heim- ildarmönnum mínum. Hann er að reyna að komast áð þúí, hvér ætl- aði sér að sprengjá uþp skrifstof- una mína. Nokkrar af stúlkunum hans muna dansö fyrir okkut. Ég vil ekki stinga upp á, að þær skemmti þér í einrúmi. Þú' verður að halda sverðinu béittú. Bond var ennþá að brosa að orð- um Kerims, þegar síminn hringdi aftur. Hann tók upp tólið. Það var aðeins bíllinn. Þegar hann fór nið- ur stigana og út að bílnum, varð hann að viðurkenna fyrir sjálfum sér, að hann hafði orðið fyrir von- brigðum. Þeir voru að aka upp hæðina, gegnum fátæklegu hverfin uppi yfir Gullna horninu, þegar bílstjórinn sneri sér við og sagði eitthvað með hlutlausri röddu. Kerim anzaði með einsatkvæðis- orði. — Hann segir, að það sé Lambretta á eftir okkur. Það er einn andlitslaus. Það skiptir engu máli. Þegar ég óska þess, ferðast ég án þess að þeir viti um. Oft hafa þeir elt þennan bíl svo míl- 1 um skiptir og það hefur aðeins verið gúmmíbrúða í aftursætinu. Grunsamlegur bíll gerir sitt gagn. , Þeir vita, að þessi sígauni er vin- ur minn, en ég held, að þeir viti ekki hvers vegna. Það gerir okkur ekkert illt, þótt þeir viti að við ætl- um að slappa af ( kvöld. Það er laugardagskvöld, og þegar vinur minn frá Englandi er í heimsókn, væri allt annað óvenjulegt. Bond leit út um bakgluggann og horfði út á fjölfarið strætið. Bak við sporvagn sást eitt andartak í skellinöðru, sem þegar í stað hvarf á bak við leigubíl. Bond sneri sér fram aftur, sem snöggvast minntist hann þess, hvernig Rússar reka njósnamiðstöðvar sínar — með eins mikla peninga og tæki og hægt er, þar sem brezka leyniþjónustan tefldi hins vegar gegn þeim nokkr- um ævintýramönnum eins og þess- um hér, með gamlan Rolls Royce og börnin ein til aðstoðar. Og þó gat Kerim gert það sem honum þóknaðist í Tyrklandi. Þegar allt kom til alls, var rétti maðurinn kannske betri en rétta kerfið. Klukkan um hálf níu stnönzuðu þeir í miðri langri brekku, í út- hverfi Istanbul, við hrörlegan úti- veitingastað með fáeinum veitinga- borðum á gangstéttinni. Á bak við sást í trjátoppa yfir háan steinvegg. Þeir stigu út og bíllinn ók í burtu. Þeir biðu eftir Lambrettunni, en suð- ið í henni var hætt, því hún hafði ■þegar í stað snúið við og var kom- in áleiðis' niður brekkuna. Þeir sáu aðeins lágvaxinn, feitlaginn mann ,með rykgleraugu. Kerim gekk á undan milli borð- anna og inn í kaffihúsið. Það virtist tómt, en maður nokkur stóð snöggt upp bak við peningakassann. Hann hélt annarri hendinni undir borð- rönd skenksins. Þegar hann sá * komumenn, brosti hann tauga- óstyrkur. Eitthvað skall í gólfið. Hann gekk fram fyrir borðið og Vísaði þeim veginn út bakdyra- megin og yf ir malargangstíg að dyrum í háum veggnum, bankaði einu sinni, opnaði dyrnar og benti þeim að fara inn. Þeir komu inn í ávaxtagarð, þar sem plankaborð stóðu á víð og dreif undir trjánum. í miðjunni var hringlaga terrasódansgólf. j kringum það hengu skrautljós í — VIKAN 48. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.