Vikan


Vikan - 10.12.1964, Síða 15

Vikan - 10.12.1964, Síða 15
 :v, : gægðist inn, sá hann hvar kona nokk- ur og hún hreint ekki af smærri gerfS- inni, stóð við kabyssuna. Hann lét alit vera hvafS hún var ófrifS; kannski var liún helzt til kjálkamikil og höku- löng — en hvenær var kvenmaður skapaður svo, að ekkert mætti að finna? Nei, hað voru ekki neinir af- leitir smíðagallar á henni, ekki sjáan- legir svona í fljótu bragði, nema hvað liún hafði einhvern hnút eða stóra vörtu á enni, rétt ofan við augnabrún- irnar. Og fönguleg var hún, konan, og leit út fyrir að geta tekið til hend- inni, bæði til sjós og lands. Sannkall- aður stólpagripur. . . . — Sæl vertu, sagði Andrés. — Og velkomin i Lónið. —- Sæll sjálfur, sagði konan, og þakka þér fyrir. En það ætla ég strax að taka fram, að við skulum ekki láta það dragast að koma okkur til prests- ins, þvi að ég er af grandvöru fólki, og faðir minn mundi drekkja sér af hryggð og smán, ef hann frétti að ég byggi ein með karlmanni i trássi við boðorðin. — Já, auðvitað, svaraði Andrés og helzt fyrir það, að hann hafði ekki hugmynd um hverju öðru liann ætti að svara. Já, það er skiljanlegt, sagði hann. í sömu svifum kom Pétur, nágrann- inn, inn úr dyrunum. Hann hafði séð það heiman af hlaðinu, þegar Andrés gekk sjö sinnum kringum húsið og hljóp síðasta hringinn, og vissi ná- grrnninn enga skýringu sennilegri á slíku athæfi en að Andrés gamli hlyti að hafa skollið harkalega, ann- aðhvort á hnakkann eða ennið. — Lokaðu dyrunum; liann er nógu afleitur súgurinn hérna, þó að þær séu ekki glenntar upp á gátt, mælti kvenmaðurinn og byrsti sig. Andrés gekk út á hlaðið með ná- grrnna sínum og lokaði dyrunum vel og vandlega á eftir sér. — Þctta er kærastan min, sagði hann. — Iíærastan þín? — Já, hún. . . . það konni vöflur á Andrés, því að auðvitað hafði hann ekki hugmynd um hvað hún hét, ef hún hét þá nokkuð. Hún....... Sæunn litla. Við æthun að skella okkur í það heilaga á sunnudaginn. Næsta sunnudag pússaði presturinn þau, Sæunni og Andrés, saman að lokinni messu. Hann var orðinn gamall og luilkaður, klerktuskan, og gerði ekki minnstu athugasemd við það, að brúð- urin hafði ekki skírnarvottorð hand- bært; hafði og aldrei smámunasamur verið. Nú var Andrés sumsé ekki einmana lengur. Það vantaði ekki heldur, að það lægi vel á honum. Hann gekk raulandi um lnis og hlað og skæl- brosti framan í tilveruna og var upp með sér, nýkvæntur maðurinn. En jiví miður kom það von bráðara á dag- inn að hjónabandið var dálítið ann- að en liann hafði gert sér i hugar- lund. Þau höfðu ekki verið lengi i hnapp- heldunni, þegar eiginkonan gerðist bæði húsmóðir og húsbóndi í Lóni. Það hefði þó kannski verið fyrir sig hve ráðrik hún var, ef hún hefði ekki Framhald á bls. 31. “ 15 og þessvegna vil ég gjarna verða þér að liði. Þig langar til að komast yfir kvenmann, er ekki svo? — Og jamm ojæja, svaraði Andrés. — Það er lóðið, sagði marbendill. Líttu nú á, lagsmaður! Að svo mæltu brá marbendill krumlunni að kverk sér og kom með smáfleyg bláan út úr kjálkastrýinu. Hann setti fleyginn á þóftuna hjá Andrési. — Nú skaltu róa í land, lagsmaður, sagði marbendill, kveikja upp i kabyssunni og kynda hana allt hvað af tekur, snaka þér í sparifötin, setja fleyginn þann arna á eld- húsborðið og skrúfa af honum stúthettuna; fara síðan út og ganga sjö sinnum hring- inn í kringum kumbaldann og farir þú að öllu eins og ég hef sagt þér, þá skal það ekki brcgðast, að það verður kominn kvenmaður á heimilið, þegar þú kemur inn aftur. . . . Er marbendill hafði þetta mælt, renndi hann sér út af borðstokknum og var horf- inn til sins heima á hafsbotni. Andrés damlaði í land og var í þungum þönkum. Næsu dagana liafðist liann ekki að; sagði við sjálfan sig, að þetta væri jú sama tóbakið og auglýsingin, ef nokkuð væri þá að marka marbendil — ekkert að vita livernig kvensnift þetta yrði. En þegar frá leið, varð honum æ oftar hugsað um bláa fleyginn, sem stóð i gluggakistunni. Hann tók fleyginn og hristi hann, en ekki gutlaði vitundarögn á honum og þegar hann bar hann við birtuna, gat hann ekki betur séð en að glerið væri galtómt. Loks rann upp sá dagur, að Andrés tók ákvörðun. Færi svo ólíklega, að mark reyndist takandi á marbendli, þá yrði þarna þó ekki um neitt lögmætt hjónaband að ræða, hugsaði Andrés. Ekki ósennilegt að hann gæti þá haft kvenmanninn lijá sér um hríð til reynslu; sem einskonar ráðskonu. Andrés tókst allur á loft við tilhugsun- ina, og þó að hann væri yfirleitt i seinna lagi að ákvarða sig, var hann ekki að tví- nóna við hlutina, þegar út í það var komið. Hann snaraðist út eftir eldiviði, kynti kabyssuna svo rækilega að liún varð rauð- glóandi á meðan hann var að snaka sér í sparifötin, tók síðan bláa fleyginn og setti liann á eldhúsborðið. Þetta var hátíðleg stund, þótti Andrési. Það fór um hann eftirvæntingarlirollur eins og brúðguma; liann ræskti sig og komst við, þegar hann svipaðist um í subbulegu eldhúsinu. Svo skrúfaði liann hettuna af stútnum á bláa fleygnum, hélt út og tók að þramma hringinn í kringum íbúðarliúsið. Þegar hann hafði þrammað jiannig fimni Iiringi, nam hann staðar og var það skapi næst að hætta við allt saman, en veitti þvi þá athygli, hvað gluggatjölddn voru orðin grútskítug og tuskuleg, tók enn á rás og greikkaði sporið. Hljóp meira að segja við fót sjöunda og síðasta hringinn. Þegar Andrés opnaði eldhúsdyrnar og VIKAN 50. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.