Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 22

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 22
14 Olympíuleikar VETTVANGUR SIGRA 0 G VONBRIGÐA - S:|ÉÍIÍ ' t ' ■■ , /' , 'i mmmm mmm, . ' i’ s s I , , ,v " „í" , í. *•’■'••'* f :jg 'Wfy jg&Mi ' ,: I,,, ' i Nú í haust lauk fjórtándu Olympíuleikunum síðan þeir voru endurvaktir fyrir 68 ár- um í Aþenu. Síðan hafa þeir oftast verið haldnir á fjögurra ára fresti, nema á ófriðar- tímum, að þeir hafa fallið niður. Olympíuleika hefur alltaf verið beðið með eftir- væntingu, ekki sízt af þeim íþróttamönnum, sem snjall- astir hafa verið á hverjum tíma, og litið hafa á það sem hinn mesta hugsanlega heið- ur að sigra á Olympíuleikum. Vikan bregður upp myndum af minnisstæðum atvikum frá liðnum Olympíuleikum og nokkrum svipmyndum frá síðustu leikum í Tokío. Grikkirnir lögðu það í metnað sinn, að kringlu- kastið yrði „grísk grein" á Olympíuleikunum í París árið 1900. Þeir höfðu reynt eftir því sem kostur var að kynna sér aðferðir hinna forn-grísku kringlukastara og höfðu að minnsta kosti ákveðna tækni. En árangurinn var slakur; sá bezti, Versis, sem sést á myndinni kasf- aði aðeins 27,78 m og tapaði fyrir Bandaríkia- manni, sem kastaði heil- um níu metrum lengra. Olympíuleikarnir voru haldnir í París árið 1900 og stóðu að einhverju leyti yfir í heila 5 mánuði. Þá var keppt í ótal greinum eins og til dæmis atrennulausum stökkum. Bezta afrek leikanna var án efa 200 metra hlaup Bandaríkiamannsins Archie Hahn, sem hljóp á 21,6 sek. Það Olympíumet stóð óhaggað í 28 ár. Þá voru allir karlmenn, sem kepptu, með yfirskegg, samtals 1060 manns. Þá vannst 100 m hlaupið á 10,8 sek. og Sioux indíáninn Baxter vann hástökkið, stakk sér á hausinn yfir 1,90 og kom niður á hendurnar. — Maraþonhlaupið varð strax klassisk grein á Olympíuleikum og sá atburður, sem iafnan var beðið með mestri eftirvæntingu. í París höfðu þeir sérstakar vatnsbyssur til þess að hressa hlauparana í hitanum, sprautuðu í andlitið á þeim eins og myndin sýnir. Aþena 1896 - mikill íþröttaandi en AFREKIN SLAKARI EN Á ÍSLENZKU HÉRAÐSMÓTI Takið ykkur stöðu — viðbúnir. . . Hér er sögufrægur riðill í 100 metra hlaupi á hinum fyrstu endurvöktu Olympíuleikum í Aþenu 1896. Sögufrægur vegna þess, að Bandaríkiamaðurinn Thomas Burke kraup niður á hendurnar í startinu og voru menn ekki alveg á eitt sáttir, hvort slíkt væri leyfilegt, en að athuguðu máli töldu dómarar það í lagi, jafnvel þótt einhver vildi leggjast á mag- ann. Burke náði langbezta viðbragðinu og sigraði á 12 sek. sléttum. Þrettán þjóðir sendu samtals 285 íþróttamenn á leikana og áhorfendur voru 80 þúsund. Það var keppt í flestum greinum frjálsra íþrótta, en tækni var mjög ómótuð og árangurinn víðast hvar svo sem á héraðsmótum á [slandi eða lakari. Til dæmis; 400 m hlaup vannst á 54,2, 800 m á 2,11 mín., 1500 m á 4.33,2, 110 m grind á 17,6 sek., hástökk 1,81 m, langstökk 6,35 m, þrí- stökk 13,71 m, spjótkast 54,83 m, stangarstökk 3,30 m og kringlukast á 29,15 m. Farís 1900 FIMM MÁNAÐA SPORT í BOLONGNE- SKÓGINUM 22 — VIKAN 50. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.