Vikan


Vikan - 10.12.1964, Page 24

Vikan - 10.12.1964, Page 24
1936 í Berlin STÖRGLÆSILEGIR OLYMPÍULEIKAR UNDIR STJÖRN NAZISTA. HINIR HREINU ARÍAR GEGN „ÖÆÐRI14 KYNSTOFNUM. 1946 I London og 1952 f Helsinkl ENN HEFUR GEYSAÐ HEIMSSTYRJÖLD OG OFURMENNI EINS OG ZATOPEK HAFA GERT ÞESSA LEIKA MINNISSTÆÐA. Á Olympíuleikunum í London 1948, hin- um fyrstu eftir stríðið, var það greinilegt, að stórveldin tvö í austri og vestri voru líka stórveldi ó íþróttasviðinu. Nú höfðu jafnvel íþróttirnar og afrek íþróttamanna pólitískan tilgang. Mesta athygli í London vakti „tékkneska eimreiðin" Emil Zatopek, sem sigraði í 10 km hlaupi. Tugþrautar- maðurinn Mathias þótti lika mjög snjall og ítalinn Consolini vakti athygli fyrir góð afrek og fróbæran stíl í kringlukasti. Nú komu Bandaríkjamenn í fyrsta sinn fram með nýjan stíl í kúluvarpi, sem markaði tímamót í afrekum, en ( þetta sinn vann Thompson ó 17,12 m. Á leikunum í Helsinki var Zatopek ris- inn, hinn ósigrandi hlaupari, sem vann þrjár gullmedalíur, í 5000 m, í 10 km og maraþonhlaupi. Harðastur var bardaginn í 5 km hlaupinu. Zatopek ruddist fram úr á síðustu beygjunni og við það féll Bretinn Chataway, en „skuggi Zatopeks", Márinn Mimoun fékk ekki við ráðið né heldur þjóðverjinn Schade. Myndin sýnir þá f síðustu beygjunni. Allt fór fram samkvæmt þýzkri nákvæmni og Hitler fylgdist vel með öllu úr heiðursstúku sinni ásamt Göring, Goebbels, Hess og fleirum þekktum nazistafor- ingjum, sem settu heiminn í bál og brand eftir þrjú ár frá þess- um Olympíuleikum. I langstökki fór fram spenn- andi einvígi. Bandaríkjanegrinn Jesse Ovens hafði þegar unnið bæði 100 m og 200 m hlaup til mikillar hrellingar fyrir Hitler og nú keppti hann við Ijóshærð- an Þjóðverja og væntanlega hreinan Aría, Lutz Long, sem var frábær langstökkvari. Hon- um tókst að komast fram úr Owens undir lokin, setti nýtt Evrópumet og stökk 7,87 m. En Owens, sem ef til vill er snjall- asti íþróttamaður, sem nokkru sinni hefur keppt á Olympíu- leikum, tók á því sem hann átti til í síðustu tilraun og sveif 8,06 m. Fullur af viðbjóði yfir- gaf Hitler leikvanginn. Gömul kempa heiðruð. Á Olympíu- leikana í Berlín, árið 1936, bauð Hitler sem sérstökum heiðursgesti, Spiridon Louis, Grikkjanum sem sirgaði í Maraþonhlaupi á hinum fyrstu endurvöktu Olympíuleikum 1896. Louis hafði aldrei keppt áður, en hann var geitahiröir og léttur á sér. Hann gaf sér tíma til þess að fara inn á krá í miðju hlaupi og fá sér hressingu, en sigraði samt með yfirburðum, öllum Grikkjum til mikils fagnaðarefnis. En þegar átti að afhenda Spiridcn Louis verð- launin, þá var hann horfinn norð- ur í fjöll til að sinna geitunum. 24 — VIKAN 50. tþl,

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.