Vikan - 10.12.1964, Side 25
::
wv'i-s:
, ■
; :viSS&-
1956 f Melborne
SILFRIÐ f ÞRÍSTÖKKI
TIL ÍSLANDS, OG
RÖMANTÍK SÍN HVORUM MEGIN
VIÐ JÁRNTJALDIÐ
Öllum eru takmörk sett. Zatopek varð að kyng|a því
í Melbourne, að hann var ekki harðastur lengur.
Hann varð s|öundi í Maraþonhlaupinu og loksins
tókst Mimoun að sigra hann. Vilhjólmur tók silfrið [
þrístökkinu mjög óvænt, O'Brian endurheimti titilinn
í kúluvarpi fró Helsinki, Kuts frá Rússlandi hljóp frá-
bært 10 km hlaup og vann reyndar 5 km líka.
En mesta athygli vakti, að sigurvegararnir í kringlu-
kasti kvenna, Fiktova frá Tókkóslóvakíu og sleggju-
kasti, Harold Connolly USA, felldu hugi saman, en
járntjaldið meinaði þeim samvistir. En með diplómatisk-
um aðgerðum og skilningi á báða bóga, þá laukst
járntjaldið upp í þetta skipti og Fiktova fékk að
flytjast til Bandaríkjanna. Þau kepptu bæði á leikun-
um í Róm og eins nú í sumar í Tókíó, en gekk ekki vel.
Sjá næstu síðu.
1960 i Róm
OLYMPÍULEIKARNIR í BORGINNI EILfFU,
SPRETTHLAUPARARNIR WILMA OG HARY
VÖKTU MESTA ATHYGLI
Nú hefði Hitler átt að sjá, hvað hreinir Aríar geta. Hary var öruggur sigurvegari í 100
m hlaupi á 10,2 sek, Italinn Berutti tók ekki ofan sólgleraugun, en sigraði samt 200 m
hlaupið á 20,5 sek.
En drottning leikanna var „svarta gazellan", Wilma Rudolph frá Bandaríkjunum. Hún
er 1,80 á hæð, spengileg og hefur fallegan hlaupastíl. Hún sigraði 100 m hlaup, 200 m
hlaup og tryggði bandarísku boðhlaupssveitinni sigur i 4x100 m. Frá Abbeseníu mætti ber-
fættur maður úr lífverði keisarans til að hlaupa Maraþonhlaup — og sigraði glæsilega. Hann
heitir Bikila og sigraði aftur í Tokio.
" 25
VIKAN 5tbl.