Vikan


Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 26

Vikan - 10.12.1964, Blaðsíða 26
TOKIO 1964 AFREKSFÓLK I ÖLLUM LENGDUM, ÞYKKTUM OG GÆÐAFLOKKUM OLGA OG HAROLD Þau ganga saman gegnum Ol-borgina og leiðast eins og þau væru á brúðkaupsferð. Olympíurómans? Víst svo. En átta ára gamall. A síðunni hér á undan eru myndir af þeim, þegar þau sigruðu og stóðu upp á sitt bezta. Þau héldust enn í hendur í Tokio — en kom- ust ekki á verðlaunapallinn. ÁSTFÖNGNUST: Hann heldur aðallega til á börum Parísarborgar og æfir sig aldrei eft- ir neinu kerfi. Dýfir sér aðeins ofan í vatnið, þegar honum dettur það í hug. Og kvenfólkið eltir hann á röndum. Hann hefur aðallega hald- ið sig við 100 metrana, en nokkru fyrir Ol. sagði hann við franskan blaðamann, að hann ætlaði að fara líka í 400 metra. Hversvegna? „Tvenn gullverðlaun eru betri en ein............" FEITASTUR: ESCER HINN STERKI Það er ólíklegt, að unglingarnir reyni að Iíkja eftir útliti hans, en þótt hann sé fyrirferðarmikill um miðiuna og með góða undirhöku, er vissara fyrir menn að reyna ekki að kássast upp á hann. Því hann hefur krafta í kögglum — einn sterkustu manna heimsins — Ungveriinn Escer. LÉTTLYNDASTUR: ALAIN GOTTVALLES Siiil? i ;'• :: :■ - : ; ■; •■ :■ , w % "mm ¥ ■: s>. *'v ■■ ■ Í«ÍÍÍSÍÍ3;< STERKASTUR: JURI VASLOV Hann er 28 ára, Rússi, 130 kíló og flugvélaverkfræðing- ur að atvinnu. Hann getur lyft 215 kílóum með réttum handleggium. Hann getur líka drukkið vodka á við hvern annan og ort kvæði. Hér er þessi undarlega samblandaði maður að gera sér glaðan dag með Ameríkananum Schemansky — það er Vaslov til hægri. — VIKAN 50. tbl,

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.