Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 28

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 28
) ÍSLENDINGARNIR HAFA 17 ÞOTUR TIL ÞJÁLFUNAR Langsamlega stærsta slökkvistöð landsins er ó Keflavíkurflugvelli, þar sem umferð flugvéla fer dagvaxandi, og öryggismól eru lótin sitja í fyrirrúmi fyrir flestu öðru. Stöðin hefur 16 stórar bifreiðar og 17 þot- ur til umróða, auk margra annarra stórvirkra tækja til björgunar og slökkvistarfs. Þar vinna um 70 fastir starfsmenn, og helmingur þeirra Islendingar. Sveinn R. Eiríksson flugmaður og slökkviliðs- stjóri segir hér fró ýmsu fróðlegu fró þessum stað, og ekki sizt hvernig honum hefur tekizt að lækka brunatjón þar á vellinum úr 300 þús- und dölum á ári niður í eitt þúsund dali . . . GREIN: GUÐMUNDUR KARLSSON LJÓSM: KRISTJÁN MAGNÚSSON Það var stór og mikil flugvél að undirbúa flugtak á Keflavíkur- flugvelli. Vélin var með hátt á annað hundrað farþega á leið til Bandaríkjanna, þeir voru búnir að spenna um sig beltin og biðu nú eftir því að flugvélin hæfi sig á loft frá þessum eyðilega og kalda stað langt norður í höfum, og flytti þá örugglega og þægilega til heitari landa. — Vélin stóð á brautarenda með alla hreyfla í gangi og flugmennirnir voru að ganga frá síðustu atriðunum áður en þeir gæfu hreyflunum fullt afl og renndu vélinni eftir brautinni. Brottfarar- leyfi var.fengið frá umferðarstjórninni, og flugmað- urinn leit fram á brautina áður en hann gæfi merki um að halda af stað. Hann ætlaði varla að trúa sínum eigin augum, þegar hann sá eldrauðan slökkviIiðsbíl koma æðandi eftir miðri brautinni og stefna til vélarinnar með rauð blikkljós og allt útlit til þess að bílstjórinn væri eitthvað bilaður .... ætlaði hann að aka beint á flugvélina, eða hvað? Það var ekki annað sýnna. Flugmaðurinn hreyfði sneril, sem gaf honum beint samband við flug- turninn, og hrópaði: „Hver and . . . er eiginlega á seyði . . . hvað er þessi brunabíll að þvælast hérna úti á miðri braut, þegar ég hef fengið brottfararleyfi. Rekið hann í burtu undir eins!" — „Slökkviliðsbíll? Ég veit ekkert um það," svaraði flug- umferðarstjórinn.,, Ég skal athuga málið." En bíllin hélt áfram á æðislegum hraða og stefndi beint á vélina. Flugmaðurinn svitnaði af skelfingu þegar hann sá tröllslegan bílinn æða að vélinni, og hverfa undir hana að framan, og beið í ofvæni eftir því að finna og heyra skellinn þegar hann lenti á lendingarhjól- unum, sem hann gat ekki séð úr stjórnklefanum. En ekkert skeði. Hann beið í nokkrar sekúndur og hugsaði með sér að þetta væri sennilega einn af þeim fáránlegu atburðum sem stundum koma fyrir, en eiga kannske enga skýringu, — eða þá að skýringuna væri að finna einhversstaðar niðri á jörðinni, — og ekkert varðaði hann í rauninni um hver ástæðan var. Hættan var liðin hjá og nú gæti hann lagt af stað — en svo sannarlega ætlaði hann að skýra flugstjórninni frá þessu og þeir skyldu fá sín maklegu málagjöld, þessir brjáluðu brunamenn þarna niðri. Það væri nú samt kannske rétt að athuga hvert bíllinn hefði farið, svo að hann gæti gefið nákvæmari skýrzlu um þetta. Hann stóð á fæt- ur, opnaði gluggann við hlið sér og stakk höfðinu út. Vindurinn frá hreyflunum, sem voru í gangi, þreif af honum einkennishúfuna og þeytti henni aftur eftir vélinni, þar sem hún lenti beint á eldrauðum slökkviliðsbílnum, sem stóð kyrr við lendingarhjólin, en allt í kring Framhald á næstu síðu. Þegar þeir kveiktu í þot- unni, þá varð eldurinn svo mikill og snöggur, að Ijós- myndarinn áttaði sig ekki á hlutunum fyrr en slökkviliðs- bílarnir voru komnir og slökkvistarfið byrjað. Hér koma þeir akandi að log- andi þotunni, en ofan á bíln- um eru sprautustjórarnir og beina byssunum sínum að eldinum. Björgunarbíllinn er kominn á staðinn, og sést aðeins á hann lengst til hægri. t 0 Björgunarmaður tekur lít- inn stiga úr bílnum og hleyp- ur með hann beint að stjórn- klefa þotunnar, og hikar ekki augnablik þótt ekki sé búið að slökkva eldinn þar. Björgunarmaðurinn nálg- ast stjórnklefann með stig- ann, en sprautumeistararnir verja hann með byssum sín- um gegn eldinum. ý \ í-:':5 I ■ :: . v <, \ ■. y ; \v'$ '<\ '' - / ■// •%&&& ■ m M ú s-<v V VVíVí:;. | iMSBB VsV' í.'í-íí/ííííí-í:,; ý/’SZ'' .>--j -'T- -vi -Ví. vý vif 'V- ■'• '’ ■’ ; :< ' ; ■-»'■•••*-" ■* M 'v> ,,/^Áfd/ msm < p

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.