Vikan - 10.12.1964, Síða 32
5 stærSir af
kæliskápum.
Sjálfvirk affryst-
ing.
5 ára ábyrgð á
fyrstikerfi.
Algjörlega sjálf-
virk þvottavél
meS suSu.
Tekur 5 kíló af
þurrum þvotti.
Forþvottur.
4 þvotta stilling-
ar.
5 skol.
Þeytlvlnda.
Ódýrasta sjálf-
vlrka þvottavól-
in.
II
>hUPne
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (31. marz — 30. apríl);
Það verður lítið lesið úr stjörnunum í þessari viku
sem nokkru máli virðist skipta. Þó mun vikan
verða happasæl, einkum eldri kynslóðinni og ;. þá
fremur kvenþjóðinni. Laugardagurinn verður: sá
dagur, sem mestu máli skiptir.
Nautsmerkið (21. april — 21. maí):
Þú teflir á tvær hættur og ef að Iíkum lætur ve'rður
bezti kunningi þinn: til að bjarga þér úr klíþunni.
Þú þarft mikið á að halda perlónutöfrum óg hátt-
vísi. FarðU varlega með peninga um helgina.
Heillalitur blátt.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú verður óvenju lánsamur í vikunni, þótt :þú hafir
■ j, ekkl beinlínis til þess unnið. Þótt þér gangi vel nú,
máttu ekki ofmetnast og steypa öllu' fyrir borð.
Þú lendir í skemmtilegu kvöldboði hjá gömlum
kunningjum.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Líklega fer áform þitt frá fyrri viku algerlega út
um þúfur, og máttu hrósa happi, því í rauninni
var þetta ekki skynsamlegt. Þú færð nýstárlegt og
skemmtilegt verkefni að glíma við og verður mjög
upptekinn við það.
eLjónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
■ Farðu að öllu með gát í peningamálum, einkum
skaltu varast að kaupa notaða muni. Vinur þinn
einn er mjög raunamæddur þessa' dagana og muntu
einna bezt til þess fallinn af kunningjum hans að
hressa upp á hann.
Meyjarmerkið (24. ág. — 23. sept.):
Liklega verður þú óafvitandi til þess að koma af
stað deilum innan fjölskyldunnar. Þú skalt ekki
taka það nærri þér því að vanda hjaðnar þetta á
nokkrum dögum. Það ber á nokkurri óþolinmæði
í fari þínu um sinn.
Vogarmerkið (24. scpt. — 23. okt.):
Þessi vika verður mjög svipuð síðustu viku en
augljóst er þó að þú ert að taka framförum á vissu
sviði. Sköpunarhæfileikar þínir og hugmyndaflug
fá mörg tækifæri til að njóta sín. Heillatala kvenna
er 3.
Drekamerkið (24. okt. — 22. nóv.):
Þú lest eitthvað eða heyrir sem verður til þess að
gefa þér skemmtilega hugmynd og verður það til
þess að breyta nokkuð áformum þínum. í þessu
sambandi skaltu einungis varast að gera of marga
hluttakendur með þér.
Bogmannsmerkið (23. nóv. — 21. des.):
Þú munt skemmta þér óvenjumikið og átt það vel
skilið því þú hefur átt annríkt undanfarið. Laug-
ardagurinn er dálítið varasamur fyrir unga fólkið.
Hætta er á að þú fallir í einhverja gildru ef þú
slakar á persónulegu sjálfstæði þínu.
Geitarmerkið (22. des. — 20. jan.):
Þú hefur haft eitthvað á prjónunum undanfarið,
íF* en í síðustu viku varð eitthvað til þess að fresta
því um stundarsakir. En ef þú ert duglegur gætirðu
tekið þráðinn upp að nýju von bráðar. Þú kynn-
ist nýju fólki.
Vatnsberamerkið (21. jan. — 19. febr.):
Þú leggur út í einhverja tvísýnu í vikunni og ef
þú lætur eitthvað annað glepja fyrir þér, meðan
á þessu stendur, er voðinn vís. Eitthvað ber á öf-
und annarra í þinn garð, en þú getur ekkert gert
og skalt heldur ekki reyna það.
Fiskamerkið (2. febr. — 20. marz):
Þetta verður mjög óvenjuleg vika, einkum hvað
öll hjartans mál snertir. Amor verður mikið á
ferðinni, einkum meðal unga fólksins. Þér verða
á einhver mistök, sennilega um miðja viku. Þú
skalt samt ekki kvíða endalokum þess máls.
32
VIKAN 50. tbl.