Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 32

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 32
5 stærSir af kæliskápum. Sjálfvirk affryst- ing. 5 ára ábyrgð á fyrstikerfi. Algjörlega sjálf- virk þvottavél meS suSu. Tekur 5 kíló af þurrum þvotti. Forþvottur. 4 þvotta stilling- ar. 5 skol. Þeytlvlnda. Ódýrasta sjálf- vlrka þvottavól- in. II >hUPne Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (31. marz — 30. apríl); Það verður lítið lesið úr stjörnunum í þessari viku sem nokkru máli virðist skipta. Þó mun vikan verða happasæl, einkum eldri kynslóðinni og ;. þá fremur kvenþjóðinni. Laugardagurinn verður: sá dagur, sem mestu máli skiptir. Nautsmerkið (21. april — 21. maí): Þú teflir á tvær hættur og ef að Iíkum lætur ve'rður bezti kunningi þinn: til að bjarga þér úr klíþunni. Þú þarft mikið á að halda perlónutöfrum óg hátt- vísi. FarðU varlega með peninga um helgina. Heillalitur blátt. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður óvenju lánsamur í vikunni, þótt :þú hafir ■ j, ekkl beinlínis til þess unnið. Þótt þér gangi vel nú, máttu ekki ofmetnast og steypa öllu' fyrir borð. Þú lendir í skemmtilegu kvöldboði hjá gömlum kunningjum. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Líklega fer áform þitt frá fyrri viku algerlega út um þúfur, og máttu hrósa happi, því í rauninni var þetta ekki skynsamlegt. Þú færð nýstárlegt og skemmtilegt verkefni að glíma við og verður mjög upptekinn við það. eLjónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ■ Farðu að öllu með gát í peningamálum, einkum skaltu varast að kaupa notaða muni. Vinur þinn einn er mjög raunamæddur þessa' dagana og muntu einna bezt til þess fallinn af kunningjum hans að hressa upp á hann. Meyjarmerkið (24. ág. — 23. sept.): Liklega verður þú óafvitandi til þess að koma af stað deilum innan fjölskyldunnar. Þú skalt ekki taka það nærri þér því að vanda hjaðnar þetta á nokkrum dögum. Það ber á nokkurri óþolinmæði í fari þínu um sinn. Vogarmerkið (24. scpt. — 23. okt.): Þessi vika verður mjög svipuð síðustu viku en augljóst er þó að þú ert að taka framförum á vissu sviði. Sköpunarhæfileikar þínir og hugmyndaflug fá mörg tækifæri til að njóta sín. Heillatala kvenna er 3. Drekamerkið (24. okt. — 22. nóv.): Þú lest eitthvað eða heyrir sem verður til þess að gefa þér skemmtilega hugmynd og verður það til þess að breyta nokkuð áformum þínum. í þessu sambandi skaltu einungis varast að gera of marga hluttakendur með þér. Bogmannsmerkið (23. nóv. — 21. des.): Þú munt skemmta þér óvenjumikið og átt það vel skilið því þú hefur átt annríkt undanfarið. Laug- ardagurinn er dálítið varasamur fyrir unga fólkið. Hætta er á að þú fallir í einhverja gildru ef þú slakar á persónulegu sjálfstæði þínu. Geitarmerkið (22. des. — 20. jan.): Þú hefur haft eitthvað á prjónunum undanfarið, íF* en í síðustu viku varð eitthvað til þess að fresta því um stundarsakir. En ef þú ert duglegur gætirðu tekið þráðinn upp að nýju von bráðar. Þú kynn- ist nýju fólki. Vatnsberamerkið (21. jan. — 19. febr.): Þú leggur út í einhverja tvísýnu í vikunni og ef þú lætur eitthvað annað glepja fyrir þér, meðan á þessu stendur, er voðinn vís. Eitthvað ber á öf- und annarra í þinn garð, en þú getur ekkert gert og skalt heldur ekki reyna það. Fiskamerkið (2. febr. — 20. marz): Þetta verður mjög óvenjuleg vika, einkum hvað öll hjartans mál snertir. Amor verður mikið á ferðinni, einkum meðal unga fólksins. Þér verða á einhver mistök, sennilega um miðja viku. Þú skalt samt ekki kvíða endalokum þess máls. 32 VIKAN 50. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.