Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 37
útvegar okkur allar gerðir flugvéla
til að kveikja í og æfa okkur á að
slökkva. Þá set|um við brúðu í flug-
mannssætið og spennum hana
fasta, hellum yfir vélina nokkrum
tunnum af bensíni og olíu og kveikj-
um svo í. Síðan er gefið merki og
bílarnir koma akandi á staðinn og
mennirnir slökkva í vélinni um leið
og „flugmanninum" er bjargað."
„Til þessa fáið þið svo gamlar
og ónýtar flugvélar?"
„Það er ekki alltaf svo. í fyrra
var skipt um flugvélategund hér
á vellinum og nýjar og fullkomn-
ari vélar komu hingað, en þær eldri
teknar úr notkun, þótt þær væru
í fullkomnu standi að öðru leyti
en þær þóttu of gamaldags og hæg-
fleygar.
Svo komu þeir hingað einn dag-
inn með 17 þotur í gangi, og spurðu
mig hvar þeir ættu að setja þær.
Eg benti þeim á staðinn, og flug-
mennirnir óku þeim á hreyflunum
út fyrir brautina þar sem við höf-
um okkar æfingar, — drápu á
þrýstiloftshreyflunum, fóru út,
skelltu aftur hlífinni yfir flugmanns-
sætinu, og óku á brott.
Þessar vélar höfum við síðan haft
til að kveikja í og æfa okkur á að
slökkva að vild.
Húsbrunadeildin hefur nokkur
lítil hús, sumt af því hálfgerða
skúra, bragga o.þ.u.l., sem við höf-
um stillt saman þannig að það
myndar eina samfellda heild.
í æfingum förum við þangað
með uppstoppaða brúðu og felum
hana einhversstaðar þarna inni,
svo hellum við bensíni og olíu yfir
og kveikjum í. Verk mannanna,
sem koma á bílunum er þá fyrst
og fremst að finna „manninn",
sem er inni, bjarga honum út, og
síðan að slökkva í húsinu.
Nú, og svo er þriðja deildin, sem
að vlsu hefur fæstum starfsmönn-
um á að skipa, en sem ég legg
mest upp úr, enda hefur þessi deild
náð langsamlega mestum árangri
hvað viðkemur öryggismálum hér
og minnkandi tjóni vegna bruna.
Sú deild nefnist Eldvarnardeild og
síðan hún tók til starfa 1956, hef-
ur tjón vegna bruna minnkað úr
rúmlega 300 þúsund dollurum á
ári í tæplega eitt þúsund dollara
á síðasta ári."
„Eitt þúsund dollara
„Já, sem svarar tæplega 50
þúsund krónum. Það er allt og
sumt. Og þetta er einungis vegna
þess að nú leggjum við mesta
áherzluna á ,,að drepa eldinn áður
en hann kviknar," þ.e.a.s. að varna
því með öllum hugsanlegum ráð-
um að eldur verði laus, — og til
þess höfum við fulla aðstoð yfir-
manna setuliðsins, sem taka mjög
hart á því ef okkar reglum og fyrir-
mælum er ekki hlýtt.
Til merkis um það má benda á,
að ef kviknar í húsi vegna kæru-
leysis eða gáleysis eins manns,
þá verður hann sjálfur að greiða
allan skaðann af því. Þetta trygg-
ir það að menn gæta sín með eld-
inn.
Þeir, sem eru í þessari deild,
hafa óskaplega mikla vinnu fyrir
höndum. Þeir skoða hvert einasta
hús a.m.k. einu sinni á ári. Mjög
mörg mánaðarlega, mörg vikulega
og sum daglega. Allt eftir því hve
hættuleg þau eru, hve verðmæt,
hve mragt fólk gengur þar um
o.s.frv. Oll þau atriði, sem eftir-
litsmanninum finnst ekki vera í
fullkomnu lagi — þegar ég segi
fullkomnu, þá meina ég það í
fyllsta skilningi — skrifar hann það
niður á eyðublað, sem síðan er
sent umsjónarmanni hússins, og
hann fær mánaðar frest til að lag-
færa það sem aflaga hefur farið.
Sé það ekki gert, sem varla kemur
fyrir, þá má hann sannarlega biðja
fyrir sér, því þá taka yfirvöldin
hann í karphúsið. Við höfum ná-
kvæma skrá yfir hvert einasta hús,
hvenær það er skoðað, hvað að
er o.s.frv., og fylgjumst með því
í smáatriðum að allt sé' í lagi. I
öllum þeim húsum þar sem eld-
fimir hlutir eru geymdir, verðmæt-
ir eða fjöldi manns kemur saman,
er sérstök sjálfvirk kerfi, sem annað
hvort gefa til kynna ef hitinn fer
upp fyrir ákveðið stig, ef eldur
brýzt út, eða ef reykjareimur finnst.
Sum kerfin eru þá um leið slökkvi-
kerfi og fást sjálf við að slökkva
eldinn jafnframt því sem þau gefa
okkur merki. Onnur eru ekki
slökkvikerfi, en aðeins til aðvörun-
ar. Svo eru ýmsar gerðjr af öllum
þessum tegundum kerfa, og sum
ákaflega viðkvæm og nákvæm.
Sumsstaðar má t.d. ekki kveikja á
eldspýtu inni í byggingu því þá
fer kerfið af stað.
Allt þetta þurfa eftirlitsmennirnir
að vita, kunna allt um viðhald og
viðgerðir, prófa kerfin vikulega og
ýmislegt annað. Þeir þurfa að vera
vel að sér í öllum reglum og fyrir-
mælum og láta hvergi bilbug á
sér finna, þótt móti blási."
„Æfingarnar hljóta að vera
töluvert hættulegar, Sveinn."
„Að sumu leyti eru þær það, því
lítið sem ekkert má út af bera,
svo ekki hljótist slys af. En öll okk-
ar störf byggjast fyrst og fremst
á öruggu samstarfi, og þeirri vissu,
að hverjum einstökum manni megi
treysta til hins ítrasta. Mennirnir
eru þjálfaðir smátt og smátt frá
algengustu og hættuminnstu störf-
unum, og hæfni þeirra reynd á alla
lund, þar til það kemur greinilega
( Ijós á hvaða sviði þeir eru beztir
og til hvers megi treysta þeim.
Þannig eru allir mennirnir þjálfað-
ir svo að þeir eiga að kunna
og geta Jeyst af hendi öll þau verk,
sem þarf að vinna, en þar að auki
er hver maður í raun og veru sér-
fræðingur í sínu sérstaka fagi, ef
komið hefur í Ijós að þar sé hann
beztur."
„Það er þá greinileg verkaskipt-
ing milli mannanna í eldi?"
„Já, hún er fastmótuð og ákveð-
in. Sumir eru beztir í öllu, sem við-
kemur flugvélum, þekkja vel hinar
ýmsu gerðir og aðstöðu í þeim, eru
kannske snöggir og átakamiklir í
Njótið öryggis óg
friðar um fólin
Stofnið ekki hag fjölskyldunnar
■ hættu vegna gleymsku eða
hugsunarleysis.
Heimilistrygging
er nauðsynleg hverri fjölskykSu,
sem viii búa víð öryggí.
Látið ekki óværtl óhöpp skyggja
á jólagleðína. Kaupið heimllls-
Iryggingu nu þegar.
Komíð eða hringið í síma 17700.
ALMENNAR
TRYGGINGARf
PÓSTHÚSSTRÆTI 9
SlMI 17700
JUpina.
DE LUXE
Ö
F »
I
N fást hjá úrsmiðum ....
---------____________________/
VIKAN 50. tw. — 37