Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 39

Vikan - 10.12.1964, Qupperneq 39
APPELSÍN SÍTRÖN L I M E Svalandi - ómissandi á hverju heimili stuttan tíma. Slíkir menn eru oftast valdir til biörgunarstarfa við flug- vélabruna. Aðrir eru fróðari um bíla, slökkvidælur og aðrar vélar, og veljast þó gjarnan til að stjórna slökkvitækjunum. Sumir sýna sér- staka kunnóttu í reglugerðum og fyrirmælum um eldvarnir, hafa kurteisa en ókveðna framkomu, en þannig þurfa eftirlitsmenn eldvarna að vera. Kostir og gallar koma fljótt í Ijós við æfingar og ó próf- um, og eftir þeirri reynslu eru menn svo valdir til sérstarfa. Þess vegna er það, að æfingar eru raunar ekki hættulegar hjó okkur, því hver mað- ur er þrautþjólfaður í sinu starfi, veit að hann getur treyst næsta manni og hefur reynslu að baki sér til að bregða fyrir sig ef út af ber. Auðvitað er alltaf töluverð spenna í sambandi við æfingar og próf, en það gerir starfið aðeins skemmtilegra og eftirsóknarverð- ara. Strókunum þykir alltaf gaman að æfingum og setja metnað sinn í það að vinna sitt verk eins fljótt og örugglega og frekast er hægt." „En nú eru tveir brunar sjaldan eins, er það ekki . . . ?" „Jú, satt er það. En við reynum að hafa eins mikla tilbreytingu í æfingunum og okkur er unnt, svo að mennirnir æfist við allskonar mismunandi aðstæður. Auðvitað er samt aldrei hægt að gera svo vel að ný aðstaða komi ekki fyrir, en þar verða varla miklar breytingar ó. Aðalatriðið er og verður alltaf hjó okkur að bjarga mannslífum fyrst og fremst, síðan að slökkva eldinn. Og í flestum tilfellum tekst okkur að slökkva eld í flugvél áður en 20 sekúndur eru liðnar frá því við komum á staðinn, og oftast hefur flugmanninum þá verið bjargað nokkru áður." ,,Það er ótrúlegt. Nú er ég hræddur um að þú ýkir dálítið." „Nei, þetta eru engar ýkjur. Ég skal meira að segja sanna þér þetta á eftir. Við förum út á æfingar- svæðið, þar sem flugvélarnar okk- ar eru og kveikjum í einni þeirra. Fyrst hellum við yfir hana nokkr- um tunnum af bensíni og olíu — þú mátt sjálfur segja til um hvernig við gerum það, svo þú haldir ekki að við séum að plata. Síðan kveikj- um við í vélinni og þú skaltu gefa okkur merki og taka tímann frá því við hefjum slökkvistarfið, þang- að til eldurinn er slökktur. Þá kem- ur sannleikurinn t Ijós. En sannleikurinn er lika sá, að 20 sekúntur eru geysilega lengi að líða, ef þú ert fastur inni ( brenn- andi flugvél. Það gætu hæglega orðið þínar síðustu 20 sekúndur. Allavega þínar lengstu." „Það er varla neitt vafamál. Ég hlakka til að sjá æfinguna á eftir. En segðu mér . . . þú varst að minnast á próf hjá mönnunum. Hverskonar próf eru það?" „Eins og ég sagði þér áðan, þá eru æfingar hjá okkur á hverjum degi. Hér er stundatafla fyrir næstu viku, sem sýnir að æfingatími er VIKAN 50. tbl. Heaven Sent ilmkrem, baðpúður og sápa. ú -ú> Apple Blossom baðpúð' ur og baðsalt. Apple Blossom ilmúðun — Handtösku ilmúðari — Handáburður — Bað-' -O vökvi — Baðpúður með Velour-svampi — Bað- og andlitssápa — Hreinsi- krem — Næringarvökvl — Silki-andiitspúður — Silki-krempúður og varalitur. -O- Apple Blossom handáburð- ur — sápa og baðsalt. Ú Apple Blossom gestasápa og ilmolía. AÐ ALLIR VITI Hinn heimsfrægi fegurðarsérfræðingur Helena Rubinstein sclur hér á landi hinar dásamlegu snyrtivörur sínar. Helena Rubinstein lætur sér svo annt um fegurðina að hún hcfir helgað líf sitt rannsóknum á húðinni og notkun fegurðarlyfja. Gjörið svo vel að kynna yður snyrtivörur Helenu Rubinstein.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.