Vikan


Vikan - 10.12.1964, Page 47

Vikan - 10.12.1964, Page 47
UNGFRU YNDISFRIÐ býður yður hið landsþekkta konfekt frá N Ó A. HVAR E R ÖRKIN H AN S NOAI baS er slltef saml lelkurlnn f hénnl Tnd> lsfrfS okkar. Hún hefur falIS ðrklna hana N6a elnhvers staSar f hlaðtnu og heltlr CöSnm verðlaunum handa þclm, sem getur fundlS Brkhuu VerSlaunln eru stór kon- fektkassl, fullur af hezta konfektl, og framlelSandlnn er auSvltaS SœlgœtlsgerB- m N6L SlSast er dreglS var hlaut verBlaunln: Auður Júlíusdóttir Vinninganna má vitja í skrifstofu Bræðraborgarstíg 8 B, Rvík. vikunnar. 50. tbi. J vakt frá klukkan sex. Ég verð ein á skrifstofunni og ég get tekið Spektorinn. Augun ( Bond minnkuðu. Hugur hans geysaði, þegar hann minntist allra þeirra vandamála, sem leysa þurfti. Hvar ætti að fela hana? Hvernig ætti að koma henni út í fyrstu flugvél, eftir að hvarfið hefði uppgötvazt? Það mundi verða áhættusamt. Þeir myndu ekki hika við neitt til að ná henni og Spektornum aftur. Myndu loka götunum að flugvellinum. Setja sprengju í flugvélina. Hvað sem væri. _ Það er gott, Tania. Bond reyndi að vera rólegur. — Við skulum fela þig, og svo förum við með fyrstu vél morguninn eftir. _ Vertu ekki kjáni. Tatjana hafði verið vöruð við því, að það gæti komið að nokkrum erfiðleikum í starfi hennar. — Við förum með lestinni. Austurlandahraðlestinni. Hún fer klukkan níu annað kvöld. Heldurðu að ég hafi ekki hugsað þetta? Ég vil ekki vera mínútu leng- ur í Istanbul en ég má til. Við verð- um komin yfir landamærin í dögun. Þú verður að fá miðana og vega- bréfið- Ég skal ferðast sem konan þín. Hún leit hamingjusöm á hann. — Það verður gaman að því. í ein- um af þessum klefum, sem ég hef lesið um. Þeir hljóta að vera mjög þægilegir. Eins og lítil hús á hjól- um. Á daginn getum við talað sam- an og lesið, og á nóttinni stendur þú á ganginum fyrir utan húsið okkar og gætir þess. _ Andskotakornið að ég geri það! sagði Bond. — En, sjáðu nú til, Tania. Þetta er brjálæði. Þeir hljóta að ná okkur einhversstaðar. Það tekur fjóra daga og fimm næt- ur að komast til London með þess- ari lest. Við verðum að fara ein- hvernveginn öðru vísi. _ Það vil ég ekki, svaraði stúlk- an. — Ég vil ekki fara öðruvísi en svona. Ef þú ert nógu sniðugur, komast þeir aldrei að þv(. Drottinn minn, hugsaði hún. Hversvegna höfðu þeir krafizt þess, að þau færu með lest? En þeir höfðu verið óhagganlegir. Það var góður ástastaður, sögðu þeir. Hún hafði fjóra daga til að koma hon- um til að elska hana. Svo þegar þau kæmu til London yrði allt svo auðvelt. Hann mundi vernda hana. Annars, ef þau flygju beint til London, yrði hún send beint í fangelsi. Þessir fjórir dagar voru alveg nauðsynlegir. Og þeir höfðu varað hana við því, að þeir myndu hafa mann á lestinni til að fylgjast með því að hún færi ekki af. Svo- að henni væri vissara að vera var- kár og fara eftir gefnum skipunum. Drottinn minn! Drottinn minn! Samt langaði hana núna að fá þessa fjóra daga með honum, í litla húsinu á hjólunum. Það var skrýtið. Það hafði verið skylda hennar að koma honum til þess. Nú var það hennar æðsta þrá. Hún horfði á hugsandi andlit Bonds. Hana langaði að rétta honum höndina og fullvissa hann um að þetta yrði allt í lagi; þetta væri skaðlaus Konspiratsia, til að koma henni til Englands,- að hvor- ugu þeirra yrði gert mein, vegna þess að það væri ekki tilgangur- inn með Konspiratsíunni. — Mér finnst þetta nú samt óráð, sagði Bond og velti því fyrir sér, hvernig M mundi bregðast við þessu. — En kannske að það gæti gengið. Ég er með vegabréfin. Við þurfum að fá júgóslafneska áletr- un. Hann leit ákveðinn á hana. — Láttu þér ekki detta í hug, að ég fari í þann hluta lestarinnar, sem fer í gegnum Búlgaríu. Ef þú myndir krefjast þess, héldi ég að þú ætlaðir að stela mér. — Ég ætla að gera það, sagði Tatiana og flissaði. — Það er ná- kvæmlega það, sem mig langar að gera. — Þegiðu, Tania. Við verðum að skipuleggja þetta. Ég verð að ná í miðana og einn manna okkar verð- ur að koma með. Aðeins til ör- yggis. Hann er góður maður. Þér kemur til með að geðjast vel að honum. Þú heitir Caroline Somm- erset, gleymdu því ekki. Hvernig ætlar þú að komast til lestarinnar? — Karolin Simmerset. Stúlkan velti nafninu fyrir sér. — Þetta er fallegt nafn. Og þú ert Mr. Simm- erset. Hún hló glaðlega. — Þetta er gaman. Hafðu ekki áhyggjur af mér. Ég skal vera komin í lestina áður en hún fer. Það er á Sirkeci stöðinni. Ég veit hvar hún er. Það er allt og sumt. Svo þurfum við ekki að hafa meiri áhyggjur. Já? — Hvað nú, ef þig brysti kjark? Hvað nú, ef þeir ná þér? — Þeir ná mér ekki. Allt í einu gazt Bond ekki að því, hve stúlkan var ákveðin og viss. Hvernig gat hún verið svona viss? Kaldur lækur tortryggninnar rann niður eftir hryggnum á hon- um. — Áður en ég sá þig, var ég hrædd. Nú er ég það ekki lengur. Tatiana reyndi að segja sjálfri sér, að þetta væri sannleikurinn. Og það lá við, að það væri rétt. — Nú missi ég ekki kjarkinn, eins og þú kallar það. Og þeir geta ekki náð mér. Ég skil allt mitt eftir á hótelinu og fer aðeins með veskið mitt á skrifstofuna. Ég get ekki skilið pelsinn minn eftir, mér þykir of vænt um hann. En það er fyrir- gefanlegt að koma í pels til skrif- stofunnar á sunnudegi. Klukkan hálfníu fer ég út og tek leigubíl til stöðvarinnar. Og hættu nú að vera með þennan áhyggjusvip. Hún teygði höndina í áttina til hans. _ Segðu, að þú sért ánægð- ur. Bond færði sig aftur upp á rúm- bríkina. Hann tók um hönd hennar og horfði í auga hennar. Drottinn minn hugsaði hann. Ég vona að þetta sé allt í lagi. Ég vona að þessi brjálæðislega áætlun stand- ist. Er þessi dásamlega stúlka gildra? Er hún sönn? Er hún raun- veruleg? Augu hennar sögðu hon- um ekkert annað en að hún væri hamingjusöm, að hún vildi að hann elskaði hana, og hún væri undrandi yfir því, sem væri að gerast. Hún lyfti hinni hendinni og lagði hana um háls hans og dró hann niður að sér. í fyrstu skulfu varir hennar undan hans, en svo greip ástríðan hana og varir hennar sameinuð- ust hans í endalausum kossi. Bond sveiflaði fótunum upp í rúmið. Hann hélt áfram að kyssa hana, tók um vinstra brjóst hennar og hélt því fast meðan hann fann geirvörtuna harðna af þrá í lófa sínum. Svo strauk hann niður eftir kvið hennar. Hún stundi lágt og sneri höfðinu til hliðar. Brár henn- ar titruðu eins og vængir kanarí- fugls. Framhald í næsta blaði. ANGELIQUE Framhald af bls. 19. Hún rak upp stuttan, kurrandi hlátur: — Binmitt. Ert þú kunnugur hefðarkonum, Maitre Vindur? — Stundum. Hann kitlaði hana i nefið með blómi og útskýrði: — Þegar maginn á mér dregst of mikið saman, geng ég á mála hjá Maitre Georges, í baðhúsinu hjá Saint-Nicholas. Þangað fara hefðar- konur til að fá svolitið krydd á tilbreytingarlaust ástarlífið. Og satt er það, ég er ekki fallegur ruddi, eins og Fallegi Strákur, og þjónusta van- nærðs líkama míns er ekki eins vel borguð og þjónusta þessarra þrek- vöxnu og kafloðnu náunga, sem ilma af lauk og svörtu víni. En ég hef aðra stregi á mínum boga. Já, vina mín. Enginn í allri Parísarborg á eins gott safn af örvandi sögum og ég. Það er mjög heppilegt til að koma þeim í rétt skap. Ég læt þessar fegurðardísir hlægja. Það er það, sem konur þurfa framar öllu öðru, góður, hjartanlegur hlátur. Viltu, að ég segi þér söguna af hamrinum og meitlinum? — Ó nei, sagði Angelique fljósmælt. — Gerðu það ekki. Hann virtist snortinn. — Litla vina. Skrýtna, litla vina. Er þetta ekki skrýtið? Ég hef hitt miklar hefðarkonur, sem voru hreint eins og vændiskonur. En ég hef aldrei hitt vændiskonu, sem er eins og mikil hefðarkona. Þú ert sú fyrsta . . . Þú er svo falleg. Rétt eins og draumur. Hlustaðu. Heyrirðu kirkjuklukkurnar á Pont-Neuf? Það er næstum komið hádegi. Myndi þig langa til að fara upp á Pont-Neuf og ná í nokkur epli handa okkur í hádegismat? Og myndirðu kæra þig af vönd af blómum, sem þú gætir hulið fallega, litla andlitið i? Við myndum hlusta á Stóra-Matthiou syngja sönginn sinn og lírukassamanninn snúa sveifinni sinni. Og við myndum gefa lögreglumönninum, sem eru að svipast um eftir mér, til að hengja mig, langt nef . . . — Af hverju ætla þeir að hengja þig? — Vegna þess að . . . Veiztu ekki, að þeir vilja ekkert fremur en hengja mig? svaraði hann undrandi. Hann er dálítið kyndugur, en hann er skemmtilegur, sagði hún með sjálfri sér. Hún teygði úr sér. Hún vildi, að hann héldi áfram að gæla við hana, en hann virtist vera farinn að hugsa annað. — Nú man ég það, sagði hann allt í einu. — Ég hef séð þig áður, á Pont-Neuf. Þú ert ein úr hópi Calembredaine, er það ekki? — Jú, það er rétt. Ég er úr hópi Calembredaine. Hann hörfaði undan eins og hann hefði brennt sig. VIKAN 50. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.