Vikan


Vikan - 30.12.1964, Blaðsíða 45

Vikan - 30.12.1964, Blaðsíða 45
framkvæmdir tekizt ágætlega. Að þessu sinni vannst ekki tími til að fara að Reykhólum og sjá þær merku stofnanir, sem þar eru. Búnaðarskóli Vesturlands er ein- hver stórmerkasta stofnun í landinu á sínu sviði. Er það engin tilvilj- un, að þessi óbrotni minnisvarði um Torfa í Olafsdal skuli vera á Reykhólum. Óvíða er jarðnæði betra né meiri möguleikar til allskonar tilrauna í landbúnaði — ræktun sem öðru — en einmitt á þessu forna höfuðbóli. Jarðhitinn hefur verið notaður með ágætum og er fram- leiðsla garðyrkjuskólans mikil að uppskeru og gæðum. Ef einhverjir eru enn, sem ekki hafa trú á landbúnaði á íslandi, þá ættu þeir að fara vestur að Reyk- hólum og s|á hvað hægt er að gera, þegar þekking og dugnaður fer saman. Frá Búðardal fórum við nýja veg- inn yir Laxárdalsheiði og yfir Hrúta- fjörð, nýju brúna hjá Borðeyri, og síðan veginn norður. Hvenær þessi ferð verður farin, veit ég ekki — en sannfærður er ég um, að hún verður farin. Hvort þetta allt verður svona er ekkert atriði — hitt skiptir meginmáli, að fram- kvæmdirnar verði, að bílferja, brýr og vegir komi — og að alhliða upp- bygging hefjist einmitt á þessum slóðum. Við erum fámenn þjóð í stóru landi og okkur er lífsnauðsyn að taka saman höndum um sam- starf — við verðum að gleyma flokknum en muna eftir þjóðinni. Gisli Sigurbjarnsson. Hvað skeSur á næsta ári? Framhald af hls. 27. Tízkulitur á kadiljákum verður rauðskjóttur, með grænflekkóttu ívafi á undirvagninum. Húsgögn verða steypt í nýjum húsum, eða hlaðin úr plastídýfðu torfi. I stað gólfteppa koma plast- varin moldargólf í öllum litum. Olíu- luktir leysa rafljós af, að mestu. sem nefnist „Súper-stretshx" og ætl- uð er fyrir kvenfólk. Brennivínsmál. Vegna áhrifa Merkúrs verður enginn skortur á genever, eins og áður er sagt, en þurrkar á vatna- svæði Blöndu orsaka blönduskort þegar dregur fram í júlí og Canada Dry og Sevenup hækka í verði í Klúbbnum, en mælibikararnir skorpna og dragast saman. Kúmenskortur verður á suð-vest- urlandi, og flöskusalar fara í verk- fall með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um þegar Neptúnus er í 9. húsi. Vegna sólmyrkvans 30. maí og annars 23. nóvember, er ógern- ingur að sjá meira fram í tímann að sinni, og verður framhaldið því að bíða til ársloka. Því, eins og sjeníið sagði: „Það er afskaplega erfitt að spá, — sérstaklega um framtíðina." Með ástarkveðju frá Rússlandi Framhald af hls. 25. vinnutennisleikara, sem er að koma heim eftir leikferð um fjarlæg lönd. Maðurinn kom nær. Nú horfði hann beint á Bond. Var eitthvað kunnuglegt í augum hans? Bond hugsaði sig um. Þekkti hann þenn- an mann? Nei, hann hefði munað eftir þessum augum, sem störðu svo kuldalega undan fö!um augabrún- um. Þau voru ógagnsæ, næstum dauð. Augu eins og í drukknuðum manni. En það voru einhver skila- boð í þeim til hans. En hvað var það? Þekkti maðurinn hann? Var hann að vara hann við? Eða voru þetta aðeins varnarviðbrögð gegn starandi augnaráði Bonds? Maðurinn gekk frmahjá vagnin- um. Augu hans horfðu beint inn í lestina. Hann gekk framhjá, og gúmmísólaðir skórnir gerðu engan hávaða. Bond horfði á hann taka í handfangið og sveifla sér létti- lega upp þrepin inn í fyrsta far- rýmis vagninn. Allt í einu vissi Bond, hvað þetta augnaráð hafði þýtt, hver þessi maður var. Auð- vitað! Þetta var maðurinn frá leyni- þjónustunni. Þegar allt kom til alls, hafði M ákveðið að senda honum hjálparmann. Það voru skilaboðin í þessum undarlegu augum. Bond var reiðubúinn að veðja hverju sem var, að maðurinn myndi brátt gefa sig fram. Það var alveg eftir M að hafa vaðið fyrir neðan sig! 25. KAFll. HÁLSBÍNDI MEÐ WINDSORHNÚT. Til að auðvelda honum að setja sig í samband, fór Bond fram og staðnæmdist á ganginum. Hann renndi huganum yfir aðgangsorð dagsins, þessar fáu, tilgangslausu setningar, sem breytt var fyrsta hvers mánaðar og þjónuðu sem kynningarmerki milli enskra leyni- þjónustumanna. Það fór skjálfti um lestina, þegar hún lagði af jstað út í sólarljósið. NILFISK verndargólfteppin - því að hún hefur nægilegt sogafl og afburða teppasogstykki, sem rennur mjúklega yfir teppin, kemst undir lægstu húsgögn og DJÚP- HREINSAR jafnvel þykkustu gólf- teppi fullkomlega, þ. e. nær upp sandi, smásteinum, glersalla og öðrum grófum óhreinindum, sem berast inn, setjast djúpt í teppin, renna til, þegar gengið er á þeim, sarga undirvefnaðinn og slíta þannig teppunum ótrúlega fljótt. NILFISK slítur alls ekki tepp- unum, þar sem hún hvorki bankar né burstar, en hreinsar aðeins með rétt gerðu sogstykki og nægilegu sogafli. ASrir NILFISK kostir: * Stillanlegt sogatl * HljótSur gangur * Tvöfalt fleiri (10) og betri sogstykki, áhaldahilla og hjólagrind raeð gúmmíhjólum fylgja, auk venjulegra fylgihluta * Bónkústur, hárþurrka, málning- arsprauta, fatahursti o. m. fl. fæst aukalega. * 100% hreinleg og auðveld tæm- ing, þar scm nota má jöfnum höndum tvo hrcinlegustu ryk- geyma, sem þekkjast I ryksugum, málmfötu eða papírspoka. * Dæmalaus ending. NILFISK ryksugur hafa verið notaðar hér- lendis jafn lengi og rafmagnið, og eru flestar í notkun enn, þótt ótrúlegt sé. * Fullkomna varahluta- og við- gerðaþjónustu önnumst við. * Hagstætt verð. * Góðir greiðsluskilmálar. * Sendum um allt land. ÚRVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA: ATLAS kæliskápar, frystikistur — BALLERUP hrærivélar — BAHCO eld- húsviftur, tauþurrkarar, gufubaðstofutæki — FERM þvottavélar, þeytivindur, strauvélar — GRILLFIX grillofnar — FLAMINGO straujárn, úðarar, snúru- haldarar — ZASSENHAUS rafmagnskaffikvarnir, brauð- og áleggssneið- arar — Hraðsuðukatlar, vöfflujárn, brauðristar, eldhúsvogir, baðvogir o.fl. SÍMI 1-26-06 SUÐURGATA 10 REYKJAVÍK O KORjVERllP HAMIEM F ----------------------------Klippið hér--------------------------------- Undirrit. óskar nánari upplýsinga (mynd, verð og greiðsluskilmála) um: ..................................................................... Nafn .................................................................... Heimili ................................................................. Til FÖNIX IJ„ Suðurgötu 10, Reykjavík.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.