Vikan


Vikan - 30.12.1964, Blaðsíða 17

Vikan - 30.12.1964, Blaðsíða 17
 Þeir voru úrræðagóðir, þessir, og gætu kannske margir farið að ráði þeirra. Þeir eru franskir, báðir — blaða- menn. — Þeir urðu ekki á eitt sáttir um einhverja nýútkomna bók, og létu sér ekki nægja að rífastá pappírnum, heldurtóku þeir sér sverð í hönd og háðu einvígi eftir öllum kúnstarinn- ar reglum. Mandy Rice Davies, — sú sem lenti í skandalnum með Christine Keeler forðum — ku vera með hestadellu, og notar hvert tækifæri sem hún getur til að fó sér reiðtúr. „Eg hef verið með hesta- dellu síðqn ég var ellefu ára," sagði hún í Stokkhólmi um dag- inn, þar sem hún hefur verið í heimsókn og vakið mikla at- hygli karlmanna þar í borg. ,,Ég seldi dagblöð þegar ég var Iftil, til að geta keypt mér hest". En nú þarf hún ekki að kaupa sér hest lengur, því það er sægur af karlmönnum, sem gjarnan vildi lána henni eitt- hvað til að sitja á. Og hver veit nema einhver íslenzkur bóndi væri til með að senda henni reiðskjóta. Annars heitir sá hamingju- sami „Gay Peter" (Pétur káti) •— það er að segja hesturinn á myndinni . . . „Eitt rif úr mannsins síðu ...“ Eitthvað virðast hlutföllin hafa breytzt með tímanum. Til hægri á myndinni sjáum við Venus gömlu frá Milo, — hin er atóm- aldar Venus. Eins og við sjáum er þetta enginn eðlismunur, — aðeins stigmunur. Kjötkássa. Ekki er öll vitleysan eins. f eina tíð voru þeir allra mestir, er gátu troðið sem flestum mann- kertum inn í einn og sama bíl- inn. En þegar sýnt þótti, að til væri eitthvert lögmál varðandi rúmrnál mannsskrokka og inn- anmál bifreiða var að mestu leyti horfið frá slíkum íþróttum. Nýlega ætlaði hópur unglinga að setja met í rúmlegu og það mun- aði ekki um það. 50 manns höfðu vart komið sér haganlega fyrir á dívangarmi, þegar einn af þeim neðstu tók að hrópa á hjálp. Þegar þeir efstu höfðu pillað sig niður kom í ljós, að fjórir þeir neðstu, máttarstólpar kássunnar, höfðu fallið í yfirlið, allir sem einn maður, og einn þeirra kom- iinn ískyggilega nálægt laíida- mörkum lífs og dauða. sýnd er á meðfylgjandi mynd- um. Tveir veiðimenn arka um bæinn með allfrumlega byssu- tegund. Er þeir hafa komizt í gott veiðisvæði hlunka þeir sér niður, hleypa af og tvær kúlur þjóta yfir dúfnaskarann, sem þegar hefur sig til flugs. En kúl- urnar draga á eftir sér net, sem skiljanlega varnar þeim að fljúga mjög hátt og innan stundar er útséð um það, að litlu friðar- postularnir fljúga ekki meira í þessu lífi. Stríð og friður. Þótt dúfan sé víðast hvar tákn friðar, er það þó ekki óvíða sem yfirvöld borga og bæja hafa sagt þessum meinlausu fuglum stríð á hendur. En það er hættulegt að elta þær með byssum inni í þéttbýli. Nýlega varð banaslys í Danmörku, er skot frá dúfna- veiðara missti marks og hljóp í dreng, er stóð þar nálægt. í Frakklandi eru þeir farnir að nota þessa snjöllu aðferð, sem Monroe — Bardot — Cardinale. Fyrst var það MM, síðan kom BB og nú er það CC. Claudia Cardinale er á stöðugri uppleið og kvikmyndadómarar hafa sett hana á lista yfir þá leikara, sem enn verða á toppnum eftir tíu ár. ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ „Konan mín skilur mig ekki.‘‘ Sænski soldátinn, Leif Aldén, sem sendur var í Gæzlulið Sam- einuðu þjóðanna á Kýpur, hefur eflaust búizt við að finna þar tóma fjandmenn, sem hann gæti svo lumbrað á. En annað varð uppi á teningnum í hreppi Mak- ariosar. Þar var fyrir 17 ára grísk stúlka, Maria Paulou, sem sigraði hug og hjarta hins norræna hermanns, og innan skamms opinberuðu þau trúlof- un sína. -— En einn böggull fylg- ir þó skammrifi; hvorugt þeirra skilur annars mál, svo þau hafa hingað til orðið að notast við túlk. VIKAN 53. tbl. 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.