Vikan


Vikan - 30.12.1964, Blaðsíða 18

Vikan - 30.12.1964, Blaðsíða 18
 Vinyl plastáklæði er eins praktiskt og nokkurt áklæði getur verið. Það líkist mjög leðri, en þolir miklu betur hverskonar hnjask en leður. Notkun á því færist mjög í vöxt. Hér eru þýzk stálhúsgögn og „eggið" eftir Arne Jakobsen, yfirdekkt með vinyl. Að þessu sinni birtum við myndir af ýmsum erlendum nýjungum í sófum og stólum. Það verður aldrei um neina kyrrstöðu að ræða á þessu sviði, sífellt er verið að reyna eitthvað nýtt. Helzta breytingin upp á síðkastið er sú, að nú er lögð meiri áherzla á þægindi en áður og það er ef til vill eilítið þyngra yfir hægindunum en var fyrir nokkrum árum. En fjölbreytnin hefur aldrei verið meiri. Hér að ofan er nýjasta nýtt frá Dönum: Dúnmjúkir stólar, yfirdekktir með svörtu leðri, en grind- in úr palisander. Sófaborð og fótaskemlar úr sams- konar grind næst á myndinni. Jg — VIKAN 53. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.