Vikan


Vikan - 18.05.1967, Síða 5

Vikan - 18.05.1967, Síða 5
0 fyrir blaðamennína og íætur hann segja sís. Einnig eru á sviðinu Krist- björg Kjeld, Baldvin Halldórsson, Bríet Héðinsdóttir, Jón Sigurbjörnsson og Ævar Kvaran í hlutverkum blaða- manna frá Sjón- og blindvarpinu, Samtímanum, Dagblaði Alþýðunnar, Góðviljanum og Árdegisblaðinu. Sigríður Þorvaldsdóttir (Dísa), Þóra Friðriksdóttir (móðirin) og Erlingur Gíslason (Loftur). \ M wr nn p minnsta kosti ef maður gleymir því ekki að leikhúsið er leikhús. Á sviðinu er hægt að leyfa sér allt nema að vera klaufalegur. — Er þetta einskonar óperetta? — Eiginlega ekki, en það er mjög mikið af söng í verkinu. Við gætum kallað það músík- alteater, eða musical comedy. —■ Og Leifur. Hvað viltu segja um tón- listina? Er hún ekki mjög módern? — Ég mundi segja að hún væri í engum stíl nema þeim, sem passar við söngleikinn. Annars er bezt að tala ekkert um það fyrr en eftir frumsýningu. Það er erfitt að tala um hluti sem verið er að gera, sem enn eru að mótast. Það halda allir að höfundar séu merkilegir með sig, þegar þeir segja svona nokkuð, en þetta er bara staðreyndin. - Er langt síðan þið byrjuðuð á verkinu? — Það eru ein tvö ár. Við höfum unnið þetta saman frá upphafi, ég tónlistina en Oddur textann. Söngtextana hefur Kristj- án Árnason samið. — Og efnið? — Við vekjum upp djöfulinn, eða réttara sagt gerir Loftur það. — Myndurðu segja að einhverjar fyrir- myndir hafi vakað fyrir ykkur við gerð leiksins? — Nei, ég ætla að vona að hann líkist ekki neinu, nema þá helzt lífinu, samfélag- inu, segir Oddur. — Hvernig skiptist verkið í þætti? — Það er í tveimur meginþáttum, getum við sagt. Sá fyrri er ein heild, sá seinni, sem segja má að sé aðalþáttur leiksins, er í mörgum númerum, sem þó eru auðvitað ná- tengd. — Verður sviðið það sama út í gegn, eða því sem næst? — Það verður aldrei beinlínis skipt um svið, en það er í stöðugri og jafnri þróun út leikinn, þróast með honum. Sama er að segja um tónlistina og auðvitað leikmyndina, sem Gunnar Bjarnason teiknaði. Hún er tölu- vert vandamál, teknískt séð, vegna þessarar stöðugu þróunar, en Gunnari hefur tekizt vel með hana. En nú skulum við líta á nokk- ur atriði úr fyrri hlutanum. Uppi á sviðinu er leikstjórinn, Benedikt Árnason, skrýddur grárri peysu og svörtum gleraugum, farinn að setja leikarana í stell- ingar. Við hendum á lofti heilar og hálfar setningar, sem fólkið á senunni gefur á milli sín eins og handbolta, óklárir á því hversu mikið af því, sem okkur berst til eyrna, til- Framhald á bls. 31. Rabbað sarnan fyrir æfingu. Frá vinstri: Leifur bórarinsson, Carl Billich, Kristbjörg Kjeld. Sigríður í»orvaldsdóttir, Bene- dikt Árnason, lcikstjóri, l»óra Friðriksdóttir og Oddur Björnsson. o Róbert Arnfinnsson, Lárus Ing- ólfsson og Erlingur Gíslason henda bröndurum á milli sín. TEXTI: DAGUR ÞORLEIFSSON. Leifur leiðbeinir Völu Kristjánsson, sem leiðir einn hópinn í leiknum. Burtséð frá tiltölulega fáum aðalhlutverkum koma leikararnir fram í hópum, en ekki sem einstaklingar. Carl Billicli fer yfir eitt söngatriðið ásamt höfundum verksins. 20. tbi. VIKAN 5 k

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.