Vikan - 18.05.1967, Blaðsíða 6
IFERDAIMID
SLÁTURFÉLAG X-
\ SUÐURLANDS f
Hinir landsþekktu greni- og mahogany bc'itar
fró RANABÁTFABRIK A.S.
í eftirtöldum stærðum:
9]/a' - 11%’ - 13' -
15' - 16%'
14%' -
tlBlRUMBSBRAUT 16 • REVRJAVÍK - 8 í MI 3 52
Hraðbátar - Seglbátar -
Gúmmíbátar
AÐ ÞEGJA SAMAN . . .
Kæra Vika!
Mig hefur lengi langað til að
skrifa þér, en aldrei orðið neitt
úr því. Ég leita nú til þín í vand-
ræðum mínum, af því að ég veit,
að þú hefur hjálpað svo mörgum
með vandamál sín. Þannig er
mál með vexti, að ég er búin að
vera mjög lengi með sama
stráknum og við förum oft út
ásamt kunningjum okkar. En það
er eins og við getum aldrei talað
saman. Við tölum bara við hina
krakkana og svona er það oftast
eða alltaf, þegar við förum út.
Þess vegna bið ég þig nú um
gott ráð til þess að leysa þetta
vandamál. Ég er að verða 16
ára, en góða segðu nú ekki, að
ég sé og ung til þess að hugsa
um þetta eða að hætta við strák-
inn, því að ég er mjög hrifin af
honum. Ég er bara búin að fá
leiða á þessari eilífu þögn. Það er
ekki þar með sagt, að við þorum
ekki að tala saman. Vð vitum
bara ekki hvað við eigum að
segja. Óska eftir góðu svari fljót-
lega. Hvemig er skriftin? Með
fyrirfram þökk.
A.Þ.
Það er einmitt merki þess
hversu hrifin þið eruð hvort af
öðru, að ykkur skuli ganga illa
alð tala eðlilega saman, þegar
aðrir eru viðstaddir. Ef þig lang-
ar til þess að tala meira við
hann og kynnast honum betur,
þá skaltu stinga upp á, að þið
farið ein út að skemmta ykkur.
Þið skuluð sitja ein við borð og
þá neyðist þið til þess að tala
saman allt kvöldið. Þegar þið
hafið þannig kynnzt betur, lærið
þið líka að þegja saman, án þess
að finnast þögnin óþægileg. Það
er afskaplega ánægjuleg tilfinn-
ing.
TUNGUHAFT . ..
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig
um að gefa mér upplýsingar. Ég
er með málgalla og á erfitt með
að segja stafinn R. Mér hefur
verið sagt, að það sé tunguhaft,
og að ég eigi að láta klippa það
í burtu. Geturðu gefið mér upp-
lýsingar um það, hvort eitthvað
sé hæft í því, að það sé tungu-
haft. Og ef svo er, verð ég þá að
láta klippa þetta burtu, eða verð
ég að fara í talkennslu og læra
að nota þennan staf? Hvert á ég
að fara til þess? Viltu gera svo1
vel að birta þetta fljótlega ef þú.
getur. Svo þakka ég þér fyrir
alla skemmtun, sem ég hef haft
af því að lesa Vikuna.
Kær kveðja.
Ein í vandræðum.
Það er mjög sennilegt að um
tunguhaft sé að ræða. Að minnsta
kosti er sjálfsagt fyrir þig að
fara strax til heimilislæknis þíns
og láta athuga það. Það er al-
gengt að klippa þurfi burt tungu-
haft á þeim, sem eiga erfitt með
að bera fram vissa stafi eða
hljóð. Þetta er lítilvæg aðgerð
og tekur engan tíma og sjálf-
sagt að láta gera hana til þess
að menn fyllist ekki vanmáttar-
kennd vegna málhelti sinnar.
BARNASKÓLABALL . . .
Kæri Póstur!
Fyrst ætla ég að þakka þér
fyrir allt gamalt og gott. Svo
er mál með vexti, að við erum
hér einn 12 ára árgangur í ein-
um barnaskóla borgarinnar, sem
vijum lokaball. Við erum búin
að fá eitt ball og eina páska-
skemmtun, sem svolítið var dans-
á og svo hver bekkur bekkjar-
kvöld. Hvað finnst þér um þetta?
Á að leyfa okkur þetta eða
banna? Viltu svara þessu sem
fljótast.
P.S. Hvemig er skriftin?
Nemandi.
Þegar við vorum í bamaskóla
tíðkuðust alls engar skemmtanir
nema kannski jólaskemmtun og
þá var ekki dansað, heldur að-
eins gengið í kringum jólatréð.
En við erum náttúrlega orðnir
hundgamlir fyrir löngu og fylgj-
umst ekki Iengur með þróuninni.
Það var einmitt púðrið við að
komast úr barnaskóla og i gagn-
fræðaskóla í gamla daga, að þá
fékk maður að fara á dansæfing-
ar. Og satt að segja erum við
þeirrar skoðunar, að krakkar
hafi bara gott af því að bíða svo-
lítið eftir því að verða fullorðnir.
Það sjá flestir eftir því síðar
meir, ef þeir hafa af sjálfsdáðum
gerzt fullorðnir fyrir tímann og
farið á mis við baraæsku sína.
Þið skuluð láta skólastjórann
ykkar ráða þessu. Ef hann álítui,
að þið hafið þegar fengið nóg af
skemmtunum í vetur, þá skulið
þið vera góð og hlýðin og láta
Það gott heita. Næsta vetur verð-
ið þið hvort sem er komin í gagn-
fræðaskóla og getið sótt dans-
æfingar lon og don. Skriftin er
skemmtilega barnaskólaleg.
6 VIKAN 20- tbl-