Vikan


Vikan - 18.05.1967, Page 31

Vikan - 18.05.1967, Page 31
 Umvefjið húð yðar með hinu dásamlega AVON ilmkremi Yndislegt — mjallhvítt, hverfur inn í húOina og skilur eftir Ijúfan ilm — dularfullan og töfrandi. Veljið úr hinum 7 heimsfrægu ilmkremum frá AVON AYOn COSmETICS LTD NEW YORK • LONDON • PARIS sent til Baldvins á heimili hans á Flókagötu og látið þar inn um bréfrifu. Til þess að skera úr því, hvort samningnum hefði ver- ið löglega sagt upp eða ekki, var skipuð sérstök nefnd. Þegar nefndarmenn fóru að rannsaka málið, gerðu þeir sér lítið fyrir og fóru heim til Baldvins að skoða bréfrifuna. Þeim brá held- ur betur í brún, þegar þeir komu að dyrunum. Þar var nefnilega engin bréfrifa og hafði aldrei verið! Olsen hlær, en bætir síðan við: — Svona getur pólitíkin stund- um verið á íslandi. Fyrir bragð- ið gilti samningurinn í fimm ár í viðbót, en þá var stofnað nýtt fyrirtæki, Húsatryggingar Reykjavíkur, sem hefur séð um tryggingarnar síðan. — Hvar voru Almennar trygg- ingar fyrst til húsa? — Við höfðum fyrst aðsetur þar sem kjörbúð Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga er nú í Austurstræti. En fyrir fáum árum kom Baldvin Einarsson til mín einn laugardagsmorgun og sagði mér, að við gætum fengið keypt hús Nora Magazin við Austur- völl, ef við greiddum verðið út í hönd strax fyrir klukkan eitt sama daginn. Við höfðum lengi verið að svipast um eftir góðum stað í miðbænum, og þarna var gullið tækifæri. Ég boðaði til stjórnarfundar þegar í stað, og gengið var frá kaupunum í tæka tíð. Síðan rifum við gamla Nora Magazin-húsið og byggðum nýtt stórhýsi á lóðinni eins og kunnugt er. Enginn hefur sennilega fagn- að því meir en ég, að einmitt þessi lóð skyldi fást. Þarna var ég aftur kominn á fornar slóðir ... Okkur verður litið á klukku, sem stendur á hillu í veglegri stofu Olsens og sjáum hvort tveggja í senn: að tíminn hefur eins og fyrri daginn liðið allt- of fljótt og að þessi klukka er eitthvað óvenjuleg. — Þetta er merkileg klukka, segir Olsen. Hún á að ganga í 400 ár, án þess að vera dreginn upp. Það eru breytingar á loft- þrýstingi sem halda henni gang- andi. Ég fékk hana að gjöf frá Nathan og Olsen á 75 ára afmæl- inu mínu. Ætli menn hafi komizt nær því að búa til eilífðarvél en þetta? Hann tekur út úr sér vindilinn og hlær. Við kveðjum og þökkum kærlega fyrir spjallið og biðj- umst afsökunar á öllu því ónæði, sem við höfum gert. — Þetta hefði getað orðið betra, segir Olsen að lokum. Það er svo margt, sem gaman hefði verið að rifja upp, en það er svo erfitt að muna allt í einu. Ef við hefðum minnzt á allt, hefðum við sennilega fengið að sjá klukk- una þá arna stöðvast .... Hvað gagnar honum hugsjónin.... Framhald af bls. 5. heyrir leiktextanum eða sprett- ur spontant fram af flugliprum tungum leikaranna. Róbert Arn- finnsson, sem leikur djöfulinn, situr á stól og bíður þess að tínt sé til hans eitthvað fatakyns: hann kemur upp ber greyið, segir Oddur, og verður að byrja á því að fá eitthvað utan á sig. Raunar verður fyrst að kæla hann með því að hvolfa yfir hann úr fáeinum vatnsfötum; hann er nefnilega rauðglóandi þegar hann stingur sér upp úr gólfinu, eins og eðlilegt má kalla ef við höfum í huga hita- stigið í hans heimkynnum. — En það fáum við því miður ekki að sjá, því það er ekki ennþá farið að æfa í búningum. Auðvitað eru svo blaðamenn kallaðir á vettvang, eins og alltaf er gert þegar virðulega erlenda gesti ber að garði. Þeir tínast inn einn af öðrum: frá Góðviljanum, Dagblaði alþýðunnar, Samtím- anum, Árdegisblaðinu, Sjón- og blindvarpinu. Síðan kemur Loft- ur okkar blessaður — leikinn af Erlingi Gíslasyni — þreytulegur og utan við sig eins og eftir raf- magnssjokk, enda tekur það sjálfsagt eitthvað á taugarnar að vekja upp djöfla, svo vel nú sem fyrr. Hann kynnir gestinn fyrir blaðamönnum, segist hafa staðið fyrir um komu hans sökum þess, að fyrst „dyggðirnar hafa leitt okkur á barm Helvítis, er eina von okkar að lestirnir leiði okkur að hliði Himnaríkis.“ Síðan láta blaðamenn — sem eru einskonar kór í gegnum allan leikinn — spurningunum rigna yfir höfð- ingjann, og hann svarár öllu af húmor og lítillæti, eins og hans hefur jafnan verið vandi, móðgast þó næstum þegar hann er spurður hvaða skónúmer hann noti. Hann slettir erlend- um tungum á báða bóga að hætti hoffmanna, lýsir áhuga sínum á þjóðinni að uppteknum hætti erlendra gesta, og glettist við aumingja Dísu, sem Sigríður Þorvaldsdóttir leikur. Fleiri per- sónur úr fyrri verkum um Galdra- Loft koma hér ekki við sögu. Loks stilla þeir, kölski og upp- vaki hans, sér upp til mynda- töku. Sá fyrrnefndi horfir gleið- gosalegur framan í flassið og kiprar augun eins og Ronald Reagan, en Loftur er áfram eins og með hálfan hugann utan við það, sem er að gerast. Svo að skjólstæðingur hans sér sig til- neyddan að minna hann á þá ófrávíkjanlegu skyldu að brosa framan í blaðamenn. — Segðu SÍS, segir kölski. — SÍS, segir Loftur broslaust. Svo skiljum við við þá félaga að sinni, en fáum um leið að heyra að ríkisstjórnin hafi boðið 20. tbi. VIKAN 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.