Vikan


Vikan - 18.05.1967, Page 34

Vikan - 18.05.1967, Page 34
Nýr ogi stærrl DAF Einstakloga falleg, björt og rúmgóð fjölskyidubifreið með stórri farangursgeymslu. DAF - 44 DE LUXE Fullkomlega sjólfskipt, kraftmikil, en sparneytin og sterkbyggð bifreið. Verðið ótrúlega lógt: Kr. 161.941,00. Sýningarbifreið ó staðnum. DRANGAR HF. Sætúni 8 - Sími 24 000. - og fflasan ffer 34 VIKAN 20- tbl- LILiJU LlL'JU LIUU BINDI ERU BETRI Fást í næstu búS ast til botns í þessum atburðum. Deild flughersins, sem hefur með þessi mál að gera er kölluð „Bláu bókar áætlun", og hefur aðeins eitt herbergi til umráða á Wright-Patterson flugstöðinni, og þar hefur einn flugstjóri haft völdin. Þetta sýnir nokkuð hvern áhuga menn hafa haft á þessum fljúgandi diskum í Bandaríkjun- um. Starfsemnn þessarar skrif- stofu, sem eru tveir liðsforingj- ar og einn liðþjálfi, hafa haft það hlutverk að reyna að finna skýr- ingar á þeim tilfellum, sem hafa verið tilkynnt til flughersins. Frá og með árinu 1947 til 1965 hafði þessi skrifstofa fengið tilkynning- ar um 10.147 tilfelli til athugun- ar; 9.501 voru „útskýrð" en 600 voru skráð „óskýranleg". EKKI NÆGILEG RANNSÓKN Þegar ég fór að kynnast þess- um málum, hafði ég það á til- finningunni að þessu hefði ekki verið sinnt sem skyldi, og ég skrifaði bréf þess efnis til flug- hersins, á árinu 1952. Árið eftir var aukið starfið við rannsókn þessara mála, en samt ekki nógu mikið, að minu áliti. Það var skipuð nefnd, undir stjórn þekkts vísindamanns, Howard P. Ro- bertsons. f henni voru nokkrir af þekktustu vísindamönnum Bandaríkianna. Á fjórum dögum rannsakaði þessi nefnd fimmtán skýrslur um fljúgandi diska. Ég var í nefndinni, en ég hafði það á tilfinningunni að ég væri að- eins áheyrandi. Það var skrifuð álitsgerð og niðurstöðurnar voru samhljóða henni, enda hefur það verið sjónarmið flughersins f þessum málum fram á þennan dag, sem sagt: „frásagnir af fljúgandi diskum eru ekki þess virði að sinna þeim frekar“. Ég var ekki beöinn um að skrifa nafnið mitt undir þetta skjal, enda hefði ég ekki gert það, því að skoðun mín var sú að þetta væri alvarlegra rannsókn- arefni en svo, að hægt væri að afgreiða það á þennan hátt, og að í framtíðinni kæmi það í Ijós að nefndin hefði verið nokkuð fljótfær. Á fjórum dögum leystu þeir þær gátur, sem ég hafði ver- ið í fimm ár að fást við, án þess að finna skynsamlega lausn. Þetta ár komu tilkynningar um atburði, sem mér finnst að séu þeir dularfyllstu sem ég hef kom- izt í kynni við á þessu sviði. Það var nóttina 5. ágúst og morg- uninn eftir. Þessar tilkynningar komu frá Black Hawk, S.-Dakota og Bismarck, N.-Dakota. Fjöldi manns í Black Hawk hafði séð röð af lýsandi hlutum á nætur- himninum. Það sem gerði þessar tilkynningar svo sennilegar var það að allir sem höfðu sent þess- ar tilkynningar voru þjálfaðir í athugun á himingeimnum, þ.e.a.s. venjulegir borgarar, sem höfðu það starf að vera á höttunum eftir óþekktum flugvélum og öðru sem ef tii víll væri grunsamlegt. FLJÚGANDI DISKAR Á RADARSKERMI. Á nákvæmlega sama tíma komu einhverjir óþekktir hlutir fram á radarskermi á flugher- stöðinni í Ellsworth, nálægt Black Hawk. Orrustuþota af gerðinni F84, sem var á flugi í grenndinni, var strax send á staðinn þar sem þessi furðulegu fyrirbrigði höfðu sézt, og það leið ekki á löngu þar til tilkynning kom frá flugmanninum um að hann hefði líka komið auga á þetta og að einn hluturinn hefði verið yfir Piedmont, S.-Dakota, og að hann hefði tvöfalt meiri hraða en þotan. Ennfremur til- kynnti hann að þessi hlutur lýsti sterkar en nokkur stjarna sem hann hafði séð. En svo hvarf þetta jafnskjótt. Fimm áhorfend- ur sem höfðu fylgzt með elting- arleik þotunnar, staðfestu þetta. Önnur F84 þota var send af stað eftir furðuhlutnum, sem ennþá var sjáanlegur á radarskermin- um, og sá flugmaður tilkynnti að hann sæi lýsandi hlut, sem ýmist væri hvítur eða grænn, og væri rétt fyrir framan hann, en í nokkuð meiri hæð en þotan. En svo steig þessi hlutur með ofsa- hraða og flugmaðurinn sá strax að það var tilgangslaust að elta hann. Radarþjónustan kallaði þotuna heim og hluturinn var innan skamms kominn út af skerminum. Ellsworth flugherstöðin, sem hafði séð að hluturinn hvarf í norðurátt, hafði samband við eft- irlitsstöðina í Bismarck, 350 km. norðar. Liðþjálfi sem var á þaki byggingarinnar, kom auga á hlut- inn. En flugherinn hafði enga þotu í Bismarck, sem hægt var að senda á stúfana, svo að hann varð að láta sér það lynda, að missa sjónar af þessum furðu- lega hlut. Það var um þetta leyti að nokkrir áhangendur þeirrar stefnu, sem trúðu á fljúgandi diska ,ákváðu að taka málin í sínar hendur. Það var mikil óánægja ríkjandi yfir því að „bláa bókin“ hafði látið undir höfuð leggjast að sinna þessu sem skildi. Það var stofnað félag til rannsókna á þessum fyTÍrbærum, og var það kallað APRO (Aerial Phenomena Research Organ- isation), og er það ennþá starf- andi. Það er líka til annað félag, með sama tilgangi, NICAP (National Investigations Commi- tee of Aerial Phenomena), sem var stofnað löngu senna. ALÞJÓÐLEGT FYRIRBRIGÐI. Með tímanum varð mér það ljóst að „fljúgandi diskar“ voru ekki eingöngu amerískt fyrir- brigði Ég fékk fljótlega tilkynn- ingar frá 70 löndum í hendurnar, og sem vísindamaður hafði ég mikinn áhuga á að bera saman

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.