Vikan


Vikan - 18.05.1967, Qupperneq 37

Vikan - 18.05.1967, Qupperneq 37
áhuga á því sem skeður hjá okk- ur. Uppgötvun okkar á kjarn- orkunni gæti verið full ástæða fyrir því að þeim fyndist það forvitnilegt að fara hingað í rannsóknaferðir. MUNDUM VIÐ VILJA HAFA SAMBAND VIÐ KENGÚR- URNAR? En hversvegna reyna þeir ekki að ná sambandi við okkur? spyrja sumir. Svarið gæti verið eitt- hvað á þessa leið: — Hversvegna ættu þeir að gera það? Mundxun við reyna að ná persónulegu sambandi við nýja tegund af kengúru, sem hefði séð dagsins ljós, einhversstaðar í Ástralíu. Nei, við myndum örugglega ekki gera það, við myndum kynna okkur málið, án þess að reyna til að hitta kengúruna. Er þá eitthvert samband milli fljúgandi diska og lífvera ein- hversstaðar á vetrarbraut okkar? Ég veit það ekki, það eru ekki til neinar sannanir fyrir því. En ég afskrifa það ekki, eins og er. Og svo er líka fjórða skýring- in á „fljúgandi diskum“ mögu- leg: Það gætu verið náttúruund- ur, sem við höfum ekki möguleika á að skilgreina enn sem komið er. Hugsið um það hve þekking okkar á alheimnum hefur auk- ist, síðastliðin 100 ár. Árið 1867 vissum við ekkert um atomork- una, við vissum ekki einu sinni að atomið hefði kjarna. Hvern dreymdi þá um sjónvarp? Hver veit hvaða undur eru framundan? Alla þessa möguleika verðum við að rannsaka vandlega, enda eru slíkar rannsóknir í fullum gangi. í október, síðastliðið ár, var tilkynnt frá flugmálastjórn- inni, að víðtækar rannsóknir á „fljúgandi diskum“ yrðu hafnar við háskólann í Colorado, undir stjórn Dr. Edwards Condon, fyrrverandi forstöðumanns Nat- ional Bureau of Standards. Ég verð að viðurkenna, að per- sónulega er ég svolítið sigur- glaður. Daginn sem þetta var til- kynnt bauð ég konunni minni út, upp á kampavín. Svalablóm Framhald af bls. 47. um mold l ]ieim árlega, eöa a.m.k. endurnýja hana aö mestu leyti. Fylliö eklci kassana alveg, svo aö rœturnar fái nóg rými til aö stækka án ]>ess aö moldin liækki upp fyrir brúnirnar. Þaö þarf aö vera borö á kassanum, þannig aö auövelt sé aö vökva blómin. Sé til- búnum áburöi blandaö í moldina, er gott aö gera þaö nokkru áöur en plönturnar eru settar í..... .. Þegar plantaö er í kassana á moldin aö vera rök en ékki blaut. Gott er aö vökva moldina sólar- hring áöur en plönturnar eru sett- ar í. Þaö á aö nota til þess dága, þegar ekki er of sterkt sólskin og heldur ekki rok. Sé þaö gert á sól- ardögum, er bezt aö þaö sé aö kvöldi. PlantiÖ ekki of snemma út og gætiö þess aö hafa ræturn- ar í sömu hæö í moldinni og þær höföu í sáökassanum, og reyniö aö taka dálítinn moldarköggul meö, svo aö ræturnar veröi ekki fyrir hnjaski. Þrýstiö moldinni vel aö þeim. Gott er aö hafa þunnt lag af mómold eöa grasmold efst, svo aö rakinn haldist jafnari meö- an plönturnar eru aö koma til. Vökviö alltaf aö kvöldi dags, en hafi þurrkar staöiö rnjög lengi þarf stundum aö vökva Uka snemma morguns. Eftir aö blómin eru orö- in mjög stór, getur stundum þurft aö vökva þótt rigning sé, því aö stór blöö geta varnaö því aö drop- arnir komist niöur í mold'ina. Var- izt samt aö vökva of mikiö, en hafi þaö komi öfyrir, veröur moldin aö þorna vel áöur en næst er vökvaö, og séu afrennslisgöt er gott að losa svolitiö frá þeim svo aö vætan leiti hraöar út. Oll fölnuö blóm á aö taka strax burtu. Nái blóm- in aö mynda frœ, liætta plönturn- ar aö blómstra. Heklaðar húfur... Framhald af bls. 47. Heklið þar til 3 1. eru eftir af umferðinni, heklið þá saman 2 1. og hekl. síðan 1 fastal. Tak- ið þannig úr í annarri hv. umf. þar til 5 — 4 — 5 — 4 fastal. eru eftir. Hekl. þá.l umf. án úr- taka. Takið síðan úr í næstu umf., og heklið 2—1 — 2 — 1 fastal. Hekl. 1 fastal. til baka. Hekl. í allt 6 stk. á þennan hátt, 3 af hvorum lit, og saumið þau saman frá röngu með þynntum garnþræðinum og aftursting, og notið j aðarlykkj urnar í saum- för. Hekl. síðan í hring í kringum kollinn frá réttu með heklunál nr. 5 og grunnlitnum í allt 84 — 87 — 90 — 93 fastalykkjur. Hekl. 1 umf. án úrtaka, en takið síðan úr 1 1. við hvern saum. Heklið í allt 5 umf. með úrtökum, og ath. að úrtökurnar standist á. Húfa án skyggnis: Hekl. 3 — 3 — 3 — 4 umf. fastahekl, án úrtaka, og að lokum 1 umf. keðjuhekl. Húfa með skyggni: Hekl. 4 — 4 — 4 — 5 umf. án úrtaka. Skyggni: Heklið fastah. frem- ur þétt með heklunál nr. 4y2 og grunnlitnum. Hekl. aðeins yfir 28 — 30 — 30 — 32 miðlykkj- urnar. Aukið út í 1. umf. með því að hekla tvisvar í 4. hv. lykkju. Heklið umf. til baka án aukn- inga. Takið síðan úr 1 1. báðum megin á sama hátt og á kollin- um, fyrir innan endalykkjurnar. í næstu umf. er einnig tekið úr á sama hátt, en jafnhliða auk- ið út í 4. hv. 1. eins og í 1. umf. Hekl. næstu umf. án aukninga, en takið úr fyrir innan enda- lykkjurnar eins og áður. Klippið á þráðinn. Heklið síð- an frá réttu 1 umf. fastahekl yf- ir skyggnið, og keðjuhekl. áfram umferðina að aftan. DANISH GOLF Nýr stór! gódur smávindill Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram- leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór! SmávindilljSemánægja eradkynnast.DANISHGOLF er framleiddur af stærstu tóbaksverksmidju Skandina- viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski smávindill. Kauþid í dag DANISH GOLF íþægilega 3stk. pakkanum. SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY DENMARK 20. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.