Vikan


Vikan - 16.05.1968, Síða 8

Vikan - 16.05.1968, Síða 8
r r Bíla itvarpstiki PHILIPS loftnetsstenpur Sven Agc Larsen, leikstjóri. Hátilarar Byliiibreytar ívrir bíla oo bátabyloin ísett sandsanrs ÁBSÁBYROB ILJÍMil Skiptiolti 9 sfmi 10278 V____________________;____) ARWA SOKKABUXUR FALLEGAR STERKAR ÓDÝRAR teen-hose ARWA A R W A ER MERKIÐ SEM TRYGGIR BEZTU GÆÐI FYRIR BEZTA VERÐ. V- ___________________________________/ BROSANDILAND SÝNT í ÞJÓÐLEIKHÚSINU Stina Britta Melander. Ólafur Jónsson, óperusöngvari. Þann tíunda maí næstkomandi frum- sýnir Þjóðleikhúsið söngleikinn Bros- andi land eftir Franz Lehár, sem er meðal frægustu verka þess tónsmiðs, hið nafnkunnasta er að sjálfsögðu sú margumtalaða Káta ekkja. Með aðal- hlutverkin fara þau Ólafur Þ. Jóns- son og Stina Britta Melander. Bæði eru þau íslenzkum leikhúsgestum vel kunn áður. Ólafur nam leiklist í Leik- skóla Þjóðleikhússins, söng hjá Guð- mundi Jónssyni og fleirum og hélt því námi ófram í Vín og víðar. Hann lék Rodolpho í Horft af brúnni eftir Arthur Miller, þegar það var sett á svið í Þjóðleikhúsinu, og þar fór hann einnig með hlutverk Erich Siedlers i Sumri í Týrol eftir Hanz Múller og Ralph Benatsky. Und- anfarið hefur hann verið fastráðinn við óperuna í Lúbeck og getið sér þar góðan orðstír; hefur hann meðal ann- ars farið þar með sama hlutverkið og nú í Brosandi iandi. Stinu Brittu ætti ekki að þurfa að kynna fyrir íslendingum, svo oft sem þessi víðfræga prímadonna hefur heiðrað okkur með návist sinni og söng. Við munum hana sem Gildu í Rigoletto, Neddu í I Pagliacci, Nætur- drottninguna í Töfraflautunni að ógleymdri Hönnu Glawari í Kátu ekkjunni. Stina er nú annars fast- ráðin við Berlinaróperuna. Af öðrum listamönnum, sem koma við sögu í Brosandi Iandi nú í vor, má nefna þau Eygló Viktorsdóttur, Hjálmar Kjartansson, Ævar Kvaran, Arnar Jónsson, Val Gíslason og Bessa Bjarnason. Leiktjöld gerir Lárus Ingólfsson og hljómsveitarstjórn ann- ast Bodan Wodizcko en leikstjóri verður Sven Áge Larsen, sem er heldur enginn nýgræðingur hérlend- is; þetta er í sjötta sinnið sem hann kemur hér upp á hið kalda Island. Þótt hann sé fæddur af dönsku for- eldri og meira að segja í kóngsins Kaupinhafn. þá er hann alþjóðlegur sem listamaður; hefur farið með leik- stjórn og dansað ballet í ellefu þjóð- löndum vestan og austan Atlantsála. Við skruppum niður i leikhús og náð- um sem snöggvast tali af Sven Age, eða Sveini Áka, eins og kalla mætti hann á íslenzku, rétt í þann mund og hann var að hefjast handa um æfingarnar ásamt aðstoðarleik- stjóra sínum, Baldvin Halldórssyni. Áður hefur hann sett hér upp Kátu ekkjuna og My Fair Lady, Sumar i Týról og Kysstu mig Kata. Hann sagði okkur að þessir söngleikir af eldri gerðinni væru einmitt sitt uppáhald, enda hefur hann sett ótal þeirra á svið í þeim löndum er hann hefur dvalið í og starfað, þar á meðal flesta þeirra er hér hafa verið nefndir. Með- V 8 VIKAN 19 tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.