Vikan


Vikan - 16.05.1968, Side 49

Vikan - 16.05.1968, Side 49
RÁÐRÍKUR OG KALDLEGA ÞENKJANDI MAKI. í ástum er nautið ekki viðlíka eins ófyr|irle|itið og hrúturinn. Það gerir að vísu lítinn greinar- mun tilfinningar og fýsnar, en það tekur það góða stund að fella hug til einhvers; nemur ósjaldan staðar eða snýr við á miðri leið. Festi það á hinn bóginn seint og um síðir ást á einhverjum, þá er það mesta tryggðatröll á því sviði sem fleirum. En það er ráð- ríkt gagnvart maka sínum og vill annað tveggja eiga hann heilan og óskiptan eða ails ekki. Marz-naut geta orðið háska- gripir á sviði ástarinnar sem víð- ar; hneigjast stundum til hömlu- lauss kynsvalls. Karlmaður fæddur í nauts- merki er annars að jafnaði prýð- is eiginmaður, góður og nærgæt- inn við konu sína og umgengst hana, bókstaflega talað, sem sinn „betri helming". Missi konunnar tekur hann sér mjög nærri og sækir þá oft á hann þunglyndi alvarlegs eðlis. Kynmök eru sögð tíðari í ektalífi nautmenna en annars fólks. Nautkonan er einnig þægileg- heita ektamaki; ósjaldan frískleg og rjóð með spékoppa í kinnum. Hún er náttúruelskari og blóma og prýðir heimili sitt smekklega. Hún er frábær móðir, og kynlífið er henni ekki síður mikilvægt en karlmanni sama merkis. Oft tek- ur hana þó æðitíma að læra að njóta kynlífsins til fulls, en með- an á þeim biðtíma stendur er hún að jafnaði ágætis vinkona, plat- ónskt séð. ÞOLINMÆÐIN ÞRAUTIR VINNUR ALLAR. Því miður er hugsanlegt að út af þessari lukku bregði ef ýmis stjörnuáhrif eru í verra lagi. T.d. eru þeir máninn og Satúrn- us stundum slæmir með að hindra eðlilega þróun í kynlífi nautkon- unnar. Þetta er afleitt fyrir hana, því næsta litlar líkur eru til að hún þoli lengi við án holdlegrar ástar. Slík vöntun getur hæglega orðið heilsu hennar skaðleg, auk þess sem hið andlega jafnvægi rýkur lönd og leið. Sem betur fer verður hið margumtalaða þol- gæði nautmennisins oft til bjarg- ar því kvenfólki, sem í slíkum leiðindum lendir. Nautkonan er sérlega smekk- vís í klæðaburði en jafnframt tildurslaus; fer vel með það sem hún á. Öfgar kynsystra sinna í hrút. og vatnsberamerki á þessu sviði er hún laus við. Hún er í fyllsta máta kvenleg í kæðaburði; sækist eftir gljáandi silkiefnum og hefur gaman af víðum kjólum. Satúrn-nautkonur hneigjast meira til íhaldssemi en aðrar hvað þetta snertir; halda lengi tryggð við gömlu fötin sín og hirða aldrei um duttlunga tízk- unnar. Þær ættu því að vera til- valdar draumadísir fyrir þá karl- menn, sem hryllir við kvenkyn- inu sökum þess að það sé fyrir- hafnarsamt og kostnaðarsamt í rekstri. dþ. Skriftin kemur.... Framhald af bls. 27 — Hvernig er með blokk- skrift, er hægt að lesa úr henni? — Já, að mestu. Maður getur í rauninni lesið úr hvaða skrift sem er, meira að segja hraðrit- un. Það er að minnsta kosti hægt að lýsa tilfinningalífi viðkom- andi manneskju. Það er svo ein- kennilegt, að rétta tilfinninga- lífið kemur alltaf í ljós, hvernig sem menn skrifa. Og þó að þeir séu að reyna að falsa og breyti stöfum og stafagerð, þá geta þeir aldrei falsað sitt tilfinningalíf. Á þessu flaska margir. — Nú er öllum bömum kennt að skrifa eins í barnaskóla. — Já, og fyrstu árin fylgir barnið forskrift kennarans mjög nákvæmlega. Meðan það gerir það, er eiginlega ekki hægt að lesa úr skrift þess. En þegar barnið eldist og þroskast, fer það að skrifa frá sínu eigin brjóstL Þá býr það til sína eigin per- sónulegu skrift, og úr henni er hægt að lesa. — Margir kennarar berjast gegn þvi, að nemendur skrifi afturábak, þ. e. a. s. að hallinn sé öfugt við það sem venja er tiL — Það er vonlaust að berjast gegn slíku, því að sérhver maður skrifar samkvæmt eðli sinu. — Bam, sem skrifar með afbrigði- legum halla, er oft eitt af mörg- um systkinum og oftast einhvers staðar innan úr hópnum. Því finnst því ekki veitt nægileg at- hygli. Það trúir þess vegna ein- göngu á sjálft sig. En það eru jafn mörg atriði í skrift, sem lesa má úr, þótt hallinn sé af- brigðilegur. Afbrigðin sem koma fram í skrift manna eru ótrúlega marg- breytileg. Það em til dæmis til 34 algeng afbrigði af t; hann er einn af þeim stöfum, sem menn skrifa mjög misjafnlega. Bil milli stafa í orði, sérstaklega ef það er langt, virðist vera tals- vert algengt afbrigði meðal ís- lendinga. Slík sundurslitin orð bera vott um tónlistargáfu og einnig sjötta skilningarvitið, inn- sæi, dulhyggju eða hvað er hægt að kalla það. Síðan ég lauk prófi og fór að lesa úr skrift hef ég aftur og aftur rekið mig á þetta. Hins vegar varð ég mjög sjaldan vör við slíkt í amerískri skrift, sem ég var látin lesa úr í skól- anum. Margir eru hræddir við að láta lesa úr skrift sinni, af því að þeir telja sig skrifa svo illa. En það er engin ástæða til að óttast slíkt. Þeir sem skrifa vel þurfa alls ekki að vera neitt betri og fullkomnari en þeir sem skrifa illa. Það getur búið mjög margt í skrift, þótt hún sé ekki regluleg eða áferðarfalleg. —- Skrifar ekki kvenfólk yfir- leitt fíngerðari og fallegri skrift en karlmenn? — Nei, ekki mundi ég segja það. Kvenmaður getur skrifað alveg eins stóra og grófa skrift og karlmaður, og svo getur karl- maður aftur skrifað mjög smáa og fíngerða hönd. Ég skrifa til dæmis sjálf mjög stórkarlalega. — Hvað kostar að láta lesa úr skrift sinni, og hvernig sýnis- horn á að senda? — Fólk þarf helzt að geta um fæðingardag og ár og sýnishom- ið þarf að vera minnst ein örk skrifuð með venjulegum penna eða sjálfblekungi, en ekki kúlu- penna eða blýanti. Hvort papp- írinn er strikaður eða óstrikað- ur skiptir ekki máli, og heldur ekki hvað skrifað er. T. d. má taka efni úr bók eða blaði. Það er seinlegt verk að lesa úr rit- hönd. Það þarf að mæla skrift- ina nákvæmlega og gera ýmsa úreikninga. Þessi vinna krefst mikillar einbeitingar og maður þarf að hvíla sig á milli til þess að verða ekki of þreyttur í höfð- inu. Eitt sýnishorn getur tekið langan tíma, allt upp í viku. — Gjaldið fyrirt fullan lestur er 500 krónur. Sumum finnst þetta há upphæð, en þeir gera sér ekki grein fyrir þeirri vinnu, sem á bak við liggur. Rithandarfræðin er alvarlegt viðfangsefni. Ég vinn eftir föstu kerfi, sem ég má ekki bregða út af. Ég er skuldbundin til að segja sannleikann og ekkert nema sannleikann, hvernig sem hann kann að vera og hver sem hlut á að máli. Annars gæti ég ekki verið meðlimur í hinum alþjóðlega félagsskap rithandar- fræðinga. Ef fólk langar til að láta mig lesa úr rithönd sinni, þarf það að senda mér sýnishorn og fyT- irframgreiðslu í ábyrgðarpósti hingað á Hofsvallagötu 19 í Reykjavík. Ég sendi síðan svar- ið til baka í ábyrgð, vegna þess, að enginn óviðkomandi má hnýs- ast í það, sem er algert trúnað- armál milli mín og viðskipta- vina minna. Ég les aldrei úr skrift neins manns nema að fengnu leyfi hans sjálfs, jafnvel ekki vina minna og kunningja. ☆ Turnherbergið Framhald af bls. 17. teppi og ný rúmföt sett í rúmið. Leikföngin höfðu verið lögð til hliðar og gengum opnar dyrnar ilnn í fataskápinn, sá hún að barnafötin höfðu verið fjarlægð. Frú Griffin svaraði ekki. — Mér þykir bara verst hvað ég er til mikilla óþæginda. — Það var þá nýtt, svaraði frú Griffin fjandsamlega. — Ég vinn bara mitt starf. Hvorki meira né minna. — En það er þó að minnsta kosti ekkert nýtt, svaraði Bar- bara reið mót betri vitund. — Þér hafið aldrei gert neitt af vin- semd einni saman, eða hvað, frú Griffin? Konan sté niður úr tröppunni. Hún var blóðrauð í andliti og svört augun skutu gneistum. — Af hverju ætti ég að vera vinsamleg? Hér komið þér og troðið yður inn undir fölsku nafni, jafn óáreiðanleg, eins og þegar þér voruð lítil og hálfdrep- ið Lady Macfarlane úr hræðslu. Hafið endaskipti á öllum hlut- um og eruð öllum til vandræða. Nákvæmlega eins og móðir yðar! Og svo krefjist þér þess að ég sé vinsamleg. — Nú er nóg komið, sagði Bar- bara hörkulega. — Gerið svo vel að minnast þess að ég er ekki bam sem þér getið meðhöndlað 19. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.