Vikan - 16.05.1968, Síða 23
Laxar á Akircvrl
Þetta er hljómsveitin Laxar á Akureyri, sem
leikiS hefur um nokkurn tíma a8 Hótel KEA
og víðar norSanlands. Hljómsveitin leikur mús-
ik viS allra hæfi, allt eftir því hvaS áheyrend-
ur vilja heyra enda eru þeir félagarnir jafn-
vígir á nýjustu táningamúsikina og hina eldri
dansa. Hljómsveitarstjóri er Grétar Sveinsson,
sem leikur á trommurnar, og er hann sitjandi
til vinstri. ViS hliS hans er gítarleikarinn, Grét-
ar Ingvarsson. Söngkona hljómsveitarinnar er
Sæbjörg Jónsdóttir, en vinstra megin viS hana á
myndinni er Reynir Schiöth, sem leikur á píanó
og orgel. Hægra megin viS ungfrúna er svo
Kristinn Kristjánsson, sem leikur á harmonikku
og bassa.
Munu tveggja laga plötur í STEREO rySja
sér til rúms innan tíSar? Ekki er óeSlilegt
aS menn spyrji, því aS nokkur hluti af
nýjustu tveggja laga plötu Eric Burdon og
The Animals var gefinn út í stereo. ÞaS
var hljómplötufyrirtækið „MGM records",
sem gaf plötuna út, og segja talsmenn
fyrirtækisins, að hér hafi verið um tilraun
að ræða. Enn sem komið er þarf að finna
lausn á ýmsum tæknilegum vandamálum,
sem þessu fylgja. Vissulega er þaS
skemmtileg tilhugsun að geta hlustað á
tveggja laga plötur i stereo, en þótt for-
ráðamenn „MGM records" séu bjartsýnir
á að svo muni verða áður en langt um
iíður, eru talsmenn „sfóru" fyrirtækjanna
EA'SL, Decca, Pye og Philips ekki sama
sinnis og hafa lýst því yfir að engar til-
raunir hafi verið gerðar í þessum efnum
hjá sínum fyrirtækjum. Hitt er víst, að
takist þeim hjá MGM að finna lausn á
vandamálunum munu hin fyrirtækin
bregða við skjótt, því að nú orðið kjósa
flestir stereo upptökur fram yfir mono.
Hárkollur fyrir karlmeon
Nú geta þeir ungu menn, sem eru svo ólánsamir að mega ekki láta hár sitt vaxa kennara eða
foreldra vegna, heldur en ekki verið kampakátir, því að lausnin er auðvitað hárkollur! Og hárkoll-
ur fyrir unga menn er nýjasta nýtt. Eða svo segir John Stephens, og hann veit hvað hann syngur,
eigandi flestra tízkuverzlananna í Carnaby Street í London. Hárkollurnar eru til í ýmsum greiSslum,
eins og John sýnir okkur sjálfur á myndunum. Hárkollur fyrir kvenþjóðina eru ekki nýtt fyrirbrigði,
en svona til gamans bregðum við upp mynd af Sven Erik Magnusson, söngvara hljómsveitarinnar
Sven Ingvars, þar sem hann sýnir okkur hárkollu ætlaSa kvenþjóSinni. Stúlkan við hlið hans (Ijós-
hærS) sýnir okkur hártopp og er gjörðin í hárinu höfð til að hylja samskeyti hins raunverulega
hárs og þess, sem ekki er ekta. Og svo sjáum við líka þau bæði, eins og þau líta út í verunni.
i9. tbi. VIKAN 23