Vikan - 16.05.1968, Blaðsíða 22
■Jlllfe,
NÝJAR HUQMPLÖTUR
Nýlega kom út önnur hliómplatan með hljóm-
sveitinni Pónik og Einari Júlíussyni. A plötunni
eru fjögur lög, þar af þrjú eftir Magnús Eiríks-
son, fyrrum gítarleikara hljómsveitarinnar, og
hefur Magnús jafnframt gert texta við lögin sín
sjálfur. Fjórða lagið er eftir Karl Hermannsson,
en hann var sem kunnugt er söngvari Hljóma,
þegar þeir fóru fyrst á kreik.
Lög Magnúsar heita „Herra minn trúr", „Ast-
fanginn" og Viltu dansa" en lag Karls heitir
„Léttur í lundu". Öll láta lögin vel í eyrum og
bera vott um hæfileika Magnúsar og Karls til
að semja lög — en textarnir eru vægast sagt
mjög gallaðir! Einar Júlíusson sannar enn sem
fyrr ágæti sitt sem söngvari. Hann hefði að vísu
mátt viðhafa harðari framburð — en allt um
það: Hann syngur öll lögin Ijómandi vel. Undir-
leikur er sömuleiðis með ágætum, og hefur upp-
takan í heild heppnazt mjög vel, en platan var
hljóðrituð í London í október 1966. Útgefandi
plötunnar er Tónabúðin á Akureyri, og það er
Pálma Stefánssyni að þakka að plötunni var
komið á framfæri, þegar í óefni var komið hjá
þeirri frægu UF-útgáfu! Pónik og Einar eiga ef-
laust eftir að vaxa í áliti við þessa plötu, því
að lögin eru þegar orðin mjög vinsæl.
..LQVE IS BLUE"
Einstaka sinnum skjóta upp kollinum
lög, sem allir grípa og humma með, hafi
þeir hlustað einu sinni. Falleg lög, sem
l'ást í svo mörgum útgáfum, að menn
eru í vandræðum með að velja, hverja
kaupa skuli, því að alls staðar er lagið
jafn fallegt. Eitt slíkra laga er „Love
is Blue“, og það þarf ekki að spyrja að
því, að það hefur verið í efsta sæti vin-
sældarlistanna í Bretlandi og Banda-
ríkjunum. Hér var þó um tvær óh'kar
útgáfur að ræða. Sú bandaríska var
leikin eingöngu, og er Paul Mauriat
skráður fyrir henni. í brezku útgáfunni,
sem gítarleikarinn Jeff Beck er skrif-
aður fyrir, er bæði stór hljómsveit og
enn stærri kór. Jeff Beck þylcir slyng-
ur gítarleikari, og hann hefur árum
saman leikið inn á plötur en ekki haft
erindi sem erfiði fyrr en nú. Til er frönsk
útgáfa af þessu lagi, sungin, og er sú
aldeilis frábær. Og við eigum líka von
á laginu í íslenzkri útgáfu hjá Hljóm-
um, sem ætla að hafa „Love is Blue“
með á næstu 12 laga plötunni, sem
þeir eru að undirbúa þessa dagana.
ANDRÉSINDRIÐASON
Sandie Shaw.
„WORLD FESTIVAL OF JAZZ
AND POP MUSIC -
MUSICA 1968“
Me3 hverju ári fjölgar þeim Islendignum, sem
leggja Iei3 sína til Mallorka, og ef a8 líkum
lætur munu margir gista þessa sólskinsparadís
í sumar. Þess vegna þykir okkur hlýSa að geta
þess hér, aS á tímabilinu 22. til 27. júll verSur
haldin mikil tónlistarhátíS þar syðra, og hefur
hátiðin hlotið heitið „World Festival of Jazz
and pop music — Musica 1968". Þegar eru fyr-
irhugaðir sex hljómleikar á nautaatsleikvangi í
Palma, höfuðborginni. Og þeir sem þarna koma
fram eru síður en svo af lakari endanum. Raun-
ar yrði of langt mál að telja þá alla upp, en hér
skal nokkurra getið:
22. júlí koma fram Jimi Hendrix Experience,
Eric Burdon og Animals, Grapefruit, hin nýja
hljómsveit, sem Bítlarnir hafa komið á framfæri,
bandaríska hljómsveitin Byrds og sænska hljóm-
sveitin Hep Stars.
23. júlí skemmtir meðal annarra Georgie
Fame, og mun þá væntanlega syngja um Bonn-
ie og Clyde, 24. júli syngur Donovan, 26. júlí
munu Gene Pitney og sænska hljómsveitin Tag-
es skemmta, og meðal þeirra, sem koma fram
27. júli eru Sandie Shaw og Scott Walker.
22 VIKAN 19'tbl-