Vikan


Vikan - 16.05.1968, Page 27

Vikan - 16.05.1968, Page 27
HVER EINASTI KRÓKUR OG BEYGJA SEGIR | SÍNA SÖGU inn áhuga á þvi. Það eru engir nemendur teknir í skólann, án þess að fyrst sé lesið úr skrift þeirra. Á þann hátt sjá kennar- arnir, hvort nemendunum er treystandi til námsins. ■—• Hvað heitir skólinn? — Hann heitir Graphoanalysis Society og er i Chicago. Þetta er einkaskóli, og fólk getur bæði stundað námið í skólanum sjálf- um eða í bréfaskóla. Ég stund- aði nám í bréfaskólanum og það tók um tvö ár. Ég tók próf í marz 1965 og fékk réttindi sem rithandarfræðingur. Prófið fólst í því að lesa úr alls konar skrift- arsýnishornum og fór allt bréf- lega fram. Eftir þetta próf er hægt að bæta við sig tveggja ára námi. Það próf veitir rétt- indi til að lesa úr fornri skrift og ýmsu fleiru. Ein íslenzk kona, María Bergmann, er að læra ein- mitt til þessa prófs við sama skóla, en hún hefur áður lokið tveggja ára prófinu. — Hvernig var að stunda nám í bréfaskóla á erlendu tungu- máli? — Mér fannst það ágætt, enda er þetta nám sérstaklega vel til þess fallið. Þegar allt er skrif- legt er engin hætta á, að neitt gleymist af því sem sett er fyrir, enda er þá hægur vandi að fletta því upp. Að einu leyti er þó nám í bréfaskóla verra. Ef maður segir einhverja vitleysa í tíma í venjulegum skóla, gleymir kenn. arinn því ef til vill. í bréfaskóla geymist hins vegar hver villa skrifuð frá byrjun til enda náms- ins. Ég átti svolítið erfitt með enskuna fyrst í stað, því að ég hef aldrei lært ensku í skóla; lærði hana bara upp á eigin spýlur. En þetta blessaðist allt saman, og ég hafði mjög mikla ánægju af náminu. Mig hafði alltaf dreymt um að læra þetta fag, og þótt draumur minn rætt- ist ekki fyrr en seint, — þá er betra seint en aldrei. — Á hvaða hátt kemur rit- handarfræðin að gagni? -— Hún getur verið nytsam- leg á mörgum sviðum. Þetta er viðurkennd fræðigrein víða er- lendis og mikið notuð. Hún er lítið þekkt hér á landi enn sem komið er, og mér finnst almenn- ingur hafa lítinn skilning á nyt- semi hennar. Sumir halda, að maður sé eitthvað skrítinn að vera að fást við þetta. Erlendis er rithandarfræðin notuð við sálfræðilegar rann- sóknir á starfshæfni einstak- linga. Einnig er hún oft notuð við rannsóknir á sakamálum og einnig við geðrannsóknir. Af- brotahneigð og tilhneiging til geðveiki má sjá í skrift- inni. Oft má hjálpa slíku fólki, ef nógu snemma er um þetta vitað. Atvinnurekendur krefjast gjarnan skriflegrar um- sóknar og láta lesa úr skriftinni á þeim, áður en þeir ráða sér starfsfólk. Á þann hátt geta þeir vitað, hvort þeir ráða í sína þjónustu samvizkusamt og heið- arlegt fólk. Það getur líka verið gagnlegt fyrir kennara að kunna eitthvað fyrir sér í rithandarfræði. Með því móti geta þeir kynnzt nem- endum sínum betur; komizt að raun um ýmsa hæfileika þeirra. sem ekki liggja i augum uppi og meðhöndlað þá eftir því. Og ekki síður getur rithandarfræð- 'n verið gagnleg við uppeldi barna. Foreldrar eiga oft erfitt með að skilja börn sín, sérstak- lega þegar þau fara að slálpast, og þá getur rithandarfræðin hjálpað þeim. En síðast en ekki sízt hjálpar hún manninum til að þekkja sjálfan sig og skilja sitt eigið sálarlíf; varar við mörgu, sem hægt er að kippa í lag og bendir á hvaða hæfileika má þroska og margt fleira. Eftir hverju er farið við lestur úr skrift? Það er farið eftir föstu. ákveðnu kerfi, sem við lærum. Halli skriftarinnar hefur til dæmis mikið að segja og í raun- inni segir hver einasti krókur og beygja og punktur og komma sína sögu. Það eru ákveðnar reglur fyrir öllu, hverjum ein- asta stafkrók. Það er ómögulegt að lesa úr skrift nema því að- eins að skrifað sé með sjálfblek- ungi. Það er mjög mikilvægt að sjá hvernig manneskjan lætur blekið fara úr pennanum. Þegar skrifað er með kúlupenna, verða drættirnir hins vegar svo líkir, að það er ómögulegt að lesa úr þeim, svo að gagn sé að. Ég hef orðið vör við, að marg- ir, sérstaklega ungt fólk, halda að hægt sé að spá eftir skrift; að rithandarlestur sé eins kon- ar spádómur. En það er mikill misskilningur. Það er persónu- leiki mannsins sjálfs, sem lýst er. Margir ganga með þá grillu, að það sé hægt að lýsa ylra út- liti manns eftir skrift hans, en það er ekki rétt. Kyn og aldur sést ekki í skriftinni og því síð- ur útlit. Það er innri maðurinn sem kemur fram. Það er ekki hægt að segja fyrir um óorðna atburði, heldur er um skapgerð- argreiningu að ræða. En samt getur verið nauðsynlegt fyrir ungt fólk að láta lesa úr skrift sinni, til dæmis í sambandi við starfsval. Það hafa leitað til mín unglingar, sem ekki hafa haft áhuga á neinu sérstöku, sem þeir gætu hugsað sér að læra. Þá get ég bent þeim á einhver þrjú at- riði, sem mundu henta þeim vel. Framhald á bls. 49. VIKUNNAR OG FARA HÉR Á EFTIR SÝNISHORNIN OG ÚRLESTURINN ÚR ÞEIM. ÞAÐ SKAL TEK- USTU GERÐ RITHANDARLESTRAR. ÞESS MÁ GETA AÐ LOKUM, AÐ ÞESSAR LÝSINGAR EIGA ÁÐ r~ O / ■/ C* /'*~l j t /r m. $ * ♦ * .■f ^ jf ~ o-t ^ . Þessi skrift sýnir áhuga á að afla sér þess, er hann óskar sér. Skrifarfnn hefur sjötta skilningarvitið, þannig að allir hlutir koma honum ekki á óvart. Hann er greiðugur og hefur mjög góða framkomu. Þess vegna er gott að lynda við hann, þótt hann geti verið gagnrýninn á aðra. A / • / / Skriftin sýna vilja til að yfirvinna cinhvern ágalla, sem skrif- aranum finnst hann vera með. Hami hefur gaman af að tala. — Einnig hefur hann gaman af léttri tónlist. Hann er mjög þrár, þótt hann geti verið áhrifagjaim. 19. tbi. VIXAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.