Vikan


Vikan - 16.05.1968, Blaðsíða 34

Vikan - 16.05.1968, Blaðsíða 34
BIFRgiÐAMÁLARAR BIFREIÐAEIGENDUR TAKIÐ SWAÐA BIFREIÐ SEM ER VSÐ HOFUM RÉTTA LITINN Þér gefið aðeins upp tegund og órgerð bifreiðarinnar og DU PONT blöndunarkerfið með yfir 7000 litaspjöldum gerir okkur kleift að blanda rétta litinn á fáeinum mínút- *»«. l/.J. »*». o*». DU PONT bifreiðalökkin hafa þegar sannað yfirburði sína við íslenzka staðhætti. DUCO og DULUX® eru lökk, sem óhætt er að treysta - lökk, sem endast í íslenzkri veðráttu. Laugav. 178, sími 38000 snemma á morgnana. Þar hitti ég Lee Baines. Hann kynnti mig fyrir hávöxnum, dökk- hærðum manni, sem hét Mark Da- vis. Þegar ókunni maðurinn var farinn, sagði Lee við mig: — Nota- legur náungi, þessi Davis, þótt hann geti ekki séð mismun á manni og orangutan. — Jæja? sagði ég. — Nei. I hans augum eru íbúar jarðarinnar aðeins mismunandi teg- undir, frá mannfræðilegu sjónar- miði. Ég þori að veðja um það, að það eina sem hann tók eftir við þig, var að þú ert af spendýra- ættinni, ert kvenkyns og líklega komin af Neanderthals-manninum. Svo hittumst við aftur. En hvar var nú rómantíkin, tunglskinsnæt- ur, djúpblátt hafið og dýrðlegt sól- setur. Það var liðin tíð. Fyrst komu aparnir, svo ég. Dag nokkurn leit hann upp úr bókinni, sem hann var að lesa, ég held að það hafi verið einhver bók um loðnar apategundir, og tautaði: — Ég held það sé kominn tími 34 VIKAN 19 tb'- til að við giftum okkur. Það var allt og sumt. Það stend- ur víst ekkert í mannfræðinni um það hvernig maður á að biðja sér konu, eða fullvissa hana um ást sína. En þennan mann lofaði ég að elska til dauðadags. Hann er fað- ir barnanna minna, hann sér okkur fyrir fæði og klæði, og ég elska hann. Og ef hann tekur einstaka sinnum eftir því að á bak við af- komanda Neanderthhais-mannsins leynist kona, þ. e. a. s. ég, þá svimar mig af sælu og þakklæti. Þannig var mér líka innanbrjósts, þegar ég kom auga á hann í and- dyri klúbbhússins. Ég var þakklát fyrir það að fá hlutdeild í áhyggj- um hans og erfiðleikum, gleði hans og frama, að fá að vera honum hjálpleg til að byggja upp líf okk- ar, ánægju hjónabandsins, smátt og smátt og dag eftir dag. Einmitt þegar ég var í þessum hugleiðingum, kom ég auga á Conrad! Hann sá mig líka og gekk á móti mér. — Philippa! kallaði hann, og rétti fram báðar hendurnar. — Ég var að vona að ég fengi að sjá þig hér í kvöld. Hvernig hefurðu það? Hann var glæsilegri en áður, ég var eiginlega búin að gleyma hvernig hann leit út. — Agætt, sagði ég, hálf hikandi. - En þú? — Þakka þér fyrir, allsæmilegt. Ég vona að maðurinn þinn sé hérria líka. — Já, hann stendur þarna, sagði ég, — ég skal kynna þig fyrir hon- um. Vissir þú að ég var gift? — Já, ég hafði heyrt það. Ég undraðist með sjálfri mér hvernig hann hefði frétt það, hann þekkti áreiðanlega engan í klúbbn- um. — En þú? Ert þú kvæntur? Hann hristi höfuðið, og það varð andartaks þögn, þangað til ég hélt áfram: — Ég var reyndar búin að heyra að þú værir hérna. — Hver sagði þér það? — Luella. Ég vissi ekki að þið þekktust! Ég get svarið að mér fannst hann roðna undir sólbrúnkunni. — Við kynntumst í París fyrir nokkru. Gat þetta verið? hugsaði ég. Luella! Að Conrad sé ástfanginn af Luellu! Ég varð allt í einu reið, reglulega fokvond yfir því, að maður, sem hafði elskað mig fyrir aðeins fimm árum, gæti verið ást- fanginn ! hreysiketti eins og Lu- ellu! Ef við hefðum verið eitthvað Iíkar, þá hefði það verið sök sér, en hún og ég. . . . — Já, ég skil. Luella hefur boðið þér hingað í kvöld? — Einmitt, sagði hann og kink- aði kolli. — Við höfum haft sam- band síðan við hittumst. Hann horfði á eina af glæsilegu blómaskreytingunum. — Þetta hefur henni tekizt alveg stórkostlega, sagði hann með mikilli hrifningu í röddinni, og ég fann að honum var það mikið í mun að láta þetta í Ijós við mig. — Já, hún hefur víst gert þetta, sagði ég, frekar kuldalega. — Að hugsa sér hve hlédræg hún er og látlaus, hélt hann áfram. — Vesalings Luella litla. Ég trúði ekki mínum eigin eyr- um, gat það verið að hann hafi sagt: — Vesalings Luella litla? PER SPARIÐ MED ÁSKRIFT ÞÉR SPARIÐ TÍU KRÖNUR Á HVERJU BLAÐI MEÐ ÞVÍ AÐ VERA ÁSKRIFANDI AÐ VIKUNNI VIKAN ER HEIMILISBLAÐ OG í ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASTIR ÞÆTTIR O. FL., O. FL. KLIPPIÐ HER-----------------------------------.-----KLIPPIÐ HER ^íi I I I L Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift □ 3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 400,00. Hvert blað ó kr. 30,77. □ 6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 750,00. Hvert blað ó kr. 28,85. Gjalddagar: 1. febrúar — 1. maí — 1. ógúst — 1. nóvember. SKHIFIÐ GREINILEGA NAFN HEIMILI POSTSTOÐ’ HILMIR HF. VIKAN PÓSTHÓLF 533 SÍMAR: 36720 - 35320 SKIPH0LTI 33 REYKJAVÍK n i i i j v

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.