Vikan


Vikan - 16.05.1968, Blaðsíða 41

Vikan - 16.05.1968, Blaðsíða 41
Kýpur. í október 1956 var hann kominn til Búdapest — og varð að horfa aðgerðarlaus ó það hvernig Rússar brutu ungversku uppreisn- ina á bak aftur með skefialausri grimmd. Hann hafði séð konur og börn kremjast undir skriðdrekareimum, og hann hafði séð örvæntinguna í augum ungverskra frelsishermanna, meðan þeir biðu eftir þeirri hjólp Vesturveldanna sem aldrei kom. Og góðan vin hafði hann misst: Ijós- myndarinn Jean-Pierre Pedrazzini fró Paris-Match sem féll fyrir kúlnahríð á götu í Búdapest. Jean flaug aftur til Parísar nokkr- um dögum síðar, þann 4. nóvem- ber. Hann var þreyttur og hugsiúk- ur af því sem hann hafði séð. Nú langaði hann til þess eins að dvelj- ast hjá konu sinni Lucitu, og þrem- ur sonum þeirra. Hann sagði við einn starfsbróður sinn: ,,Ég er ekki hræddur við dauðann. Ég hef lifað eftir lyst minni. En nú langar mig til að eiga dálítið rólegt. Mig lang- ar til að horfa á börnin mín vaxa upp ..." En það voru ekki liðnar nema fjórar klukkustundir frá því hann kom heim og til þess að síminn hringdi. Hann var kvaddur til nýrr- ar sendiferðar. Ritstjórinn tók til máls og hafði ekki mörg orð: „Komdu þér til Kýpur eins fljótt og þér auðið verður. Hersveitir vorar eru að leggja til atlögu við Suez. Eins er að geta: að hafi þér dottið í hug að fara niður í fall- hlíf, þá hugsaðu ekki um það. Það á Daníel Camus að gera því að hann er einhleypingur, en þú ekki. Þú getur farið með landgöngusveit- unum á skipi." Jean dró að sér sígarettureyk- inn, tók saman pjönkur sínar og kyssti konu sína að skilnaði. Hún var hágrátandi þegar hann fór. Hver veit nema hún hafi haft eitthvert hugboð um hvernig fara mundi. Þegar Jean var kominn á vett- vang í Egyptalandi, var Port Fuad þegar í höndum franskra hersveita. En vestan við skipaskurðinn áttu Bretar enn við harðvítuga mót- spyrnu að eiga umhverfis Port Sa- id. Jean og félagi hans, Camus, kærðu sig kollótta um öll fyrirmæli, og leigðu sér bát og reru yfir f Port Said. Þegar þeir voru komnir heilir á húfi yfir um, fannst þeim að þeir yrðu að fá sér eitthvert farartæki. Þeir reikuðu um göturnar í Port Said, og komu þar að aðalstöðv- um egypzka hersins. Egyptar sátu þar enn ótruflaðir, en fáeinir her- menn þeirra sátu ráðvana á gang- stéttarbrúninni. Uti fyrir stóð spán- nýr jeppi, litaður eins og sandur- inn. Jean og Daníel gengu að jepp- anum og litu inn í hann. f aftur- sætinu lá Iftil vélbyssa, hálf tylft af patrónubeltum — og egypzkur hershöfðingjaskrúði með öllu til- heyrandi. Þeir litu í kringum sig, enginn gaf þessu minnsta gaum. Þeir stigu upp í jeppann, og þutu af stað niður eftir götunni með ryk- mökkinn á eftir sér. Næstu þrjá daga var þessi jeppi frægasta farartækið á landgöngu- svæði bandamanna, hann var æv- inlega þar sem mest var um að vera, og flutti með sér franska, brezka og bandaríska fréttamenn. Jean tók sig til og málaði utan á hann símanúmer Paris-Match með stórum hvítum stöfum: BALZAC OO- 24. Síðustu klukkustundirnar sem Jean Roy lifði varð hann að tákni mannúðarinnar þarna á land- göngusvæðinu. Hann tók að afla matfanga handa munaðarlausum börnum Egypta, og hann lagði sig fram um að leita að særðum mönn- um í húsarústunum. Börnin flykktust um hann hvar sem hann fór, og nefndu þau hann „sendimanninn góða með rauðu húfuna". Margar mæður komu til hans og báðu hann um mjólk handa börn- um sínum. Hann steig upp í jeppa sinn, og ók til egypzkrar birgða- stöðvar, sem brezkir fallhlffaher- menn voru látnir gæta. Við hliðið var miðað á hann af hermönnum þessum, sem sögðust hafa fyrir- mæli um að skjóta þá sem reyndu að stela. „Jæja, skjótið þið þá," svaraði Jean. Þeir hikuðu, en glottu svo hver til annars, og létu hann óátalið fylla jeppa sinn af niðursuðumjólk í dósum. Gæzlumaður sagði Jean að hann yrði að skrifa kvittun fyr- ir því sem hann hefði tekið til sfn, og játaði hann þvf kurteislega, en þar sem nafnið átti að koma skrif- aði hann „Philippe Pétain" og var svo ekki fleira talað að þvf sinni. Þegar franski yfirforinginn, Massa hershöfðingi, frétti um þetta tiltæki, brást hann reiður við og hótaði að senda Jean samstundis heim til Frakklands. Hefði hann staðið við það, þá væri Jean Roy sennilega enn á lífi. Þetta var á laugardegi, 10. nóv. 1956, fáeinum mínútum yfir há- degi. Camus hafði haldið til Parfs- ar daginn áður, og þegar hann kvaddi Jean, sagði hann: „Nú er vopnaviðskiptum lokið, og leggðu þig nú ekki f hættu frekar en orð- ir er." Jean hafði tekið þvf glað- lega og sagt: „Hafðu engar áhyggj- ur, mér verður ekki meint. En ef svo færi að ég hrykki upp af, þá komdu aftur og taktu platínuplöt- una úr hausnum á mér. Hún er tölu- vert verðmæt." Daginn eftir voru brezkir fall- hlffahermenn úr 16. flugfluttu deildinni á verði við Suez-veginn og sáu þá sandlitaðan jeppa koma brunandi á 100 kílómetra hraða. Okumaðurinn var með rauða baskahúfu. Við hlið Jean Roys var í þetfa sinn bandarfskur Ijósmyndari að nafni Davíð Seymour. Jean sá að brezku fallhlífahermennirnir veif- uðu honum að stanza. Hann hló við oð þaut framhjá þeim, og steig fast á benzínið. En hitt vissi Jean ekki að þessir hermenn gættu yztu varðstöðvar bandamanna við þessa braut. f fimm hundruð metra fjarlægð var egypzkur liðsforingi á verði og þegar hann sér farartækið koma æðandi að varðstöð sinni, skipar hann mönnum sínum að skjóta. — Kúlurnar þutu allt í kring og tættu 19. tw. vikan 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.