Vikan


Vikan - 05.06.1969, Page 5

Vikan - 05.06.1969, Page 5
af jafn kurteis og innileg í bréfum þínum, þá segjum við það helzta um flug- freyjustarfið einu sinni enn. Bæði flugfélögin halda námskeið fyrir verð- andi flugfreyjur, þegar þau þurfa að ráða nýjar. Þessi námskeið eru alltaf aug- lýst í blöðunum. Umsækj- endur eru látnir gangast undir inntökupróf og ef þeir standast það fá þeir ókeypis þjálfun á nám- skeiðunum. Hvað nám og skólagöngu snertir er aðal- lega krafizt góðrar kunn- áttu í tungumálum og al- mennri þekkingu. Annars skaltu hringja til annars hvors flugfélagsins, ef þú vilt fá enn nákvæmari upplýsingar. — Ljónið og Tvíburinn fara mjög vel saman, en Ljónið og Vatns- berinn ekki eins vel. Ljón- ið er eigingjamt, en Vatns- berinn ekki. Þeim kemur því aðeins vel saman, ef Vatnsberinn beygir sig undir vilja Ljónsins. f PÓSTFREYJUR í BÚNINGUM Kæri Póstur! Mig langar til að koma á framfæri ofurlítilli fyrir- spurn. Eins og flestir vita var fyrir nokkrum árum byrjað að ráða konur til bréfberastarfa. Þetta hefur gengið prýðilega að því er ég bezt veit. Að minnsta kosti færir ung og falleg húsmóðir mér póstinn á hverjum degi og kann ég því afar vel. En eins sakna ég. Hvers vegna eru kon- urnar ekki hafðar í ein- kennisbúningi eins og bréf- berar af hinu kyninu? Er til of mikils mælzt, að þær fái fallegan búning líka? Góði Póstur! Komdu þessu á framfæri fyrir mig til réttra aðila. Ég vil endi- lega fá að sjá fallegu bréf- beruna mína í einkennis- búningi, eitthvað í líkingu við þann, sem flugfreyjur klæðast. Með beztu kveðjum. K. Við komum hugmynd- inni hér með á framfæri. „EITTHVAÐ" Kæri Póstur! Ég les þig alltaf fyrst af öllu í Vikunni, af því að mér finnst þú svo skemmti- legur. Ég hef eirinig séð, að þú getur leyst úr ýmsum vandamálum, sem fólk lendir í. Þess vegna skrifa ég þér núna og ætla að biðja þig að reyna að ráða fram úr einu vandamáli fyrir mig. É'g er fimmtán ára, en verð sextán 15. júní. Þann- ig er mál með vexti, að ég er hrifin af strák. Hann á heima í næstu götu við mig, svo að ef ég vil sjá, hvort hann er heima eða farinn út, þá get ég það alltaf. Hann er sautján ára, en verður átján í júlí. — Hann er stundum með stelpu, og hann er með henni vegna þess, að hann fær eitthvað hjá henni, sem ég vil nú ekki skrifa um. Þau eru bara stundum saman, þ. e. a. s. þegar hann fær þetta hjá henni. Pabbi hans á bíl, sem hann er oft á. Eg fer oft út að keyra með honum. — Stundum, þegar ég er úti í sjoppu, kemur hann á bílnum og spyr, hvort hann eigi ekki að keyra mig heim, því hann sé líka að fara heim. Ég þigg það oftast, því annars verður hann reiður. Við höfum verið saman svona annað slagið, en aldrei á föstu. Hin stelpan er hrifin af honum, en hann er ekki hrifinn af henni, eða það segir hann mér að minnsta kosti. Kæri Póstur! Á ég að halda áfram að trúa hon- um eða fara og finna mér annan strák? Ég vona, að þú lesir þetta bréf og birtir það og svarir því vel og segir ekk- ert, að ég sé of ung til að hugsa svona. Með fyrirfram þakklæti. J. J. P.S. Hann þolir aldrei að sjá mig með öðrum strák- um, en ég má alltaf horfa á hann vera með öðrum stelpum. Hvernig finnst þér þetta? Okkur finnst Ps-ið anzi grunsamlegt. Og margt fleira í lýsingu þinni bend- ir til þess, að hann sé ekk- ert sérstaklega góður strákur. Þú skalt bara láta hann róa og fá þér annan. Þú ert ekkert of ung til að „hugsa“ svona, á meðan þú lætur engan „fá“ neitt, eins og hin stelpan. LAUCAVECI 59 SfM118646 Þbp SDirifl nefl iskrift VIKAN SflclpliolCI 33 - síml 23. tw. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.