Vikan


Vikan - 05.06.1969, Síða 43

Vikan - 05.06.1969, Síða 43
Tíu mínútum síðar var Michael kominn. — Michael sjáðu til, mér datt allt í einu í hug að við gætum látið prenta dagbókina, og haft hana tilbúna til útgáfu. Það væri hægt að kalla hana „Svikinn“. — „Yfirgefinn“, sagði Michael. — Já, það væri ágætt, svo væri hægt að sýna innanríkisráðherr- anum hana, það gæti komið honum til að athuga betur mál Huberts. Það þyrfti að skrifa góðan formála. — Þetta er ágætis hugmynd, sagði Michael, og klóraði sér í höfðinu, — en hvernig getum við gert þetta án þess það, líti út sem kúgun? — En þetta er aðeins til að sýna honum að hann gæti iðrast þess síðar, ef hann tekur ekki í taumana. — Barnið mitt, þú þekkir ekki þessa karla. Það eina sem dugar er að þeir hafi það á tilfinningunni, að þeir séu að gera eitthvað sem þeim hefur rottið sjálfum í hug. Það eina rétta er að fá Bobbie Ferrar til að tala um fyrir honum. — Heldurðu að hann geri það? — Bobbie er sfinx, en hann er ágætur sfinx. Og hann þekkir manna bezt til slíkra mála. Hann gæti verið milliliður. — En það fyrsta er að prenta dagbókina, svo það líti út sem hún sé um það bil að koma út. — Heldurðu að herra Ferrar hafi það mikinn áhuga á þessu að hann hirði um að lesa dagbókina? — Já, það held ég, sagði Michael. — Faðir minn gerði honum einu sinni greiða. — En hver gæti skrifað íormálann? — Ég hugsa að ég geti fengið Blythe gamla til að gera það. Þeir hsfa ennþá nokkurn beyg af honum í flokknum, og ef honum býð- ur svo við að horfa, getur hann komið út á þeim svitanum. Dinny klappaði saman lófunum. — Heldurðu að hann geri það. — Ef honum líkar dagbókin. — Þá held ég að það sé öruggt. — Má ég lesa dagbókina, áður en ég fæ prenturunum hana? — Auðvitað! En það er bara eitt, Michael, Hubert villi ekki láta birta hana. — Það er allt í lagi. Ef hún hefir þau áhrif á Walter að hann samþykki ekki handtökubeiðnina, þá þurfum við ekki að gefa hana út. Olían verður þá komin á eldinn, eins og Forsyte gamli hefði sagt. — Hve mikið kostar prentunin? Nokkur pund, kannski tuttugu. — Ég ræð við það. — Það er ekkert atriði, hafðu engar áhyggjur. — Þetta er mitt hlutverk, og ég vil borga fyrir það. Þú getur ekki ímyndað þér hve hræðilegt það er að vita Hubert í svona mikilli hættu. Ég hefi það á tilfinningunni að hann sé að eilífu glataður, ef við gerum ekkert í þessu. — Ég held að þetta gangi allt vel, ef við getum fengið Blythe gamla og Bobbie Ferrar til að fylgja þessu eftir með áhuga. — Guð blessi þig, sagði Dinny, og var nú miklu léttrai í skapi. Næstu dagar voru lengi að líða. Dinny var um kyrrt í Mont Street, til að vera við hendina ef eitthvað skyldi bera að. Aðal- vandamál hennar var að halda fyrirætlunum Jean leyndum. Það gekk vel gagnvart öllum, nema Sir Lawrence, sem lyfti brúnum og sagði: — Botticellisvipur, Dinny! Langar þig til að hitta Bobbie Ferrar? Við borðum hádegisverð saman á morgun, en líklega fáum við ekki mikið annað en sveppi. Framhald í næsta blaði. Þegar landið fær mál Framhald af bls. 19 bókum og lesið þjóðháttalýsing- ar. Það er komið fram í desember, birtutíminn er stuttur og skamm- degisnóttin ræður ríkjum á ís- landi. Ungur sjómaður, sem heima á sunnan heiðar, leggur leið sína norður í Steingríms- fjörð en þar hefur hann róið haustvertíð. Erindið er að sækja það af aflahlutnum, sem farið hafði í herzlu, var þetta dálítið trúss á einn hest — 40 til 50 punda baggar. Ferðinni var heit- ið að Smáhömrum en þar geymdi hann þessar færur sínar. Hann fór í einum áfanga norður yfir heiðina og hafði náttstað í Steina- dal. Næsta dag sótti svo pilturinn fiskinn og hafði aftur sama næt- urstað norðan heiðarinnar. í Steinadal var honum samnátta roskin kona mikil að vallarsýn, enda talin dugmikil svo af bar. Hún hafði verið við tóvinnu norður í Kollafirði og var nú á leið suður í Reykhólasveit. Strax um kvöldið er um það rætt við ferðamanninn að konan fái samfylgd með honum yfir MESCAFÉ h) er Neskaffi er ilmandi drykkur. I önn og hraða nútímans ör.var og lífgar Neskaffi. Óvenju ferskt og hressandi bragð af Neskaffi. Ungt fólk velur helst Neskaffi. Neskaffi er nútímakaffi. heiðina, því að öðrum kosti megi búast við því, að ferð hennar kunni að tefjast nokkuð. Tals- verður snjór var á jörðu og því erfitt fyrir konu að fara yfir heiðina eina síns liðs, þótt at- kvæðamikil væri. Auk þess hafði hún einhverjar föggur meðferð- is. Jú, pilturinn kvað það ekkert sér til baga þótt konan gengi í brautina og engu munaði það þó farangri hennar væri bætt á hestinn. Þetta er því afráðið og líður svo nóttin. Um morguninn var norðangola frost og hreinviðri. Guðrún hús- freyja bjó ferðafólkið vel að vistum og lagði ríkt á við piltinn að reyna að fá gömlu konuna til að drekka mjólk, ef seinfar- ið væri og hana sækti þorsti. Er nú fljótt yfir sögu að fara, ferðin fram Steinadalinn gekk að óskum, því að færi var gott. En þegar kom fram yfir Steins- vað og upp í Rjúpnakinnar er komin mikil ófærð, og er þar skemmst af að segja, að fyrr en komið er á svokallað Vatnsholt, sem er um það bil á miðri Steina- dalsheiði og þar sem hæst ber, er skollin yfir stórhríð með hörkufrosti og þarna uppi er allt einn jökull og umbrotafærð. Þó sígur áfram í áttina þangað til komið er suður fyrir svo nefnt Syðravað, þá fór gamla konan að þreytast og dragast aftur úr, var þó ekki farið hratt yfir og hesturinn að mestu látinn ráða ferðinni. Hann var vanur ferða- hestur, brúnskjóttur að lit og hinn mesti stólpagripur. Nú verð- ur pilturinn var við að konan er farin að svala þorsta sínum með því að éta snjó. Hann hefur orð á þessu við hana en hún kveðst muni komast leiðar sinnar og skuli hann engar áhyggjur af því hafa. Ekki höfðu þau þó lengi farið, þegar hún sezt í skaflinn og segist nú ekki kom- ast lengra, og eru þau þá stödd á svokölluðu Fjárholti. Hríðin er sú sama og þarna er umbrota- skafl. Sér þá pilturinn að hér er í nokkurt óefni komið, tekur því baggana af klárnum og ákveður að skilja þá eftir. Þegar hann hefur losað trússið, sleppir hann hestinum sem hverfur óðar út í sortann. Af þessu hafði hann þó engar áhyggjur, en fer að huga að gömlu konunni og virðist mjög af henni dregið. Hún stend- 23. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.