Vikan


Vikan - 12.06.1969, Blaðsíða 6

Vikan - 12.06.1969, Blaðsíða 6
SÍBAN SllAST 5YHIB UBNSINS í HERÞJÁLFHN Vélbyssan, sem drengurinn til vinstri á myndinni er að fást við, er álíka löng og hann sjálfur. Þetta vopn er ekkert barnaleik- fang, og það er ekki heldur kommandóhnífurinn, sem upp- kominn skæruliði kennir félög- um hans að fara með. Myndirnar eru teknar á stormasamri, sand- rjúkandi eyðimörk einhversstað- ar í Jórdaníu, þar sem Frelsis- fylking Palestínu hefur leynileg- ar búðir og þjálfar átta til fimm- tán ára gamla drengi í skæru- hernaði og hatri á ísrael. Engir nema arabísku skærulið- arnir sjálfir vita hve margar þesasr æfingabúðir eru, en i Jórdaníu einni er talið að þær séu fimm og sextíu til áttatíu drengir í hverjum. Drengirnir eru á arabíksu kallaðir asjbal, sem útleggst synir ljónsins. Fyrsta þjálfunarnámskeiðið stendur yfir í þrjá mánuði, og eftir það fara drengirnir aftur í skólana í flóttamannabúðunum eða verða boðberar og aðstoðar- menn hjá skæruhernum, ef þeir eru búnir í skólanum. Fimmtán ára eru þeir taldir nógu gamlir til að verða sendir vesturyfir Jórdan til að fremja skemmdar- verk og koma fyrir vítisvélum. Fimmtán ára drengur og annar þrettán ára komu tuttugasta og annan júní í fyrra fyrir sprengju í Ambassador-hóteli í Jerúsalem, þar sem háttsettir ísraelskir liðs- foringjar voru samankomnir. Þrettán manns fórust. Drengjunum er líka kenndur sósíalismi, eins og Arabar túlka þá stefnu. Þeim er einnig sagt að stríðið við ísrael geti staðið yfir svo kynslóðum skipti. 6 VIKAN HJARTA HANS EB FULLT AF AST TIL MAO Mynd þessi var send til Vestur- landa frá kínversku fréttastof- unni Hsínhúa. Meðfylgjandi texti er svohljóðandi: „Foringjarnir og liðsmennirnir í þeim sveitum frelsishers kínversku þjóðarinn- ar, sem á snædrifnum fjöllum Pamírs standa vörð um landa- mæri Sinkíangs, bera í brjósti takmarkalausa ást til Maós for- manns. Þeir eru reiðubúnir að gereyða hverjum þeim óvini, er hættir á innrás. Myndin er af varðmanni, tekin í fjögur þúsund og átta hundruð metra hæð yfir sjávarmáli.“ Sinkíang er norðvestlægasti hluti Kínaveldis, og höfðu Rúss- ar lengi ágirnd á því landi. Kín verjar hafa reynt að herða tök sín á því með því að flytja inn kínverskt fólk og herða jafn- framt eftirlitið með hinum upp- runalegu landsmönnum, sem flestir eru tyrkneskrar ættar. HOFUBBORG GLfEPANNA í kosningabaráttunni fyrir for- setakosningarnar síðustu í Bandaríkjunum hét Richard Nix- on því upp á æru og trú að binda endi á glæpafaraldurinn í höfuð- borginni jafnskjótt og hann kæmist í forsetastóf. Það var ekkert smávegis loforð. íbúar Washington eru nú átta hundruð og fimmtíu þúsund, og tólf fyrstu daga yfirstandandi árs voru framdar þar fjórtán ránár- ásir á banka, ellefu morð og um tvö hundruð og fimmtíu vopnað-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.