Vikan


Vikan - 12.06.1969, Blaðsíða 11

Vikan - 12.06.1969, Blaðsíða 11
lagi, en verður svo nákvæmlega eins. Og ef dallurinn stanzar af ein- hverjum ástæðum [ meira en tvo daga, þá eru þeir farnir að kvarta og kveina,- á þessi koppur ekki að fara út meir, eða hvað? ILLA FJARRI GÓÐU GAMNI Til að bæta sér snubbóttar land- legur, sem oft líða í algeru með- vitundarleysi, finna þeir upp á ýms- um brellum og hrekkjum sem auð- vitað bitna mest á nýliðunum. Marg- ur brandarinn er látinn fjúka yfir spilunum á frívaktinni og sögur, sem hefðu komið Vellýgna-Bjarna til að roðna, eru bornar á borð sem heilagur sannleikur. Þeir eru orð- heppnir og alveg meinstríðnir, margir hverjir, og yfirmennirnir eru oft ekki barnanna beztir, nema síð- ur sé, eins og eftirfarandi dæmi sannar; Einn nýliðinn kom hlaupandi upp ( brú til skipstjóra með miklu íra- fári, rennvotur frá hvirfli til ilja og sagði að strákarnir væru orðnir vit- lausir, það væri allt á floti aftur í, gangar og íbúðir, ekki þurr þráður til á einum einasta manni, því þeir væru allir komnir í vatnsslag. Drengurinn var yfir sig hneykslað- ur á þessum forgangi. — Ja, hver andskotinn, sagði þá skipstjórinn, — það var Ijótt að missa af þvtl Margir segja túr eftir túr, að þetta skuli svo sannarlega vera sá síðasti, nú séu þeir hættir fyrir fullt og allt. En þeir koma alltaf aftur, og einn þekkti ég, sem hafði verið í síð- asta túr í sjö ár, var þó alltaf fyrsti maður um borð þegar átti að fara, og ekki var vitað til að hann hefði tekið sér fr( einn einasta túr allan þann tíma. TREMMAKARLAR ÞYKJA GERSEMI Sagt er, að hvergi sé eins algengt að menn fái deleríum tremens eftir fyllirí og um borð ( togara. Ekki veit ég um það, en eitt er víst, að hvergi eru menn eins hjálpsamir að hlúa að og örva þá menn, sem sýna þess einhver merki að hafa fengið snert af tremma, eins og það er kallað. Margur spaugilegur atburðurinn hefur gerzt á miðunum, sem hefði sómt sér vel á leiksviði, og þykja tremmakarlar oft hin mesta gersemi og dægradvöl, meðan tremminn varir. Einu sinni í byrjun vaktar var ég að klæða mig, þegar karl nokkur, sem ég hafði aldrei séð fyrr um borð ( togara, en þeim mun oftar í strætinu, kom til m(n og heilsaði. Hann var uppáklæddur ennþá, þótt þetta væri þriðji sólarhringurinn síðan við fórum úr höfn. Hann var í frakka með hattkúf, og sagðist ætla að rölta ( land og fá sér eina. Ég hélt að maðurinn væri að grín- ast og samsinnti þessu. Þá stakk vinurinn höndinni ( vasann, dró upp Framhald á bls. 46. 24. tbi. vikan 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.